Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Sunna Sæmundsdóttir skrifar 16. október 2026 13:00 Drífa Snædal talskona Stígamóta kallar eftir endurmenntun í Landsrétti um reynsluheim kvenna. Vísir/Vilhelm Landsréttur hefur snúið við dómi héraðsdóms og sýknað mann af ákæru fyrir nauðgun. Konan hlaut margþætta áverka á borð við beinbrot. Talskona Stígamóta kallar eftir endurmenntun í Landsrétti og segir dóminn ótrúleg skilaboð út í samfélagið. Allt virðist mega ef rætt sé um BDSM.
Í dóminum er vísað til samskipta fólksins á Instagram þar sem maðurinn hafði greint konunni frá því að hann hefði áhuga á að beita hörku í kynlífi. Landsréttur taldi að af samskiptunum mætti ráða að konan hafi gert sér grein fyrir áhuganum og fyrir dómi sagði hann að þau hefðu rætt um mörk og sammælst um öryggisorð. Konan lýsti samskiptunum hins vegar á allt annan hátt og sagði að þau hefðu lítið rætt saman í eigin persónu. Í ákæru er því meðal annars lýst að maðurinn hafi slegið konuna í andlitið, þrýst hné sínu á efri hluta bringu hennar, tekið hana hálstaki og haldið kodda yfir andliti hennar. Konan hlaut meðal annars rifbeinsbrot, yfirborðsáverka á höfði, tognun í hálsi, öxl, mjóbaki og mjaðmagrind og heyrnartap. Maðurinn var sakfelldur fyrir nauðgun í héraðsdómi og dæmdur í fimm ára fangelsi en Landsréttur sneri niðurstöðunni við. Maðurinn var sýknaður og meirihluti dómara taldi gögn ekki sýna fram á að hann hefði af ásetningi valdið konunni meiðslum umfram það sem hann hafi mátt ætla að hún samþykkti. Drífa Snædal talskona Stígamóta segir dóminn einn þann mest sláandi sem hún hefur séð. „Þarna er um beinbrot að ræða og þá veltir maður fyrir sér hvernig þetta væri í einhverju öðru samhengi. Ef fólk væri búið að ákveða að útkljá eitthvað með handalögmálum og þetta væru beinbrot, er þá ekki hægt að kæra það? Á þetta bara við þegar karlar nauðga konum? Er einhver undirliggjandi kvenfyrirlitning þarna varðandi það að konur geti afsalað sér lífi og heilsu í hendur karlmanna og að það sé bara samþykkt?“ spyr Drífa. Endurmenntun um reynsluheim kvenna Drífa segir lögin skýr um að samþykki þurfi fyrir kynlífsathöfnum. Dómaframkvæmdin sé önnur. „Og síðan eru skilaboðin til karla, ef það er búið að segja BDSM-orðið, að þá greinilega má bara allt og það eru engin mörk,“ segir hún. „Þetta eru rosaleg skilaboð út í samfélagið.“ Þrír skipuðu dóminn, tveir karlar sem sýknuðu manninn og kona sem skilaði sératkvæði og vildi staðfesta sakfellingu héraðsdóms. Drífa segir það athyglisvert. „Ég held að það þurfi einhvers konar endurmenntun í Landsrétti um reynsluheim kvenna og hættu á að verða fyrir ofbeldi. Við erum að sjá ítrekað að Landsréttur er að snúa við dómum sem eru vel undirbyggðir í héraði og það þarf bara að fara að taka rannsókn á því hvernig þankagangur Landsréttar er þessa dagana.“
Kynferðisofbeldi Dómsmál Kynbundið ofbeldi Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Sjö ára dómur Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Innlent Fleiri fréttir Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Sjá meira