Innlent

Harður á­rekstur á Norð­vestur­landi

Freyja Þórisdóttir skrifar
Höskuldur segir mikla umferð hafa verið á landshlutanum í dag en fjöldi fólks gerði sér ferð út á land um helgina. Unnið sé að því að opna aftur vegkaflann þar sem áreksturinn varð.
Höskuldur segir mikla umferð hafa verið á landshlutanum í dag en fjöldi fólks gerði sér ferð út á land um helgina. Unnið sé að því að opna aftur vegkaflann þar sem áreksturinn varð. Vísir/Viktor Freyr

Verulega harður árekstur tveggja bíla varð á sjötta tímanum á Hringveginum skammt frá Þrístöpum á Norðvesturlandi. Miklar bílaraðir hafa myndast en mikil umferð hefur verið á svæðinu í dag. Enginn er alvarlega slasaður en bílarnir tveir eru ógangfærir að sögn lögreglu.

Bílarnir skullu saman úr sirrhvorri akstursáttinni, staðfestir Höskuldur B. Erlingsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi Vestra, í samtali við blaðamann Vísis en hann segir ekki liggja fyrir um ástand ökumanna og farþega. Einnig er ekki vitað hve margir voru í bílunum.

Hann greinir frá því að áreksturinn hafi verið verulega harður og að bílarnir hafi hafnað utan vegar en viðbragðsaðilar eru enn á vettvangi. Ekki þótti nauðsynlegt að kalla úr þyrlu Landhelgisgæslunnar og telur Höskuldur engan lífhættulega slasaðan.

Fréttin er í vinnslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×