Viðskipti erlent

Norskir fjöl­miðlar í hart við Meta

Kjartan Kjartansson skrifar
Fjölmiðlafyrirtæki víða um heim hafa bent á að nýir notendaskilmálar Meta leyfi stórfyrirtækinu að nota efni fjölmiðlanna eins og það lystir til þess að fóðra gervigreindarlíkön sín.
Fjölmiðlafyrirtæki víða um heim hafa bent á að nýir notendaskilmálar Meta leyfi stórfyrirtækinu að nota efni fjölmiðlanna eins og það lystir til þess að fóðra gervigreindarlíkön sín. Vísir/EPA

Hagsmunasamtök norska fjölmiðlafyrirtækja freista þess nú að fá lögbann á nýja notendaskilmála bandaríska samfélagsmiðlarisans Meta fyrir fyrirtækjareikninga. Fjölmiðlarnir segja nýju skilmálana gefa Meta óheftan aðgang að öllu efni sem þeir framleiða og dreifa.

Nýju skilmálarnir taka gildi 20. nóvember. Í þeim felst að Meta fær leyfi til þess að safna og geyma allar greinar, myndir og myndbönd sem viðskiptavinir fyrirtækisins birta, ekki aðeins á samfélagsmiðlum Meta heldur einnig á eigin vefsíðum, þar á meðal það sem er læst á bak við áskrift.

Þessu vilja norskir fjölmiðlar ekki una. Samtök norskra fjölmiðlafyrirtækja (MBL) krefjast þess nú að dómari í Osló leggi lögbann á innleiðingu nýju skilmálanna á meðan dómstóll sker úr um lögmæti þeirra.

Norska ríkisútvarpið og sjónvarpsstöðin TV2 eru á meðal stefnenda. Fyrirtækin telja skilmála Meta stríða gegn norskum samkeppnislögum.

„Þetta er misnotkun á markaðsráðandi stöðu og hindrar miðlun blaðamennsku til norsks almennings,“ segir Lene Eltvik Vindfeld, formaður samtakanna.

Að minnsta kosti einn norskur fjölmiðill, staðarblaðið Fjallahljómur í Røros í Þrændalögum, hefur ákveðið að fara aðra leið. Eigendur þess hafa þegar tilkynnt að þeir ætli að slíta öll tengsl við Meta og eyða opinberri Facebook-síðu blaðsins um áramótin, að því er kemur fram í frétt norska ríkisútvarpsins.

Frestuðu gildistökunni

Meta frestaði gildistöku nýju skilmálanna í ljósi gagnrýni á þá. Fyrirtækið hefur sagst ætla að nýta tímann til þess að útskýra fyrir viðskiptavinum hvaða breytingar verða með nýju skilmálunum.

Skilmálarnir gefa Meta þó ekki aðeins rétt á að nota höfundarréttarvarið efni fjölmiðla eins og fyrirtækinu lystir til þess að þjálfa gervigreindarlíkön sín heldur þrengja þeir enn frekar að fjölmiðlum á vinsælustu samfélagsmiðlum heims.

Þannig þurfa fjölmiðlar að greiða sérstaklega fyrir að deila fleiri en tveimur færslum á mánuði. Meta hafði áður takmarkað verulega dreifingu frétta frá fjölmiðlum á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×