Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 4. júlí 2026 12:07 Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra ræðir um þjóðaratkvæðagreiðsluna. vísir/vilhelm Það var með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þetta segir forsætisráðherra sem telur fólk þurfa að fá að vera í friði til að melta sína ákvörðun. Þingið hafi tjáð sig lengi um málið.
Nokkuð hefur verið deilt um þá tímasetningu sem ríkisstjórnin valdi fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður að Evrópusambandinu. Líkt og flestum er kunnugt fá landsmenn að segja nei eða já við aðildarviðræður þann 29. ágúst og hefur stjórnarandstaðan meðal annars sagt tímasetninguna óheppilega í ljósi þess að landsmenn verða flestir í sumarfríi vikurnar fyrir atkvæðagreiðsluna auk þess sem umræðuþættir eru margir hverjir sömuleiðis í sumarleyfi. Alþingi er einnig í sumarleyfi og verða því engar umræður um málið þar á næstu vikum. Fólk þurfi að fá að vera í friði með sína ákvörðun Forsætisráðherra segir mikilvægt að fólk fái rými til að þessa ákvörðun fyrir sig sjálf. „Núna fáum við nokkrar vikur yfir sumarið þar sem er smá hlé frá pólitíkinni og þetta er ástæðan fyrir því að við vildum gera þetta þannig. Fólk þarf líka bara að fá að vera smá í friði með þetta. Fólk er vel læst og skynsamt hér á Íslandi, það getur kynnt sér þessi mál í friði,“ sagði Kristrún Frostadóttir. Það var sem sagt viljandi gert að hafa tímasetninguna þannig að þingið myndi aðeins þegja um þetta mál og almenningur taka við? „Þingið er búið að tjá sig um þetta mál frá því að við tókum við völdum á sínum tíma. Það er allt í lagi að gefa þjóðinni smá tíma til að melta hluti í friði. Þingmenn verða eflaust á útopnu í allt sumar hvað það varðar.“ „Þetta er góður tími til að fara í atkvæðagreiðslu. Ég held að það sé líka gott að við förum þá í nýtt þing vitandi bara er þetta af eða á. Hellum við okkur í þetta verkefni samhliða öðrum verkefnum eða setjum við þetta til hliðar.“ Fréttin hefur verið leiðrétt. Í hádegisfréttum Bylgjunnar var sagt að atkvæðagreiðslan væri um aðild en rétt er að kosið verður um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Fleiri fréttir Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Sjá meira