Þjóðar­at­kvæða­greiðsla um ESB-viðræður

Fréttamynd

Hvað vakir fyrir ríkis­stjórninni?

Áður en þjóðin veitir ríkisstjórninni umboð til að hefja aðildarviðræður hlýtur hún því að eiga rétt á skýru svari við einfaldri spurningu: Hvaða markmið hyggst ríkisstjórnin leggja fram fyrir hönd Íslands í mögulegum viðræðum við Evrópusambandið?

Umræðan
Fréttamynd

Segir ó­tíma­bært að ræða undan­þágur

Utanríkisráðherra Frakklands segir ótímabært að ræða hugsanlegar undanþágur Íslands frá fiskveiðistefnu Evrópusambandsins og telur Íslendinga hafa engu að tapa segi þeir „já“ í ágúst. Hann átti í dag fund með utanríkisráðherra Íslands, sem segir slíkar undanþágur ekki hafa borið á góma í samræðum þeirra.

Innlent
Fréttamynd

Spunameistarinn Alastair Campbell mærir ís­lenska sumarsuddann

Breski spunameistarinn og hlaðvarpsstjórnandinn Alastair Campbell, sem var lengi vel talsmaður Tony Blair, er staddur á Íslandi til að taka viðtal við Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra. Campbell er feginn að komast undan hitanum á Bretlandi í kuldann og rigninguna á Íslandi.

Lífið
Fréttamynd

Gréta María og Hrund til liðs við Sjá

Samtökin Sjá, sem berjast fyrir því að þjóðin segi já við áframhaldandi aðildarviðræðum við ESB í ágúst, hafa fengið liðsauka með komu Grétu Maríu Grétarsdóttur, fyrrverandi forstjóra Prís, og Hrundar Rudólfsdóttur, framkvæmdastjóra Sólvalla rekstrarfélags, í stjórn hreyfingarinnar. Fyrir í stjórn eru þau Jónas Hagan, Hjálmar Vilhjálmsson og Berglind Guðmundsdóttir.

Innlent
Fréttamynd

Á­fram Ís­land með opinn fund á Skaganum

Samtökin Áfram Ísland, sem berjast fyrir því að þjóðin segi nei við áframhaldandi aðildarviðræðum við Evrópusambandið, blása til opins fundar í Brekkubæjarskóla á Akranesi klukkan 17. Fundinn má sjá í beinni útsendingu hér á Vísi.

Innlent
Fréttamynd

„Þetta voru al­gjör­lega mann­leg mis­tök“

Margrét Rós Sigurjónsdóttir, sem fullyrti í gær í myndskeiði á Instagramsíðu SJÁ að mjólkurlítrinn kostaði 380 krónur, segir að um mannleg mistök hafi verið að ræða og málið allt sé „svolítið vandræðalegt.“

Innlent
Fréttamynd

Ein­faldur seðill flýtir ekki lokatölum

Þrátt fyrir að einungis ein spurning verði á kjörseðlinum í þjóðaratkvæðagreiðslunni í ágúst er ekki víst að lokatölur liggi fyrr fyrir en í hefðbundnum kosningum. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst eftir rúma viku.

Innlent
Fréttamynd

Sögðu mjólkur­fernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu

Fulltrúa samtakanna SJÁ, sem berjast fyrir því að þjóðin greiði atkvæði með því að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný, varð á í messunni í myndskeiði á Instagram þegar hann sagði mjólkurlítrann á Íslandi kosta 380 krónur. Hið rétta er að í Bónus kostar hann 234 krónur. Myndskeiðinu hefur nú verið eytt.

Innlent
Fréttamynd

„Af og frá“ að Ís­land fram­selji lög­gjafar­valdið með inn­göngu

Prófessor við lagadeild Háskólans á Akureyri telur að ef verði af inngöngu Íslands í Evrópusambandið sé þjóðin ekki sömuleiðis að framselja löggjafarvaldið. Hins vegar felist í því að framselja dómsvaldið að hluta. Lagalega séð séu undanþágur frá samningnum mögulegar en á sama tíma séu þær háðar pólitískum vilja.

Innlent
Fréttamynd

Upp­taka evru myndi ekki einungis hafa á­hrif á vexti

Prófessor í hagfræði og fyrrverandi viðskiptaráðherra segir kostnaðinn við kortanotkun og aðra greiðslumiðlun vera háan á Íslandi og talsvert hærri en í nágrannalöndum. Telur hann að þessi kostnaður myndi lækka við upptöku evru þar sem Íslendingar myndu njóta hagkvæmni stórrekstrar í ríkari mæli.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

„Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlut­laus“

Nýr vefur sem á að auðvelda kjósendum lífið í aðdraganda kosninga um aðildarviðræður við Evrópusambandið hefur litið dagsins ljós. Formaður landskjörstjórnar segir hlutlausar upplýsingar mikilvægar þegar um jafn mikið hitamál sé að ræða. 

