Dómur burðardýrs mildaður Áróra L Davíðsdóttir skrifar 19. júní 2026 10:44 Maðurinn var dæmdur til þriggja og hálfs árs fangelsisvistar í Héraðsdómi Reykjaness fyrr á árinu fyrir að flytja inn þrjá lítra af kókaíni á vökvaformi. Vísir/Vilhelm Maður á fertugsaldri var dæmdur til þriggja og hálfs árs fangelsisvistar í héraðsdómi fyrr á árinu fyrir fíkniefnalagabrot. Málinu var skotið til Landsréttar en þar var refsing ákærða til endurskoðunar og dómur hans mildaður úr þremur og hálfu ári í þrjú ár.
Valentin Jemeljanov, Litái á fertugsaldri, var dæmdur til þriggja og hálfs árs fangelsisvistar í Héraðsdómi Reykjaness fyrr á árinu fyrir að flytja inn þrjá lítra af kókaíni á vökvaformi. Úr vökvanum mætti framleiða 3,5 kíló af kókaíni með styrkleika upp á 53 til 56 prósent. Maðurinn flutti efnin sem farþegi með flugi frá Lettlandi, falin í farangri sínum. Ríkissaksóknari skaut málinu til Landsréttar í febrúar á þessu ári. Þar var ákvæði héraðsdóms um refsingu mannsins til endurskoðunar en ákæruvaldið krafðist þess að refsing ákærða yrði þyngd. Í dómi Landsréttar var vísað til þess að maðurinn hefði gengist við þeirri háttsemi sem honum var gefin að sök og að innflutta efnið hafi jafngilt um 1,8 kílói af hreinu kókaíni. Með hliðsjón af því ákvað Landsréttur að milda dóm mannsins úr þremur og hálfu ári í þrjú ár. Þá segir að af fyrirliggjandi gögnum yrði ekki ráðið að maðurinn hafi verið eigandi nefndra fíkniefna eða tekið þátt í skipulagningu á kaupum og innflutningi þeirra til Íslands með öðrum hætti en þeim að samþykkja að flytja efnin til landsins gegn greiðslu. Ákvæði um að Valentin greiði allan sakarkostnað sé óraskað en að allur áfrýjunarkostnaður skuli greiðast úr ríkissjóði.
Keflavíkurflugvöllur Fíkniefnabrot Dómsmál Litáen Smygl Mest lesið Fella niður 26 flugferðir Innlent Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Lögreglan leitar að Arturas Innlent „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Innlent Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Erlent Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Innlent Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Innlent Þetta er í samkomulaginu um Grænland Erlent Barn stakk sig á sprautunál á skólalóðinni Innlent Fleiri fréttir Fella niður 26 flugferðir Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Lögreglan leitar að Arturas Flugfreyjur og flugmenn styðja flugvirkja Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Bein útsending: Kynna nýtt áhættumat fyrir Grindavík Barn stakk sig á sprautunál á skólalóðinni „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Nýtt áhættumat: Bjóða Grindvíkingum að kaupa húsin til baka Flestir félagar vilji frekari kjarabætur vegna forsendubrests Kristján hótar lögsókn verði bann að lögum Hefja athugun á fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar Stefnir í aflýsingar á öllu morgunflugi frá Keflavík og Reykjavík Munu ekki samþykkja frekari hækkun launa Árleg framlög jukust um 286 milljónir en Sinfónían aftur rekin með tapi Segir ásakanir flugvirkja „furðulegar“ Neitar að tjá sig um hvort lög verði sett á verkfall Ekkert í afkomu fyrirtækja sem sýni virðingu fyrir kjarasamningum Þokast æ fjær loftslagsskuldbindingum Íslands Leita lausnar áður en verkfall hefst á miðnætti Boða stórsókn í skóla- og menntamálum í Reykjavík Bein útsending: Kynnir nýjar losunartölur Nauðgaði sofandi sambýliskonu sinni og tók myndir Hagsmunir Íslands að efla Sameinuðu þjóðirnar Íslensk ungmenni drekka minnst af orkudrykkjum „Skólinn okkar er alltof lítill“ Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Sjá meira