Fótbolti

Flug Freys heldur á­fram: „Þetta er al­veg ó­trú­lega ljúft“

Sindri Sverrisson skrifar
Freyr Alexandersson reif Rosenborg upp úr miklum öldudal og heldur áfram að þoka liðinu upp á við.
Freyr Alexandersson reif Rosenborg upp úr miklum öldudal og heldur áfram að þoka liðinu upp á við. Getty/Craig Foy

Freyr Alexandersson hefur tekist að reisa norska stórveldið Rosenborg úr öskustónni og með 3-0 útisigri gegn Sarpsborg í dag, þrátt fyrir mikil forföll, hefur liðið nú náð í 28 af 36 stigum mögulegum undir stjórn Breiðhyltingsins.

„Þetta er alveg ótrúlega ljúft,“ sagði Freyr eftir sigurinn í dag en ekki virtist koma að sök að þrír af hans mönnum misstu af leiknum vegna leikbanns.

Aslak Witry, Adrian Pereira og Jonas Mortensen skoruðu mörk Rosenborgar sem nú hefur unnið níu af tólf deildarleikjum undir stjórn Freys eftir að hafa átt sína verstu byrjun í marga áratugi áður en hann tók við liðinu í sumar.

Gætu náð árangri sem enginn bjóst við

Þessi magnaði viðsnúningur gerir að verkum að Rosenborg er komið í bullandi baráttu um Evrópusæti og situr nú í 5. sæti með 37 stig, tveimur stigum á eftir Tromsö sem þó á leik til góða í dag og þremur á eftir Molde í 3. sætinu. Bodö/Glimt og Viking eru efst í algjörum sérflokki með 56 stig nú þegar sjö umferðir eru eftir.

„Ég er auðvitað meðvitaður um þetta. Allt í einu erum við komin í baráttu um þessi sæti. Það er eitthvað sem við áttum ekki von á, en við erum meðvituð um það,“ sagði Freyr í viðtali við TV 2.

Tap hjá gömlu lærisveinunum

Ekki gekk eins vel hjá hans gömlu lærisveinum í Brann í dag. Liðið tapaði 3-1 á útivelli gegn Vålerenga og er nú í 7. sæti með 29 stig, átta stigum á eftir Rosenborg.

Sævar Atli Magnússon og Eggert Aron Guðmundsson voru báðir í liði Brann en Kristall Máni Ingason í leikbanni og Kjartan Mar Kjartansson verður lengi frá keppni eftir að hann meiddist illa í hné á æfingu með U21-landsliðinu á dögunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×