Fræða almenning í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar Sigurgeir Þorkelsson skrifar 6. júlí 2026 17:07 Kristín Edwald er formaður landskjörstjórnar og Skúli Bragi Geirdal er verkefnastjóri hjá Netvís Samsett Landskjörstjórn og Netvís – Netöryggismiðstöð Íslands hafa tilkynnt um opnun nýrra vefsvæða í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu í lok ágúst um hvort taka eigi upp þráðinn á ný í aðildarviðræðum við Evrópusambandið, þrettán árum síðar.
Tilgangur nýs fræðsluvefs Netvíss er að efla gagnrýna hugsun og miðlalæsi og hjálpa almenningi að greina atvik þegar reynt er að hafa óeðlileg áhrif á lýðræðislega umræðu. Greint er frá aðferðum sem beitt er á netinu til að móta eða afvegaleiða samfélagsumræðu í lýðræðisríkjum. Meðal viðfangsefna vefsins eru gervigreind, djúpfalsanir, þjarkar (eða bottar) og upplýsingaóreiða sem er ætlað að höfða til tilfinninga fólks. „Við getum öll lagt okkar af mörkum til að draga úr áhrifum upplýsingaóreiðu. Við vonum að þessi vefur verði fólki góður stuðningur", er haft eftir Skúla Braga Geirdal, sviðsstjóri hjá Netvís, í tilkynningu. Landskjörstjórn veitir hlutlausar upplýsingar Landskjörstjórn hefur yfirumsjón með kosningum á Íslandi og annast framkvæmd kosningalaga. Hinn nýja vef má finna með því að slá inn kosningar.is og má þar nálgast hlutlausar upplýsingar um málefnið til að aðstoða kjósendur við að taka upplýsta afstöðu í komandi atkvæðagreiðslu. Á vefnum má meðal annars finna dálk þar sem farið er yfir hvað gerist ef meirihluti svarar „já“ og hvað gerist ef meirihluti svarar „nei“. Segir þar að ef meirihluti svari nei: „Þá hefjast ekki aðildarviðræður við Evrópusambandið.“ Kemur þar einnig fram að ef meirihluti svari játandi hafi ríkisstjórnin boðað að haldin verði önnur atkvæðagreiðsla um samninginn og að breyta þyrfti stjórnarskránni áður en hægt væri að ganga í Evrópusambandið. Breytingar á stjórnarskrá krefjast samþykkis tveggja þinga, þar sem boðað hefur verið til alþingiskosninga á milli. Á vefnum má einnig finna hagnýtar upplýsingar um framkvæmd kosninga. Kynningarbæklingi um þjóðaratkvæðagreiðsluna verður síðan dreift á öll heimili í ágúst.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Netöryggi Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Fleiri fréttir Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Sjá meira