Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. október 2026 18:18 Garpur Ingason Elísabetarson ræðir hér við Egil Örn Gunnarsson hlaupara og þeir ræddu meðal annars um Steinda, Steinþór Hróar Steinþórsson. Vísir/Vilhelm/ Egill Örn Gunnarsson hlaupari leggur til að tekin verði upp „Steindavísitala“ sem væri eins konar viðmið fyrir alls konar íþróttakeppnir.
Egill Örn ræddi við Garp Ingason Elísabetarson í tengslum við útsendingu Vísis frá landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi sem fer fram í Elliðarárdalnum. Þeir ræddu um heimsmeistarabílinn sem hefur verið dýrmætur skjöldur fyrir útsendingarfólk þessa rúmu tvo sólarhringa sem keppnin hefur staðið yfir en Egill Örn spurði líka Garp og Tinnu Miljevic hvernig þeim liði enda búinn að vaka yfir Bakgarðshlaupinu þótt þau væru ekki að hlaupa sjálf. „Ég held við séum svolítið farin að röfla svolítið um ekki neitt hér og þar,“ sagði Garpur. „Vinkonan mín kallaði þetta þoku,“ sagði Tinna. „Þið verðið að halda áfram því ég vil ekki sjá ykkur hætta fyrr en við sjáum Íslandsmetið falla,“ sagði Egill Örn. Metið mun falla haldi hlaupararnir út til klukkan þrjú í nótt. Hvernig líst Egli á strákana sem eru enn að hlaupa en það eru þeir Guðjón Sigurðsson, Guðmundur Lúther Hallgrímsson og Gunnar Lárus Karlsson. „Ég verð bara að viðurkenna að þeir líta ekkert eðlilega vel út miðað við að þeir eru búnir að vera að hlaupandi í rúmlega tvo daga. Þetta er bara rugl,“ sagði Egill. Hefur mikla reynslu af hlaupum Egill hefur mikið vit og mikla reynslu af hlaupum en hann hefur hlaupið Laugaveginn á undir fimm klukkutímum og pælir í hlaupum út um allan heim. „Hvernig heldur þú að þú myndir vera í svona bakgarðskeppni?“ spurði Garpur. „Einu sinni var svarið mitt: Þetta er ekkert eðlilega létt. Svo hefur maður fengið að kynnast þessu betur. Þetta var bara vanþekking hjá mér. Ég held að ég yrði bara mjög móðursjúkur og ætti mjög erfitt með að vera svona lengi á fótum. Það lengsta sem ég hef farið eru hundrað kílómetrar og mig langaði mjög oft að hætta á þeirri vegferð,“ sagði Egill. „Þetta fyrirkomulag gerir manni mjög auðvelt að hætta á hverjum einasta hring og á hverjum einasta klukkutíma,“ sagði Egill. Stutta svarið er nei Garpur vildi fá að vita hvað þyrfti að gerast til að hann myndi reyna að hlaupa í bakgarðshlaupi. „Stutta svarið er nei en ég er forvitinn um bakgarðinn og hvað hann myndi gera við mann,“ sagði Egill. Hvað er það sem gefur sig fyrst? Er það hausinn eða skrokkurinn? „Það kæmi mér mjög á óvart ef strákarnir myndu nenna þessu einhvern tímann aftur yfir ævina. Þeir eru samt að fara að ná þessu meti. Ég hvet fólk til að koma og peppa þá inn í nóttina því við verðum að fá Íslandsmet,“ sagði Egill. Af hverju er þetta svona vinsælt? En af hverju eru svo margir að fylgjast með bakgarðinum? „Það er forvitni og fólki sem er að horfa á þetta heima finnst þetta vera geðveiki. Það skilur ekki hvað er í gangi hérna. Að vera úti í þessu veðri og vera að leggja heilsuna svona að veði, sagði Egill. „Þeir sem vita þeir vita. Fólk kynnist sjálfu sér í þessu og leggur hart að sér til að fara í þetta og ná langt í þessu,“ sagði Egill. Steindavísitalan Egill kallar eftir því að tekin verði upp Steindavísitala þar sem Steindi prófar alls konar íþróttir og markar hans árangur Steindavísitöluna. „Það ætti að vera til Steindavísitala og Steindavísitalan í bakgarðinum væri þá fimm hringir. Það er hvað venjulegur maður getur komið og gert. Ég sá að Steindi náði að hlaupa fimm hringi og þeir eru núna komnir í 52 hringi. Venjulegur maður getur komið hingað og farið fimm hringi. Við þyrftum að fá Steinda til að gera þetta þvert yfir íþróttir,“ sagði Egill en það má horfa á allt viðtalið hér fyrir ofan.
Bakgarðshlaup Mest lesið Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport „Hann kvartar yfir öllu“ Enski boltinn Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Körfubolti Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Íslenski boltinn Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn Fleiri fréttir Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Tottenham - Coventry | Komast heimamenn af botninum? Fram - ÍA | Heimamenn hafa ekki unnið í fimm leikjum Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Glódís Perla og félagar áfram með fullt hús á toppnum Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum UEFA gefur Infantino lokafrest til að afhenta lykilskjöl Semenyo frá í allt að átta vikur „Hann kvartar yfir öllu“ Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Frá út tímabilið vegna blóðtappa í lungum KA í hræðilegri stöðu og Kane verður að spila í kvöld Kane lentur og má spila í kvöld Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Mest pirrandi leikmaðurinn hrækti á andstæðing Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Norska tromman á heimsmeistaramótinu seldist fyrir margar milljónir Segir félagið ekki vera að styðja hann lengur Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Dagskráin í dag: Breiðablik getur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn Sextán ára stjarna Vals heillar Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Sjá meira