Fótbolti

Aga­brot hafa ekki á­hrif á næsta lands­liðsval Arnars

Aron Guðmundsson skrifar
Arnar Gunnlaugsson á hliðarlínunni í leik gegn Eistlandi á dögunum.
Arnar Gunnlaugsson á hliðarlínunni í leik gegn Eistlandi á dögunum. Vísir/Getty

Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands, segir agabrot nokkurra leikmanna liðsins ekki hafa áhrif á landsliðsval hans fyrir næsta verkefni liðsins í næsta mánuði. Málinu sé lokið.

Arnar fór yfir málið í ítarlegu viðtali við Vísi þar sem að kom meðal annars fram hann væri sáttur með það hvernig tekið var á því, bæði innan leikmanna hópsins sem og KSÍ. Umræddir leikmenn hafi sýnt mikla iðrun. 

Landsliðsþjálfarinn hrósaði einnig landsliðsfyrirliðanum Orra Steini Óskarssyni fyrir hans frumkvæði í því að funda með leikmönnum liðsins eftir að málið kom upp og án aðkomu þjálfarateymisins. 

Það styttist í að Arnar muni opinbera landsliðshóp Íslands fyrir næsta verkefni liðsins sem eru tveir síðustu leikir Íslands í riðli sínum í C-deild Þjóðadeildarinnar sem fara fram í næsta mánuði. 

Klippa: Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval

Þið hafið augljóslega tekið á þessu máli innan hópsins eins og þú segir, leikmenn funda að frumkvæði fyrirliðans. Er þessu máli þá lokið  frá þínum bæjardyrum? Þetta er ekki að fara að hafa áhrif á landsliðsval þitt fyrir næsta glugga?

„Nei, alls ekki. Það eru bara engir eftirmálar af þessu lengur. Það er búið að díla við þetta, það er búið að loka þessu máli og ég er mjög ánægður með það hvernig þessu máli var lokað. Ég er ánægður að hafa ekki farið hina leiðina af því að fyrstu viðbrögð  voru: „Fokk, eruð þið brjálaðir“ og ég ætlaði að sýna mig og sanna núna, senda alla heim. En það var ekki rétta lausnin í þessu máli. Þannig að ég er mjög ánægður hvernig við tókumst á við þetta. Bæði KSÍ og ég sjálfur og leikmannahópurinn þannig að fyrir mér er málinu lokið.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×