Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið tekur þátt Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 28. október 2026 12:02 Elías segir að í sex ári hafi heimsending á áfengi verið kölluð ógn við lýðheilsu en nú þegar ÁTVR ætli að bætast í hópinn heiti það þjónusta. vísir Einn eigenda netverslunarinnar Sante segir áform ríkisins um að hefja heimsendingu á áfengi merkileg í ljósi þess að áfengislögin kveði á um að ÁTVR eigi að takmarka aðgengi að áfengi. Sama stofnun og ætli nú að hefja heimsendingar hafi í sex ár kallað heimsendingar ógn við lýðheilsu. Nú þurfi forsvarsmenn vínbúðanna að fara að ákveða hvort ÁTVR sé lýðheilsustofnun eða verslun sem keppir um viðskiptavini.
Í gær greindi forstjóri Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins frá því í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni að til skoðunar væri að bjóða upp á heimsendingarþjónustu á áfengi. Elías Blöndal Guðjónsson, framkvæmdastjóri netverslunarinnar Sante, segir þessi áform merkileg. „Áfengislögin fjalla um að ÁTVR eigi að takmarka aðgengi að áfengi en á sama tíma segir forstjórinn að heimsendingarþjónustan eigi að auka aðgengi og það er auðvitað þannig að annaðhvort eru lögin úrelt eða bara einfaldlega stofnunin.“ Hann bendir á að í sex ár, frá því að Sante kom inn á markaðinn, hafi heimsending verið kölluð ógn við lýðheilsu. „En þegar ríkið vill gera það þá heitir það þjónusta og það er auðvitað þannig að vínflaskan veit ekkert hver keyrir bílinn og það skiptir auðvitað engu máli. Þannig að ÁTVR verður bara eiginlega að velja, hún getur ekki bæði verið einhvers konar lýðheilsustofnun sem skreytir sig með fjöðrum fyrir að sinna lýðheilsu þjóðarinnar og verslun sem keppir um viðskiptavini. Hún verður bara að velja þarna á milli.“ Hann segir það liggja fyrir að sala í vínbúðunum hafi dregist saman. „Forstjórinn segist ekki hafa gögn um það hvað skýrist af minni neyslu. Það er reyndar þannig að neyslan hefur minnkað þrátt fyrir þetta sem er kallað aukna aðgengi að áfengi þannig að ég held reyndar að heimsending áfengis frá ÁTVR myndi ekki breyta neinu um neysluna.“ „Neyslan færist einfaldlega bara til og ÁTVR er ekki í tilvistarkreppu af því að fólk er að drekka minna. ÁTVR er bara í tilvistarkreppu af því að fólk hefur núna raunverulegt val og það eru önnur fyrirtæki sem bjóða betri þjónustu og eru búin að bjóða betri þjónustu í sex ár. Það tók sem sagt Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins sex ár að átta sig á því að stofnunin gæti mögulega veitt viðskiptavinum sínum betri þjónustu.“
Áfengi Netverslun með áfengi Mest lesið Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Fleiri fréttir Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og litlar upplýsingar Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Sjá meira