Enski boltinn

Manzambi reyndist hetja Aston Villa

Aron Guðmundsson skrifar
Manzambi fagnar hér marki gegn Fenerbache fyrr í vikunni. Hann skoraði aftur í dag.
Manzambi fagnar hér marki gegn Fenerbache fyrr í vikunni. Hann skoraði aftur í dag. Vísir/Getty

Aston Villa gerði góða ferð norður í land á Bretlandseyjum þegar liðið hafði betur gegn Newcastle United, 1-0, er liðin mættust í Newcastle í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. 

Johan Manzambi reyndist hetja Aston Villa á 36. mínútu er hann skoraði markið sem skildi liðin að eftir stoðsendingu frá Joao Gomes. 

Lokatölur því 1-0 sigur Aston Villa og fylgdu lærisveinar Unai Emery þar með eftir góðri frammistöðu gegn Fenerbache í 6-0 stórsigri í Meistaradeild Evrópu í miðri viku.

Með sigrinum jafnar Aston Villa, Newcastle United að stigum. Bæði lið með átta stig í ellefta og tólfta sæti deildarinnar eftir sjö leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×