Norskir fjölmiðlar í hart við Meta Kjartan Kjartansson skrifar 27. október 2026 08:39 Fjölmiðlafyrirtæki víða um heim hafa bent á að nýir notendaskilmálar Meta leyfi stórfyrirtækinu að nota efni fjölmiðlanna eins og það lystir til þess að fóðra gervigreindarlíkön sín. Vísir/EPA Hagsmunasamtök norska fjölmiðlafyrirtækja freista þess nú að fá lögbann á nýja notendaskilmála bandaríska samfélagsmiðlarisans Meta fyrir fyrirtækjareikninga. Fjölmiðlarnir segja nýju skilmálana gefa Meta óheftan aðgang að öllu efni sem þeir framleiða og dreifa.
Nýju skilmálarnir taka gildi 20. nóvember. Í þeim felst að Meta fær leyfi til þess að safna og geyma allar greinar, myndir og myndbönd sem viðskiptavinir fyrirtækisins birta, ekki aðeins á samfélagsmiðlum Meta heldur einnig á eigin vefsíðum, þar á meðal það sem er læst á bak við áskrift. Þessu vilja norskir fjölmiðlar ekki una. Samtök norskra fjölmiðlafyrirtækja (MBL) krefjast þess nú að dómari í Osló leggi lögbann á innleiðingu nýju skilmálanna á meðan dómstóll sker úr um lögmæti þeirra. Norska ríkisútvarpið og sjónvarpsstöðin TV2 eru á meðal stefnenda. Fyrirtækin telja skilmála Meta stríða gegn norskum samkeppnislögum. „Þetta er misnotkun á markaðsráðandi stöðu og hindrar miðlun blaðamennsku til norsks almennings,“ segir Lene Eltvik Vindfeld, formaður samtakanna. Að minnsta kosti einn norskur fjölmiðill, staðarblaðið Fjallahljómur í Røros í Þrændalögum, hefur ákveðið að fara aðra leið. Eigendur þess hafa þegar tilkynnt að þeir ætli að slíta öll tengsl við Meta og eyða opinberri Facebook-síðu blaðsins um áramótin, að því er kemur fram í frétt norska ríkisútvarpsins. Frestuðu gildistökunni Meta frestaði gildistöku nýju skilmálanna í ljósi gagnrýni á þá. Fyrirtækið hefur sagst ætla að nýta tímann til þess að útskýra fyrir viðskiptavinum hvaða breytingar verða með nýju skilmálunum. Skilmálarnir gefa Meta þó ekki aðeins rétt á að nota höfundarréttarvarið efni fjölmiðla eins og fyrirtækinu lystir til þess að þjálfa gervigreindarlíkön sín heldur þrengja þeir enn frekar að fjölmiðlum á vinsælustu samfélagsmiðlum heims. Þannig þurfa fjölmiðlar að greiða sérstaklega fyrir að deila fleiri en tveimur færslum á mánuði. Meta hafði áður takmarkað verulega dreifingu frétta frá fjölmiðlum á Facebook.
Noregur Fjölmiðlar Meta Samfélagsmiðlar Gervigreind Dómsmál Mest lesið Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Norskir fjölmiðlar í hart við Meta Viðskipti erlent Níu systkini, móðir um tvítugt og símtalið sem ekkert foreldri vill fá Atvinnulíf Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Samstarf Kaldvík fær enn frekari frest Viðskipti innlent Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Viðskipti innlent 330 þúsund ársreikningum síðar er starfið enn jafn skemmtilegt Framúrskarandi fyrirtæki Núna er hægt að framvísa lófanum til að komast í ræktina Neytendur Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Norskir fjölmiðlar í hart við Meta EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Skoða að sameina Tesla og SpaceX Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Sýndu fljúgandi Roadster Netflix segir upp þúsund starfsmönnum Starfsmaður OpenAI rekinn fyrir njósnir Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Japanskir stýrivextir ekki eins háir í þrjátíu ár Hækkuðu stýrivexti í Bandaríkjunum í fyrsta skipti í þrjú ár Olíubirgðir að klárast og krísa líkleg Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Novo hættir að vera Nordisk Opinbera sinn fyrsta langloku-iPhone og boða verðhækkanir Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Greiða 4,3 milljarða vegna sölu persónuupplýsinga ChatGPT virkar á ný Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Setja gjald á hraðtískuvörur Apple fær nýjan forstjóra Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Sjá meira