Fótbolti

For­setinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í lands­liðinu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Cristiano Ronaldo sagði að Jorge Jesus hefði svikið sig þegar hann fékk ekki að koma inn á völlinn í leik í síðasta glugga.
Cristiano Ronaldo sagði að Jorge Jesus hefði svikið sig þegar hann fékk ekki að koma inn á völlinn í leik í síðasta glugga. Samsett/Getty

Cristiano Ronaldo er enn mikilvægur leikmaður fyrir portúgalska fótboltalandsliðið að mati forseta portúgalska knattspyrnusambandsins.

Pedro Proença, forseti portúgalska knattspyrnusambandsins, telur enn að Cristiano Ronaldo sé „lykilmaður“ í landsliðinu og er sannfærður um að fyrirliðinn muni leysa deilu sína við landsliðsþjálfarann Jorge Jesus og snúa aftur í hópinn.

Í nýafstöðnu landsleikjahléi yfirgaf Ronaldo, 41 árs, æfingabúðir Portúgals eftir að hafa lent upp á kant við landsliðsþjálfarann vegna lítils spilatíma.

Knattspyrnusamband landsins setti Ronaldo í tímabundið bann en endanleg refsing hefur ekki verið tilkynnt.

Á fundi í ráðhúsi Funchal, fæðingarbæjar Ronaldos, í tengslum við viðburð á vegum portúgalska sambandsins tjáði Proença sig um málið: „Við erum á heimaslóðum mestu gersemi sem portúgölsk knattspyrna hefur nokkru sinni alið af sér: Cristiano Ronaldo, fyrirliða okkar. Fyrirliðinn okkar, Cristiano Ronaldo, er einn af lykilmönnum okkar,“ sagði Proença.

Á fundinum lýsti Proença yfir bjartsýni á að Ronaldo gæti náð sáttum við Jorge Jesus, sem þjálfaði reynsluboltann á síðasta tímabili hjá Al Nassr þegar liðið vann sádiarabísku úrvalsdeildina.

Ronaldo birti yfirlýsingu skömmu eftir að hann yfirgaf landsliðið þar sem hann sakaði Jorge Jesus um að hafa „svikið loforð“ við sig.

Í sömu yfirlýsingu sagðist Ronaldo myndu sætta sig við hverja þá refsingu sem portúgalska knattspyrnusambandið ákvæði og bætti við að hann vildi enn spila fyrir landsliðið.

Portúgal á tvo leiki eftir í Þjóðadeild UEFA sem eru gegn Danmörku og Wales í nóvember.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×