Innlent

Enn brotist inn í mið­bænum

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Mikill fjöldi innbrota hafa verið tilkynnt til lögreglu undanfarið í miðborginni.
Mikill fjöldi innbrota hafa verið tilkynnt til lögreglu undanfarið í miðborginni. Vísir/Vilhelm

Tilkynnt var um enn eitt innbrotið í fyrirtæki miðsvæðis í Reykjavík í dag. Fjallað hefur verið um þráláta hrinu innbrota í miðborginni undanfarið.

Greint er frá innbrotstilkynningunni í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Innbrotið átti sér stað að því er þar segir í umdæmi lögreglustöðvar eitt sem nær yfir miðbæinn, austurbæinn, vesturbæinn og Seltjarnarnes.

Þrír hið minnsta hafa verið handteknir vegna fjölda innbrota í miðborg Reykjavíkur undanfarnar vikur en samkvæmt lögreglu er ekki um skipulagða glæpastarfsemi að ræða heldur tilviljunarkennd innbrot. Að minnsta kosti sextíu innbrot í miðborginni hafa verið tilkynnt til lögreglu.

Hefur verið brotist inn hjá þér eða einhverjum sem þú þekkir? Eða ertu með aðrar ábendingar? Sendu okkur fréttaskot.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×