Innlent
Fréttamynd

ESB-deilan harðnar eftir um­mæli er­lendra ráða­manna

Hart var tekist á um Evrópusambandið, sjávarútveg og mögulegar sérlausnir Íslands í aðildarviðræðum þegar Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi utanríkisráðherra, og Dagbjört Hákonardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar sem á sæti í utanríkismálanefnd, ræddu málið í Reykjavík síðdegis í dag.

Innlent
Fréttamynd

„Þá sé þetta sem næst úti­lokað“

Innganga Íslands í Evrópusambandið er svo gott sem úr myndinni áður en gengið er til hugsanlegra aðildarviðræðna. Þetta segir framkvæmdastjóri SFS í ljósi þess að forsætisráðherra Hollands tjáði sig um kröfu Íslands um undanþágu frá sjávarútvegsstefnu sambandsins. 

Innlent
Fréttamynd

Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert of­boðs­lega fréttnæmar

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, telur nokkuð ófréttnæmt að Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti lýðveldisins, tali fyrir því að fólk svari neitandi í þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort taka eigi upp aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný. Það sé vegna þess að hann hafi á sínum stjórnmálaferli verið hrifnari af því að segja „nei“ en „já“.

Innlent
Fréttamynd

Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar

Hafrúnu Kristjánsdóttur, prófessor í sálfræði, brá í brún þegar hún skrollaði um Facebook í gær og sá að verið væri að líkja Ólafi Ragnari Grímssyni, fyrrverandi forseta lýðveldisins, við engan annan Adolf Hitler. Hún hvetur fólk til að vera kurteisara í umræðunni nú þegar minna en tveir mánuðir eru til þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort taka eigi upp aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný.

Innlent
Fréttamynd

Ís­land skari fram úr ESB á flestum mæli­kvörðum

Ísland stendur heilt yfir mjög vel í samanburði við ríki Evrópusambandsins þegar horft er til lífskjara, kaupmáttar, atvinnuþátttöku, framleiðni og opinberra fjármála. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri greiningu Konráðs Guðjónssonar hagfræðings hjá Kontext.

Innlent
Fréttamynd

Evru-Ísland óskalandið hve­nær kemur þú?

Ræða Ólafs Ragnars Grímssonar, fyrrverandi forseta á stofnfundi Áfram Ísland, samtök sem berjast fyrir Nei-i í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort taka eigi upp aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný, þykir á sumum bæjum einhver mesta þrumuræða sem haldin hefur verið á Íslandi.

Innlent
Fréttamynd

„Þetta er eins og á tón­listar­há­tíð“

Haraldur Ólafsson, formaður Heimssýnar, sótti stofnfund samtakanna Áfram Ísland í gær. Bæði félög munu tala fyrir málstað nei-sinna í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB. Haraldur fagnar stofnun samtakanna: „Þetta er algjörlega dásamlegt, bestu tíðindi vikunnar.“

Innlent
Fréttamynd

„Enginn búið til fleiri þjóðar­at­kvæða­greiðslur en ég“

Fjölsóttur stofnfundur samtakanna Áfram Ísland fór fram síðdegis. Um átta hundruð manns sóttu fundinn og var húsfyllir var í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll. Samkvæmt fyrsta ræðumanni og fundarstjóra, Halldóri Benjamín Þorbergssyni, hafa á þriðja þúsund skráð sig í samtökin.

Innlent
Fréttamynd

„Hver vill ganga í gjald­þrota ríkja­sam­band?“

„Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ spyr Kristján Loftsson, eigandi Hvals ehf., í viðtali við breska blaðið The Telegraph. Blaðið slær því upp að ríkisstjórn Íslands sé tilbúin til að banna hvalveiðar til að auðvelda inngöngu í ESB. Ísland sé eitt þriggja landa, auk Noregs og Japans, sem enn geri slíkt eftir að Alþjóðahvalveiðiráðið lagði bann við hvalveiðum árið 1986.

Innlent
Fréttamynd

Enda­laust þvaður gæti fælt kjós­endur frá

Almannatengill segir að ef upplýsingar um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild Íslands að Evrópusambandinu séu óskýrar eða ef á reiki sé um hvað kosið er geti það leitt til aðgerðarleysis að hálfu kjósenda. 

Innlent
Fréttamynd

Guð­laugur segir Þor­gerði á hröðum flótta

Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður telur einsýnt að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra veigri sér við að mæta sér í kappræðum um þjóðaratkvæðagreiðsluna um aðildarviðræður við ESB sem fram eiga að fara í lok ágústmánaðar.

Innlent