Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 7. september 2026 07:08 Þorbjörg Sigríður dómsmálaráðherra svaraði fyrirspurn Nönnu Margrétar. Vísir/Bjarni Rúmlega nífalt fleiri tilfelli komu upp um fíkniefnanotkun fanga á Litla-Hrauni en á Hólmsheiði á fimm ára tímabili. Erfiðara sé að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla Hrauni samkvæmt svari dómsmálaráðherra.
Árin 2020 til 2025 komu upp 525 brot gegn reglum um fíkniefni og lyf í fangelsum á Litla-Hrauni. Á sama tíma komu upp 57 tilvik í fangelsinu á Hólmsheiði. Þetta kemur fram í svari dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur, þingmanni Miðflokksins. „Vandamálið er útbreiddara í fangelsinu á Litla-Hrauni heldur en í fangelsinu á Hólmsheiði. Ástæðuna má meðal annars rekja til þess að fangelsið Hólmsheiði er sérhönnuð fangelsisbygging og aðstæður og möguleikar þar til að sporna við innstreymi fíkniefna eru mun betri en á Litla-Hrauni,“ segir í svari ráðherrans. Litla-Hraun er fjölmennasta fangelsi landsins og gengur þar af leiðandi verr að stemma stigu við útbreiðslu ávana- og fíkniefna. Útilokað sé að koma alfarið í veg fyrir útbreiðsluna sem auki líkur á ofbeldi innan veggja fangelsisins. Lagt er upp með að með byggingu Stóra-Hrauns verði hægt að aðskilja einstaklinga og mismunandi hópa innan fangelsisins. Tekið er fram að áðurnefndur fjöldi tilfella á ekki við um fjölda fanga heldur fjölda tilvika þar sem brotið hefur verið gegn reglunum. Í einhverjum tilvikum getur verið um sama fanga að ræða. Upplýsingar frá Fangelsismálastofnun um hversu oft fangar hafa orðið uppvísir að fíkniefnanotkun. Á Litla-Hrauni voru flest brotin árið 2021, alls 123 þar sem fangar urðu uppvísir að fíkniefnanotkun. Flest brotin á þessu fimm ára tímabili á Hólmsheiði voru árið 2022, alls nítján. Í báðum fangelsum hefur þeim fækkað jafnt og þétt árin eftir en árið 2025 voru 65 tilvik á Litla-Hrauni en sex á Hólmsheiði. Meðferð í boði Reglurnar kveða á um að föngum er óheimilt að hafa áfengi og ávana- og fíkniefni í sinni vörslu. Einhverjar aðgerðir eru til staðar til að sporna gegn fíkniefnanotkun í fangelsum, svo sem leit á föngum og í klefum þeirra. „Einnig er heimilt að taka öndunar-, blóð- eða þvagsýni eða annars konar lífsýni úr fanga ef grunur leikur á að hann hafi neytt áfengis eða ávana- og fíkniefna, við komu í fangelsi og við almennt eftirlit.“ Ef fangi verður uppvís að slíku broti varðar það agaviðurlög auk þess sem brotin geta haft áhrif á möguleika fanga að njóta dags- og fjölskylduleyfa og til að afplána í opnu fangelsi. Fangar sem glíma við fíknivanda geta sótt meðferðardeild á Litla-Hrauni þar sem daglegur stuðningur er í boði. Í öðrum fangelsum er boðið upp á stuðningsviðtöl hjá starfsfólki meðferðarsviðs Fangelsismálastofnunar eða hjá sérstöku geðheilsuteymi fangelsins.
Fangelsismál Fíkniefnabrot Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Alþingi Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira