Fíkniefnabrot „
1 2 3 4 5 6 … 16 ›
„Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Íbúar í Borgarnesi vissu ekki hvaðan á sig stóð veðrið þegar sérsveit réðst í húsleit þar á bæ í tengslum við rannsókn á skipulagðri brotastarfsemi sem talin er tengjast fíkniefnaframleiðslu. Enginn sem fréttastofa ræddi við vissi hverjir bjuggu í húsinu. Innlent 25.6.2025 17:26
Fleiri handteknir í Borgarnesi Sérsveitin og lögreglan réðust í síðustu viku í húsleit og handtökur í Borgarnesi í tengslum við umfangsmikla rannsókn á fíknefnaframleiðslu. Rannsóknin teygir anga sína frá Reykjavík að Raufarhöfn, en íbúi á Raufarhöfn lýsir grunsamlegri umferð á næturnar við hús sem lögregla hefur haft til rannsóknar. Innlent 23.6.2025 19:35
Lagt hald á fíkniefni og búnað til framleiðslu Rannsókn lögreglunnar á Norðurlandi eystra á skipulagðri brotastarfsemi er umfangsmikil og enn yfirstandandi samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Lagt hefur verið hald á muni og efni til fíkniefnaframleiðslu. Innlent 20.6.2025 14:07
Fimm í haldi vegna fíkniefnamálsins Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur úrskurðað fimm einstaklinga í vikulangt gæsluvarðhald vegna gruns um aðild að fíkniefnaframleiðslu. Þeir voru handteknir í umfangsmiklum aðgerðum lögreglu víða um land, meðal annars á Raufarhöfn, á miðvikudag. Innlent 20.6.2025 13:18
Húseigandinn Jón dansari segist koma af fjöllum Jón Eyþór Gottskálksson, eða Jón dansari, er eigandi húsnæðisins á Raufarhöfn þar sem sérsveit réðst í húsleit í gær í tengslum við umfangsmikla rannsókn á skipulagðri glæpastarfsemi og fíkniefnaframleiðslu. Hann segist ekki kannast við málið. Innlent 19.6.2025 15:19
Umfangsmikil lögregluaðgerð víða um landið Lögreglan og sérsveitin réðust í umfangsmiklar aðgerðir gegn fíkniefnaframleiðslu víða um landið í gær. Ráðist var í húsleit á Raufarhöfn í gær. Innlent 19.6.2025 09:04
Pípari sagði skólp ástæðuna fyrir kókaíninu í blóðinu Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði bótakröfu manns sem var handtekinn undir áhrifum kókaíns. Hann vildi meina að orsök þess að kókaínið hefði komist inn í blóðrásina hans væri návígi við skólp, en maðurinn er pípari. Innlent 18.6.2025 20:53
„Lögreglan var ekki að gera það í fyrsta sinn“ Dómsmálaráðherra lýsir áhyggjum af auknum innflutningi fíkniefna til landsins, og segir tilfelli þar sem einstaklingar sem tengjast erlendum glæpagengjum koma til Íslands vera mun algengari en fólk átti sig á. Aukið magn fíkniefna sem haldlagt er á landamærum sé þó jafnframt til marks um árangur. Innlent 15.6.2025 20:59
Burðardýr með þrettán kíló í farangrinum hlaut þungan dóm Ungur karlmaður sem er erlendur ríkisborgari hefur verið dæmdur til sex og hálfs árs fangelsisvistar fyrir innflutning á rúmum þrettán kílóum af kókaíni. Ekkert bendir þó til þess að hann hafi komið að skipulagningu innflutningsins. Innlent 13.6.2025 14:15
Lögðu hald á töluvert magn fíkniefna og milljónir í reiðufé Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á töluvert magn af ætluðum fíkniefnum og nokkrar milljónir í reiðufé við húsleit í íbúð í miðborginni fyrr í vikunni. Innlent 13.6.2025 11:29
