Rektorarnir svara fyrir sig Rektorar allra háskóla á Íslandi segja fullyrðingu í Morgunblaðinu um að Evrópusambandið hafi keypt sér hollustu fræðimanna sem hafi aflað sér styrkja úr evrópskum samkeppnissjóðum ranga. Þeir segja erlenda rannsóknastyrki ekki merki um hollustu við ákveðin stjórnmálasjónarmið. Innlent 10.9.2026 11:21
Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Fulltrúar stjórnarandstöðunnar í utanríkismálanefnd segja að utanríkisráðherra hafi ekki haft samráð við hana um bréf sem ráðherrann sendi Evrópusambandinu. Þeir krefjast nýs fundar með ráðherranum vegna þess. Innlent 10.9.2026 09:44
„Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Utanríkisráðherra sendi fjarhægrimönnum í Evrópu pillu í ræðu á Alþingi í kvöld og sagði þá ekki fá að skilgreina hvað niðurstaða nýafstaðinnar atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB þýði. Í skugga þjóðaratkvæðagreiðslunnar býst ráðherrann við „þverpólitískri samstöðu“ um bæði EES-samninginn og auðlindaákvæði í stjórnarskrá á komandi þingvetri. Innlent 9.9.2026 20:58
Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Bandaríkjaforseti er ekki einn um það að líta hýru auga til Grænlands. Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, er sögð munu í heimsókn sinni í dag boða aukinn fjárstuðning við Grænland. Þetta gerist í skugga hótana Bandaríkjaforseta um að leggja undir sig eyjuna. Erlendir miðlar setja þetta einnig í samhengi við nýafstaðna atkvæðagreiðslu þar sem Íslendingar höfnuðu aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Erlent 6. september 2026 14:05
Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Kratinn, upplýsingavettvangur þingflokks Samfylkingarinnar, telur að þjóðaratkvæðagreiðslan um aðildarviðræður við Evrópusambandið hafi styrkt stöðu flokksins. Í greiningu sem send var félagsmönnum er fylgistap nokkurra flokka sett í samhengi við afstöðu þeirra til viðræðnanna. Fylgisþróunin var þó ólík hjá flokkum sem stóðu sömu megin. Innlent 4. september 2026 14:16
Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Annar hlaðvarpsstjórnanda breska hlaðvarpsins Rest is Politics veltir því upp hvort skortur á forystu Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra hafi orðið til þess að ekki tókst að fá meirihluta Íslendinga til þess að kjósa já í þjóðaratkvæðagreiðslu síðustu helgi. Hinn stjórnandinn segir ljóst að um mikinn sigur sé að ræða fyrir Vladimír Pútín forseta Rússlands. Innlent 4. september 2026 14:00
Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Stjórnmálafræðingur og prófessor í fjölmiðlafræði segir óljóst hver eftirmál þjóðaratkvæðagreiðslunnar um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið eigi að vera. Þau eigi þó eftir að hafa áhrif á þingveturinn framundan. Innlent 3. september 2026 21:37
Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Ábendingar og kvartanir hafa borist Persónuvernd vegna nýliðinnar þjóðaratkvæðagreiðslu. Tekin verður ákvörðun um hvert framhaldið verður á næstu dögum. Ábendingarnar varða símhringingar, sms og tölvupósta til einstaklinga. Innlent 3. september 2026 16:22
Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Margt er hægt að kaupa fyrir peninga: Flottan bíl, nuddpott, þjóðaratkvæðagreiðslu ... Greiðendur húsnæðislána gerðu sér margir vonir um að kaupa eitthvað fínt fyrir peninginn sem yrði afgangs af ráðstöfunartekjunum þegar Ísland gengi í Evrópusambandið og tæki upp evru. Eftir nýliðna þjóðaratkvæðagreiðslu sjá þeir hins vegar fram á að búa við núverandi ofurvexti um aldir alda. Lífið 3. september 2026 07:03
Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Samskiptastjóri ESA segir mögulegt að Íslandi verði stefnt fyrir EFTA-dómstólinn vegna þess að bókun 35 við EES-samninginn hefur ekki verið innleidd hér á landi. ESA meti næstu skref í málinu en hafi ekki tekið ákvörðun. Nýliðin þjóðaratkvæðaatkvæðagreiðsla hafi ekki áhrif á ákvarðanir ESA. Innlent 2. september 2026 16:17
Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Forysta Viðreisnar segir flokkinn bera meiri ábyrgð en áður á að gæta hagsmuna þeirra sem vildu halda aðildarviðræðum við Evrópusambandið áfram. Flokkurinn verði áfram rödd þessa fólks í stjórnmálaumræðunni og við ríkisstjórnarborðið. Innlent 2. september 2026 11:14
Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Forsætisráðherra segir að ríkisstjórnin muni leggja áherslu á EES- samninginn á haustþingi. Fram hefur komið að stjórnarandstaðan ætlar að leggja fram þingsályktunartillögu um að draga umsókn Íslands í Evrópusambandið formlega til baka dragi geri ríkisstjórnin það ekki sjálfviljug. Innlent 1. september 2026 19:02
Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Tvær helstu fylkingarnar sem tóku þátt í kosningabaráttunni fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna um helgina sendu samanlagt á sjöundu milljón króna úr landi til bandaríska samfélagsmiðlarisans Meta. Aragrúi samtaka og einstaklinga eyddi lægri fjárhæðum í auglýsingar á miðlum Meta. Innlent 1. september 2026 14:50
Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins segir Sjálfstæðisflokkinn, Miðflokk og Framsóknarflokk ætla að leggja fram þingsályktunartillögu þegar þing kemur saman eftir helgi um að draga umsókn Íslands í Evrópusambandið formlega til baka dragi ríkisstjórnin umsóknina ekki til baka. Rætt var við Guðrúnu um málið í kvöldfréttum Sýnar í gær. Innlent 1. september 2026 08:51
Enn óljóst hvað verður um umsóknina Enn er óljóst hvað ríkisstjórnin hyggst fyrir með umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu. Utanríkisráðherra segir eðlilegt að málið verði rætt áfram í utanríkismálanefnd og forsætisráðherra segir að skoða þurfi hvernig eðlilegast sé að loka ferlinu. Formenn stjórnarandstöðuflokkanna boða þingsályktunartillögu um að draga umsóknina til baka. Innlent 31. ágúst 2026 23:00
Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Þýski utanríkisráðherrann Johann Wadepuhl segist harma það að Íslendingar hafi hafnað í atkvæðagreiðslu að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Hann telur þetta til marks um að Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi. Erlent 31. ágúst 2026 18:38
Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Utanríkisráðherra segir að ekkert hafi verið á ákveðið á fundi utanríkismálanefndar, sem boðað var til í morgun. Til umræðu var hvort draga ætti umsókn Íslands að Evrópusambandinu formlega til baka og bókun 35. Formaður Miðflokksins segir að það væri með ólíkindum ef bókunin yrði keyrð í gegnum þingið í kjölfar afgerandi niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um helgina. Innlent 31. ágúst 2026 15:49
Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Margir, þeirra á meðal Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins, sögðu að nýafstaðin þjóðaratkvæðagreiðsla yrði til þess að reka flein í heilu fjölskyldurnar. Vísir hefur heyrt af nokkrum hjónaböndum sem fóru í gegnum þennan hreinsunareld og tók púlsinn á tveimur þeirra – og ekki er annað að heyra en að samböndin hafi staðið þennan slag af sér. Lífið 31. ágúst 2026 15:46
„Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Andstæðingar Evrópusambandsaðildar í Noregi fagna niðurstöðu í þjóðaratkvæðagreiðslunni á Íslandi um helgina. Norskur prófessor með tengsl við Ísland segist telja að hægri- og forréttindakreðsur hafi sannfært þá sem minna mega sín um að kjósa gegn aðildarviðræðum. Erlent 31. ágúst 2026 11:09
Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Skráðu sjávarútvegsfélögin þrjú hafa lækkað í fyrstu viðskiptum í Kauphöllinni eftir niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið. Viðskipti innlent 31. ágúst 2026 10:39
Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Bandarísk stjórnvöld segja Ísland áfram mikilvægan bandamann innan Atlantshafsbandalagsins og að Bandaríkin virði niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar og fullvalda ákvörðun þjóðarinnar. Innlent 30. ágúst 2026 23:50
Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Formaður Sjálfstæðisflokksins segir Valkyrjur hafa tapað kosningunum sem fram fóru í gær, þær séu ekki með nokkru móti sigurvegarar. Hún segir kosningabaráttu SJÁ hafa verið á skjön við það sem forsætisráðherra hefur áður sagt í þinginu. Sú síðarnefnda biðlar til stjórnarandstöðunnar að sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr um hvað málið snúist. Innlent 30. ágúst 2026 22:27
Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra skoraði á Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Miðflokksins, að gerast fyrsti flutningsmaður frumvarps um bókun 35 við EES-samningsins. Sigmundur tók ekki vel í hugmyndina. Innlent 30. ágúst 2026 21:11
Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi þingmaður og ráðherra Samfylkingarinnar, segir að sjálfur hefði hann ekki flýtt þjóðaratkvæðagreiðslunni um áframhaldandi viðræður við Evrópusambandið. Hann segir ESB líklega enn vilja Ísland inn og telur ólíklegt að þau láti Ísland finna fyrir því fyrir að hafna sambandinu í gær. Innlent 30. ágúst 2026 18:30