Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 7. ágúst 2026 06:54 Skólinn er í úthverfi Bangkok. EPA Sjö eru látnir eftir að fjórtán ára grunnskólanemandi í Taílandi hóf skothríð í skóla.
Fimmtán aðrir eru sagðir særðir eftir skothríðina, þar af tveir í alvarlegu ástandi. Að sögn heilbrigðisráðherra Taílands skaut nemandinn fyrst ömmu sína og afa til bana áður en hann hélt í skólann. Vitni lýsa því hvernig drengurinn gekk um Desbsirin Nonthaburi-skólann, sem er í úthverfi Bangkok, og leitaði kennarana uppi. Nemandinn myrti fimm kennara áður en hann skaut sjálfan sig til bana. Sjálfur var hann nemandi í níunda bekk. Vopnið sem drengurinn notaði var níu millimetra skammbyssa sem var í eigu afa hans, sem var einnig kennari, samkvæmt umfjöllun BBC. Ástæðan að baki árásinni er enn óljós en þegar hefur verið kallað eftir því að byssulöggjöfin verði hert í landinu. Hún er þó nokkuð ströng fyrir og eiga þeir sem gripnir eru með ólögleg skotvopn til að mynda tíu ára fangelsi yfir höfði sér. Nemendur skólans voru harmi slegnir.AP Þrátt fyrir það eiga margir Tælendingar sínar eigin byssur og er það hlutfall hærra í Tælandi en í nágrannaríkjunum. Nokkrar slíkar skotárásir hafa síðan verið gerðar í landinu undanfarið. Átján ára drengur skaut skólastjóra og nemanda til bana í febrúar og í fyrra voru fimm drepnir í skotárás á matarmarkaði í Bangkok. Fréttin hefur verið uppfærð.
Taíland Mest lesið Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Innlent „Mistök að fela honum forystu“ Innlent Ákærðir fyrir að frelsisvipta mann og nauðga með röri Innlent Fleiri fréttir Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Sjá meira