Flugu frá Frakklandi með tólf kíló af kókaíni Tveir karlmenn sæta gæsluvarðhaldi eftir að hafa verið gripnir af tollgæslunni á Keflavíkurflugvelli með samanlagt tólf kíló af kókaíni í farangri sínum. Lagt hefur verið hald á meira magn kókaíns á fimm mánuðum í ár en allt árið í fyrra. Innlent 12.6.2025 11:54
Sterametið mölbrotið í Leifsstöð: Lögðu hald á um 9 lítra af sterum og 44 þúsund töflur Aldrei hafa fleiri steratöflur verið haldlagðar við landamærin á Keflavíkurflugvelli heldur en árið 2024, sem mölbrýtur fyrri met. Framkvæmdastjóri Lyfjaeftirlitsins hefur áhyggjur af því að fleiri sækist í vefaukandi stera og segir of frjálslega talað um steranotkun á samfélagsmiðlum. Innlent 11.6.2025 17:18
Dómar fólks sem sótti fíkniefni fyrir salann sinn mildaðir Dómar tveggja vegna innflutnings mikils magns amfetamínsbasa hafa verið mildaðir úr þremur árum í tvö í Landsrétti. Málið sneri að eiturlyfjasala sem gerði viðskiptavini sína út í fíkniefnaviðskiptum. Sex ára dómur eiturlyfjasalans stendur. Innlent 5.6.2025 15:23
Þungir dómar fyrir að smygla fleiri lítrum af kókaíni Karl og kona hafa hlotið 4,5 ára fangelsisdóma fyrir að flytja inn samtals 8,4 lítra af kókaínbasa með flugi frá Mílanó á Ítalíu. Innlent 3.6.2025 16:47
Dvöl á Hrauninu fram undan eftir kókaínsmygl Tveir karlmenn hvor sínum megin við þrítugt hafa verið dæmdir í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir að smygla kílóum af kókaíni frá meginlandi Evrópu til Íslands með farþegaflugvél. Efnin fundust í ferðatöskum mannanna. Innlent 21.5.2025 12:11
Burðardýr í flugvél Play „fríkaði út“ Lenda þurfti farþegaflugvél Play á leiðinni frá Spáni til Íslands á Írlandi í nótt vegna bráðra veikinda farþega. Samkvæmt heimildum fréttastofu er grunur um að farþeginn hafi verið burðardýr með fíkniefni innvortis. Innlent 20.5.2025 15:55
Grunaður um að fá alls konar búnað frá fyrirtæki fyrir fíkniefnarækt Fimmmeningar hafa verið ákærðir í stórfelldu fíkniefnamáli sem varðar ræktun og vörslu kannabisefna. Innlent 17.5.2025 16:06
Nítján í haldi vegna fíkniefnainnflutnings um Keflavíkurflugvöll Nítján eru í gæsluvarðhaldi hjá Lögreglunni á Suðurnesjum vegna fíkniefnainnflutnings og tólf hafa verið handteknir í tengslum við slík mál frá tíunda apríl. Yfirlögregluþjónn segir að grunur sé um að ákveðinn hópur standi að baki nokkrum málanna. Innlent 16.5.2025 12:01
Útilokað að þeir hafi ekki vitað af efnunum og fá þunga dóma Tveir erlendir karlmenn, Daniel Ryfa og Lukasz Dokudowicz, hafa hvor um sig verið dæmdir í fjögurra ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir stórfellt fíkniefnabrot, en þeir höfðu í vörslum sínum tæplega 6,6 kíló af amfetamíni og tæp 900 grömm af kókaíni. Innlent 9.5.2025 17:01
Átta ára fangelsi í sögulegu fíkniefnamáli Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Sigurð Kristinsson í átta ára fangelsi í stærsta kristal-amfetamínmál Íslandssögunnar. Fjórir hinna meðákærðu munu einnig sæta fangelsisvist en einn, sem nefndur er Y í dómnum, hefur verið sýknaður. Innlent 8.5.2025 22:14
