Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 2. ágúst 2026 12:04 Lilja Björg Ágústsdóttir er sveitarstjóri Dalabyggðar. Samsett Vestfjarðarvegur í gegnum Búðardal er einn fjölfarnasti vegur Vesturlands enda keyra flestir veginn sem eiga leið til Vestfjarða. Lilja Björg Ágústsdóttir sveitarstjóri Dalabyggðar segir sveitarstjórn hafa miklar áhyggjur af veginum og ástandi hans. „
Það eru blæðingar í honum, hann er þröngur og mjór á köflum, það vantar slitlag á kafla og það eru mjög djúpar holur víða.“ Sérstaklega sé vegkaflinn slæmur frá Erpsstöðum og að Haukadalsá en að sögn Lilju hefur verið á áætlun hjá Vegagerðinni að bjóða þann kafla út og endurnýja þar slitlag. Það hafi átt að gerast í vor en eigi nú ekki að gerast fyrr en í haust og segir Lilja það mikið áhyggjuefni. „Þetta mál bara þolir enga bið og hann er bara nánast ófær á köflum og það er búið að taka niður hraðatakmörkun á stóru svæði úr 90 niður í 70 og það er bara hættulegt að keyra hann á 70 þannig að þú þarft að keyra enn hægar en það.“ Lilja segir dæmi um að slys hafi orðið vegna ástandsins og segist hún óttast að þeim muni fjölga. „Þarna hafa orðið alvarleg slys og vegurinn er það mjór eiginlega bara alla leiðina að það er mjög erfitt að mæta til dæmis flutningabíl, hvað þá ef tveir flutningabílar mætast. Það er bara tímaspursmál hvenær það verður næst alvarlegt slys þarna.“ Dalabyggð sé víðfeðmt sveitarfélag og umferð aukist mikið, bæði vegna tilkomu vegar yfir Arnkötludal og eins vegna þungaflutninga vegna sjókvíaeldis á Vestfjörðum. „Það eru 70 prósent allra barna í Dalabyggð sem fara með skólabíl í skólann og það er töluvert af fólki sem býr á þessu svæði og þarf að nota þennan veg daglega. Þarna er líka mikil atvinnuuppbygging sem reiðir sig á þennan veg, meðal annars Rjómabúið Erpsstaðir sem fær 30 þúsund gesti í heimsókn á hverju ári, þannig þetta er mjög mikilvægur kafli fyrir sveitarfélagið,“ segir Lilja Björg Ágústsdóttir, sveitarstjóri Dalabyggðar.
Vegagerð Dalabyggð Umferðaröryggi Mest lesið Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Fella niður 26 flugferðir Innlent „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Segir stóra ákvörðun framundan Erlent Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Innlent Verkfall flugvirkja hafið Innlent Lögreglan leitar að Arturas Innlent Hvannadalshnjúkur lækkar Innlent Gular viðvaranir á morgun Veður Fleiri fréttir Verkfall flugvirkja hafið „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Hvannadalshnjúkur lækkar Líkamsárás í Breiðholti Fella niður 26 flugferðir Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Lögreglan leitar að Arturas Flugfreyjur og flugmenn styðja flugvirkja Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Bein útsending: Kynna nýtt áhættumat fyrir Grindavík Barn stakk sig á sprautunál á skólalóðinni „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Nýtt áhættumat: Bjóða Grindvíkingum að kaupa húsin til baka Flestir félagar vilji frekari kjarabætur vegna forsendubrests Kristján hótar lögsókn verði bann að lögum Hefja athugun á fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar Stefnir í aflýsingar á öllu morgunflugi frá Keflavík og Reykjavík Munu ekki samþykkja frekari hækkun launa Árleg framlög jukust um 286 milljónir en Sinfónían aftur rekin með tapi Segir ásakanir flugvirkja „furðulegar“ Neitar að tjá sig um hvort lög verði sett á verkfall Ekkert í afkomu fyrirtækja sem sýni virðingu fyrir kjarasamningum Þokast æ fjær loftslagsskuldbindingum Íslands Leita lausnar áður en verkfall hefst á miðnætti Boða stórsókn í skóla- og menntamálum í Reykjavík Bein útsending: Kynnir nýjar losunartölur Nauðgaði sofandi sambýliskonu sinni og tók myndir Sjá meira