Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Áróra L Davíðsdóttir skrifar 3. september 2026 21:37 Birgir Guðmundsson, prófessor í stjórnmála- og fjölmiðlafræði, segir fjörugan þingvetur í vændum. Samsett Stjórnmálafræðingur og prófessor í fjölmiðlafræði segir óljóst hver eftirmál þjóðaratkvæðagreiðslunnar um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið eigi að vera. Þau eigi þó eftir að hafa áhrif á þingveturinn framundan. „
Við urðum vitni að því að menn eru búnir að vera í hitagír í allt sumar meira og minna. Ég held að það taki smá tíma að kólna í kolunum. Þó að það sé búið að grilla þá kólna kolin ekki alveg strax,“ segir Birgir Guðmundsson, prófessor í fjölmiðla- og stjórnmálafræði við Háskólann á Akureyri. Sum kolin séu þó heitari en önnur og þurfi lengri tíma til að kólna. Birgir segir niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar hafa verið nokkuð afgerandi miðað við í hvað stefndi. Þó hafi staðan verið nokkuð jöfn og mögulega hefði verið heppilegra hefði farið 60 prósent á móti 40 prósentum. Þá hefðu menn getað talað um afgerandi niðurstöður. Birgir Guðmundsson var til viðtals í Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni í dag. Hann telur að eftirmálar þjóðaratkvæðagreiðslunnar muni lita þingstörf vetrarins, sér í lagi ef ríkisstjórnin dregur ekki umsókn Íslands að Evrópusambandinu formlega til baka. Fram hefur komið að stjórnarandstaðan ætlar að leggja fram þingsályktunartillögu um að draga umsókn Íslands í Evrópusambandið formlega til baka geri ríkisstjórnin það ekki sjálfviljug. Stjórnarandstaðan muni ganga fast á eftir því að því verði fylgt eftir. Óljóst hvað eigi að „ganga langt“ Aftur á móti séu margir á því máli að óþarfi sé að loka dyrunum fyrir Evrópusambandið alveg vegna þess að nei-ið hafi ekki unnið með meira afgerandi hætti en raun ber vitni. „Það verður alveg örugglega einhver hasar í kringum þetta í þinginu,“ segir hann. Birgir segir það túlkunaratriði hverjir nákvæmlega eftirmálar þjóðaratkvæðagreiðslunnar eigi að vera. „Í sjálfu sér var kosið um hvort ætti að halda áfram viðræðum. Þannig að það er túlkunaratriði hvað á að ganga langt, hvort það eigi að hérna draga umsóknina til baka, fyrst hún var í gildi, eða ekki.“ Sjá einnig: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Fjörugur þingvetur í vændum Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sagði að ríkisstjórnin myndi leggja áherslu á EES-samninginn á komandi haustþingi. Birgir segir átakalínuna í þinginu færast frá umræðum um aðild að Evrópusambandinu og yfir í hversu langt Ísland eigi að ganga innan EES. „Menn vilja styrkja og tryggja það að EES-samningurinn verði áfram í gildi, að það verði engar svoleiðis misfellur í því og að við virðum hann meira heldur en við höfum gert. “ Ríkisstjórnin fari inn í þennan þingvetur með „tapið“ á bakinu þó formenn stjórnarflokkanna hafi snúið niðurstöðum þjóðaratkvæðagreiðslunnar í „hálfgerðan sigur“. Birgir býst við fjörugum þingvetri sama hvort Evrópumálin verði í brennidepli eða ekki. „Ef Evrópumálin fara út af dagskránni núna þá koma bara hin betur fram. Það eru efnahagsmálin og kjaramálin. Við erum ekki laus við kjarasamninga, verðbólgu, atvinnuleysi, háa vexti og allt þetta. Menn hljóta að fara að snúa sér að því.“
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Evrópusambandið Utanríkismál Bylgjan Reykjavík síðdegis Tengdar fréttir Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Forysta Viðreisnar segir flokkinn bera meiri ábyrgð en áður á að gæta hagsmuna þeirra sem vildu halda aðildarviðræðum við Evrópusambandið áfram. Flokkurinn verði áfram rödd þessa fólks í stjórnmálaumræðunni og við ríkisstjórnarborðið. 2. september 2026 11:14 Enn óljóst hvað verður um umsóknina Enn er óljóst hvað ríkisstjórnin hyggst fyrir með umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu. Utanríkisráðherra segir eðlilegt að málið verði rætt áfram í utanríkismálanefnd og forsætisráðherra segir að skoða þurfi hvernig eðlilegast sé að loka ferlinu. Formenn stjórnarandstöðuflokkanna boða þingsályktunartillögu um að draga umsóknina til baka. 31. ágúst 2026 23:00 Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Sjá meira
Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Forysta Viðreisnar segir flokkinn bera meiri ábyrgð en áður á að gæta hagsmuna þeirra sem vildu halda aðildarviðræðum við Evrópusambandið áfram. Flokkurinn verði áfram rödd þessa fólks í stjórnmálaumræðunni og við ríkisstjórnarborðið. 2. september 2026 11:14
Enn óljóst hvað verður um umsóknina Enn er óljóst hvað ríkisstjórnin hyggst fyrir með umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu. Utanríkisráðherra segir eðlilegt að málið verði rætt áfram í utanríkismálanefnd og forsætisráðherra segir að skoða þurfi hvernig eðlilegast sé að loka ferlinu. Formenn stjórnarandstöðuflokkanna boða þingsályktunartillögu um að draga umsóknina til baka. 31. ágúst 2026 23:00