Uggandi yfir innflutningi: Fleira ungt fólk leitar á Vog Ungt fólk leitar í auknum mæli aðstoðar á Vog vegna fíkniefnaneyslu. Yfirlæknir segist uggandi yfir miklu magni fíkniefna sem flutt sé til landsins, full ástæða sé fyrir fólk að vera á varðbergi, það sé aldrei að vita hvað leynist í fíkniefnum. Innlent 15.4.2025 19:00
Átján ára með 13 kíló af kókaíni Piltur á nítjánda aldursári er í gæsluvarðhaldi fyrir innflutning á þrettán kílóum af kókaíni. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir sérstakt að leggja hald á flugfreyjutösku fulla af fíkniefnum, sem ferðast var með í handfarangri. Áætlað götuvirði er um 220 milljónir króna. Innlent 14.4.2025 19:05
Gripinn við kókaínsmygl á nítjánda aldursári Maður á þrítugsaldri var handtekinn á Keflavíkurflugvelli á fimmtudaginn með kókaín í farangri sínum en hann kom með flugi frá Spáni. Sama dag var maður á nítjánda aldursári handtekinn af sama tilefni. Innlent 12.4.2025 11:15
Réttindalaus dreginn af öðrum Lögregluþjónar handtóku í gærkvöldi mann vegna gruns um að sá hefði verið að aka undir áhrifum fíkniefna. Við handtökuna kom þar að auki í ljós að hann hafði áður verið sviptur ökuréttindum en þegar hann var handtekinn var hann að draga annan bíl en sá sem sat þar við stýrið hafði einnig verið sviptur ökuréttindum. Innlent 12.4.2025 07:41
„Það verður almannavá, dauðsföll munu færast á annað stig“ Formaður Afstöðu fagnar hröðum viðbrögðum heilbrigðisráðherra vegna ólöglegra og lífshættulegra ópíóíða. Það sé tímaspursmál hvenær efnin rati í fangelsin og um leið skapist ástand sem erfitt verði að vinna úr. Innlent 11.4.2025 10:02
Pétur Jökull fékk átta ára dóm í Landsrétti Landsréttur hefur staðfest átta ára fangelsisdóm Péturs Jökuls Jónassonar fyrir aðild hans að stóra kókaínmálinu. Hann þarf að greiða á sjöttu milljón króna í málskostnað. Innlent 10.4.2025 15:26
Með kíló af kókaíní í farangrinum Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt íslenskan karlmann í fimmtán mánaða fangelsi fyrir smygl á um kílói af kókaíni með flugi til landsins í nóvember 2023. Innlent 9.4.2025 13:48
Blés til skyndifundar vegna innflutnings gerviópíóða Heilbrigðisráðuneytið efndi til skyndifundar í dag með fulltrúum Lyfjastofnunar, Landspítala, embætti landlæknis, tollayfirvalda, lögreglunnar, Rannsóknarstofu í lyfja- og eiturefnafræði, Afstöðu og Matthildi skaðaminnkun, um leiðir til að bregðast við innflutningi ólöglegra og lífshættulegra ópíóíða. Innlent 7.4.2025 19:37
Tvær unglingsstúlkur í haldi: „Þetta er fólkið sem verið er að hagnýta“ Tvær unglingsstúlkur eru í gæsluvarðhaldi vegna innflutnings á tuttugu þúsund töflum af gerviópíóðum. Önnur er á barnsaldri. Margrét Steinarsdóttir framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands telur stúlkurnar í viðkvæmri stöðu, oftast sé um að ræða fórnarlömb mansals í málum sem þessum. Innlent 6.4.2025 19:20
Sautján ára stúlka í haldi vegna innflutnings gerviópíóða Tvær unglingsstúlkur eru í gæsluvarðhaldi hjá Lögreglunni á Suðurnesjum vegna innflutnings á tuttugu þúsund töflum af nitazene, sem í fyrstu var talið að væri oxycontin. Önnur er á átjánda aldursári og hin á nítjánda aldursári. Innlent 6.4.2025 13:35