Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 10. október 2026 07:37 Svona á kirkjan að líta út. Rétttrúnaðarkirkjan á Íslandi Rétttrúnaðarsöfnuðurinn á Íslandi segir fjármögnun kirkjubyggingar við Mýrargötu tryggða og allan undirbúning að baki. Ákvörðun borgarráðs um að afturkalla lóðaúthlutunina hafi komið söfnuðinum á óvart. Hann óskar eftir samtali við borgaryfirvöld um framhaldið.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá söfnuðinum vegna ákvörðunar borgarráðs frá 8. október og greint var frá í gærmorgun um að afturkalla úthlutun lóðarinnar að Mýrargötu 21–23. Undir yfirlýsinguna ritar Timur Zolotuskiy sóknarprestur. „Við erum tilbúin að hefjast handa og fjármögnun liggur fyrir. Ef við fengjum byggingarleyfið á morgun gætum við hafið framkvæmdir á morgun,“ segir hann. Söfnuðurinn segist hafa átt í virkum og reglubundnum samskiptum við Reykjavíkurborg vegna framkvæmdanna undanfarin ár. Síðustu verkfræðiteikningarnar hafi verið samþykktar hjá borginni 7. september síðastliðinn. Borgin hafi óskað eftir tímaáætlun fyrir næsta áfanga. Því hafi verið svarað að undirbúningsvinnu væri lokið og aðeins byggingarleyfið vantaði. Segja tafir ekki stafa af áhugaleysi Í yfirlýsingunni eru færðar fram nokkrar skýringar á því að framkvæmdir hafi dregist á langinn. Kórónuveirufaraldurinn hafi tafið verkið um langt skeið og hönnuninni verið breytt til að koma til móts við nágranna. Meðal annars hafi fyrirhuguð bygging verið minnkuð. Þá hafi borgin nokkrum sinnum breytt deiliskipulagi svæðisins frá árinu 2008. Söfnuðurinn hafnar jafnframt því að lóðin hafi verið yfirgefin. Þar sé lítil timburkapella, helguð heilögum Nikulási, þar sem söfnuðurinn komi saman til bæna á hverjum sunnudegi. Lóðin hafi verið blessuð af háttsettum klerkum að viðstöddum Ólafi Ragnari Grímssyni, fyrrverandi forseta Íslands. „Í hugum trúaðra er lóðin þegar heilagur staður sem á sérstakan stað í hjörtum margra.“ Bjóða borgarstjóra og forseta til messu Fram kemur að yfir þúsund trúaðir sæki söfnuðinn árlega og að safnaðarfólk sé af tugum þjóðerna. Við sunnudagsmessur sé Faðirvorið beðið á að minnsta kosti tólf tungumálum. Söfnuðurinn telur vægari úrræði möguleg og biður yfirvöld að stíga varlega til jarðar. Hann vísar í því samhengi til leiðtogafundarins í Reykjavík fyrir fjörutíu árum og máttar samtalsins. „Við óskum eftir opnu samtali og samskiptum við öll yfirvöld og alla stjórnmálaflokka til að finna leið til að verkefnið, sem er fullhannað, geti orðið að veruleika.“ Borgarstjóra, forseta Íslands og fulltrúum allra stjórnmálaflokka er jafnframt boðið að kynna sér hönnunina og sækja guðsþjónustu safnaðarins. Hún er haldin að Öldugötu 44 á sunnudögum klukkan tíu.
Trúmál Reykjavík Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Fleiri fréttir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Sjá meira