Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Atli Ísleifsson skrifar 27. október 2026 08:36 Ragnheiður Hafstað Hauksdóttir og Páll L. Sigurjónsson. KEA Hotels Ragnheiður Hafstað Hauksdóttir hefur verið ráðin forstjóri Keahótela. Hún tekur við stöðunni af Páli L. Sigurjónssyni sem hefur stýrt félaginu frá stofnun þess árið 2000. Páll tekur við sem stjórnarformaður Keahótela.
Þetta kemur fram í tilkynningu. Þar segir að Ragnheiður taki við starfinu 1. nóvember 2026. Hún hefur verið framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs hjá félaginu frá árinu 2022. „Páll L. Sigurjónsson, einn af stofnendum Keahótela og forstjóri þess frá upphafi, tekur við sem stjórnarformaður af Jonathan B. Rubini, einum af eigendum félagsins. Keahótel ehf. var stofnað árið 2000 og hóf þá rekstur Hótels Kea á Akureyri. Undir stjórn Páls hefur félagið vaxið í eina af stærstu hótelkeðjum landsins. Keahótelin eru nú samtals tíu og eru sex þeirra í Reykjavík og fjögur á landsbyggðinni. Hjá félaginu starfa um 350 manns,“ segir í tilkynningunni. Haft er eftir Jonathan B. Rubini, fráfarandi stjórnarformanni, að hann vilji þakka Páli fyrir frábært starf og þá miklu uppbyggingu sem hann hafi leitt hjá Keahótelum undanfarinn rúman aldarfjórðung. „Undir hans stjórn hefur félagið vaxið úr rekstri eins hótels í öfluga hótelkeðju með starfsemi víða um land. Hann hefur byggt upp traustan grunn fyrir áframhaldandi vöxt. Það er mikill styrkur fyrir félagið að njóta áfram reynslu hans og þekkingar í hlutverki stjórnarformanns,“ segir Jonathan. Viðtæk reynsla Um Ragnheiði segir að hún hafi víðtæka stjórnunarreynslu á sviði sölu, þjónustu, markaðsmála og tækni. „Hún hóf störf hjá Vodafone árið 2004 og starfaði þar í fimmtán ár, síðast sem framkvæmdastjóri einstaklingssviðs. Síðar var hún framkvæmdastjóri stafrænnar þróunar og upplýsingatækni hjá Isavia. Hjá Keahótelum hefur Ragnheiður borið ábyrgð á sölu, markaðsmálum, tekjustýringu og innleiðingu nýrra tæknilausna. Hún er með B.S.-gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og situr í stjórn Samtaka ferðaþjónustunnar,“ segir í tilkynningunni. Réttur tími Páll segir að eftir 36 ár sem stjórnandi í ferðaþjónustu, hótel- og veitingarekstri finnist sér réttur tími til að skipta um gír. Ánægjulegt sé að Ragnheiður taki nú við keflinu. „Hún hefur gegnt lykilhlutverki í sölu- og markaðsmálum Keahótela og þekkir félagið og starfsemina vel. Ragnheiður hefur sterka sýn á sölu og þjónustu, auk tækniþekkingar sem nýtist vel við áframhaldandi þróun rekstrarins. Hún hefur jafnframt sýnt góða leiðtogahæfileika og ég er sannfærður um að hún muni leiða félagið af krafti áfram með okkar öfluga starfsfólki. Það er ánægjulegt að fela henni framkvæmdastjórnina og ég hlakka til áframhaldandi samstarfs í nýju hlutverki,“ segir Páll. Þá er haft eftir Ragnheiði að Páll hafi byggt upp sterkt félag og segist hún taka við góðu búi. „Ég hlakka til að takast á við nýtt hlutverk með öflugum hópi fólks sem býr yfir mikilli þekkingu og metnaði. Félagið stendur á traustum grunni og ég sé spennandi tækifæri til áframhaldandi vaxtar,“ segir Ragnheiður. Keahótel reka tíu hótel víðsvegar um landið. Í Reykjavík eru þau Hótel Borg, Apótek Hótel, Sand Hótel, Hótel Skuggi, Storm Hótel og Reykjavík Lights Hótel. Utan höfuðborgarinnar rekur félagið Hótel Kea á Akureyri, Sigló Hótel á Siglufirði, Hótel Kötlu við Vík og Hótel Grímsborgir í Grímsnesi.
Vistaskipti Ferðaþjónusta Hótel á Íslandi Mest lesið Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Norskir fjölmiðlar í hart við Meta Viðskipti erlent Níu systkini, móðir um tvítugt og símtalið sem ekkert foreldri vill fá Atvinnulíf Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Samstarf Kaldvík fær enn frekari frest Viðskipti innlent Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Viðskipti innlent 330 þúsund ársreikningum síðar er starfið enn jafn skemmtilegt Framúrskarandi fyrirtæki Núna er hægt að framvísa lófanum til að komast í ræktina Neytendur Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Sjá meira