Georg Páll er næsti forseti ASÍ Tómas Arnar Þorláksson og Bjarki Sigurðsson skrifa 16. október 2026 10:34 Finnbjörn Hermannsson, fráfarandi forseti Alþýðusambands Íslands. Til hægri eru þeir sem eru nú í framboði til formanns þeir Arnaldur Grétarsson og Georg Páll Skúlason. vísir/einar Georg Páll Skúlason, formaður Grafíu var kjörinn nýr forseti Alþýðusambands Íslands á 47. þingi ASÍ núna rétt fyrir klukkan ellefu. Georg bar sigur úr býtum með 162 atkvæði á móti 127 atkvæðum og tekur því við af Finnbirni Hermannssyni sem forseti ASÍ næstu tvö árin.
Bjarki Sigurðsson, fréttamaður okkar, er á Hilton Reykjavík þar sem þingið fer fram og mun freista þess að ná viðtali við nýjan forseta þegar niðurstaða liggur fyrir. Fylgist með í beinni í spilaranum hér að neðan: Í framboði til forseta voru þeir Arnaldur Grétarsson, mannfræðingur og samfélagsmiðlafræðingur sem hefur starfað á skrifstofu ASÍ, og Georg Páll Skúlason, formaður Grafíu. Þar sem að Georg bar sigur úr býtum er ljóst að Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, mun ekki draga framboð sitt til fyrsta varaforseta til baka en miklar deilur hafa staðið yfir um embættið síðustu daga. Fulltrúar munu greiða atkvæði um varaforseta seinna í dag en þar eru þær Halla Gunnarsdóttir og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, í framboði. Þær hafa farið mikinn á samfélagsmiðlum síðustu daga en Sólveig hefur til að mynda sakað Höllu um að reyna sölsa undir sig völd innan ASÍ og hefur Halla sagt orð Sólveigar um að draga eflingu úr sambandinu jaðra við hótanir. Georg ávarpar nú salinn og þakkar fyrir stuðninginn. Hann kveðst spenntur að sjá hvaða þrír varaforsetar munu leiða starfið með honum og þakkar Arnaldi fyrir drengilega kosnignarbaráttu. Fólk rís úr sætum sínum fyrir Arnaldi sem klappar með salnum. Hann þakkar jafnframt Finnbirni fyrir vel unnin störf og salurinn rís aftur úr sætum sínum. Hann lýkur máli sínu með því að kalla eftir því að fulltrúar ljúki þinginu með sæmd.
ASÍ Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Sjö ára dómur Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Innlent Fleiri fréttir Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Sjá meira