Innlent

Georg Páll er næsti for­seti ASÍ

Tómas Arnar Þorláksson og Bjarki Sigurðsson skrifa
Finnbjörn Hermannsson, fráfarandi forseti Alþýðusambands Íslands. Til hægri eru þeir sem eru nú í framboði til formanns þeir Arnaldur Grétarsson og Georg Páll Skúlason.
Finnbjörn Hermannsson, fráfarandi forseti Alþýðusambands Íslands. Til hægri eru þeir sem eru nú í framboði til formanns þeir Arnaldur Grétarsson og Georg Páll Skúlason. vísir/einar

Georg Páll Skúlason, formaður Grafíu var kjörinn nýr forseti Alþýðusambands Íslands á 47. þingi ASÍ núna rétt fyrir klukkan ellefu. Georg bar sigur úr býtum með 162 atkvæði á móti 127 atkvæðum og tekur því við af Finnbirni Hermannssyni sem forseti ASÍ næstu tvö árin.

Bjarki Sigurðsson, fréttamaður okkar, er á Hilton Reykjavík þar sem þingið fer fram og mun freista þess að ná viðtali við nýjan forseta þegar niðurstaða liggur fyrir. Fylgist með í beinni í spilaranum hér að neðan:

Í framboði til forseta voru þeir Arnaldur Grétarsson, mannfræðingur og samfélagsmiðlafræðingur sem hefur starfað á skrifstofu ASÍ, og Georg Páll Skúlason, formaður Grafíu. 

Þar sem að Georg bar sigur úr býtum er ljóst að Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, mun ekki draga framboð sitt til fyrsta varaforseta til baka en miklar deilur hafa staðið yfir um embættið síðustu daga. 

Fulltrúar munu greiða atkvæði um varaforseta seinna í dag en þar eru þær Halla Gunnarsdóttir og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, í framboði. Þær hafa farið mikinn á samfélagsmiðlum síðustu daga en Sólveig hefur til að mynda sakað Höllu um að reyna sölsa undir sig völd innan ASÍ og hefur Halla sagt orð Sólveigar um að draga eflingu úr sambandinu jaðra við hótanir.

Georg ávarpar nú salinn og þakkar fyrir stuðninginn. Hann kveðst spenntur að sjá hvaða þrír varaforsetar munu leiða starfið með honum og þakkar Arnaldi fyrir drengilega kosnignarbaráttu. Fólk rís úr sætum sínum fyrir Arnaldi sem klappar með salnum.

Hann þakkar jafnframt Finnbirni fyrir vel unnin störf og salurinn rís aftur úr sætum sínum. Hann lýkur máli sínu með því að kalla eftir því að fulltrúar ljúki þinginu með sæmd. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×