Fótbolti

„Hann sagði já takk“

Árni Jóhannsson skrifar
Lárus Orri Sigurðsson
Vísir / Anton Brink

Þjálfari Skagamanna, Lárus Orri Sigurðsson, viðurkenndi að leikur ÍA við Fram í kvöld hafi verið mjög erfiður þó svo að hans menn hafi verið einum manni fleiri lungan úr leiknum. ÍA náði að knýja fram sigur á lokaandartökunum 2-4.

„Það var sætt að ná að klára þennan leik“, sagði Lárus þegar hann var spurður út í hvort hann væri ekki mjög sáttur við að ná í sigur í leik sem stefndi í jafntefli 2-2.

„En þetta var erfitt. Við erum að spila á móti mesta skyndisóknarliði landsins og erum að eyða öllum leiknum á þeirra þriðjung. Þeir eru gífurlega öflugir að sækja hratt á liðin. Þetta var mjög erfitt því þeir eru mjög vel skipulagðir til baka og sterkir í föstum leikatriðum. Þannig að þó að við vorum fleiri allan leikinn þá var maður aldrei í rónni hvorki með að fara með eitt stig eða hvað þá þrjú. Þessi leikur var í jafnvægi alveg fram á loka mínútuna.“

ÍA sendi boltann fyrir oft og mörgum sinnum í fyrri hálfleik án þess að fá eitthvað út úr því. Fyrir leik sagði Lárus við blaðamann að Viktor Jónss. hefði verið veikur í vikunni og að hann taldi það ólíklegt að Viktor kæmi við sögu. Fannst Lárusi hann vera tilneyddur að setja hann inn?

„Hann er búinn að vera lasinn undanfarna daga og missa mikinn vökva. Ég spurði hann hvort hann sæi allar fyrirgjafirnar og hvort hann vildi koma inn á. Hann sagði já takk. Hann skoraði mark í lokin þannig að það gekk upp.“

„Eins og leikurinn þróaðist þá þurftum við framherja í boxið sem er góður í fyrirgjöfum. Mér fannst samt að það væru ekki nógu margir með honum. Margir boltar komu inn og þess vegna settum við Rafael inn á í lokin.“

Rafael Máni Þrastarson skoraði þriðja mark Skagamanna og kom þeim á sigurbraut í lokin. Hversu ánægður er Lárus með að hann hafi gripið tækifærið?

„Ég er mjög ánægður. Hann hefur verið mjög vaxandi en verið óheppinn með meiðsli fyrri hluta leiksins. Þetta er framtíðarleikmaður ÍA.“

Hvað gefa svona úrslit Skagamönnum með þetta stutt eftir af mótinu.

„Þetta er bara stemmning. Nú höfum við bara tapað einum leik í síðustu 11 held ég. Við erum komnir í fjórða sætið og nú er bara stefnan að halda því.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×