Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 17. júlí 2026 08:55 Atli Freyr Fjölnisson, Íslendingur sem veitti ætluðum fíkniefnum viðtöku, var dæmdur í fimm ára fangelsi. vísir/ernir Tveir brasilískir kafarar eru í hópi þeirra níu sem sitja í gærsluvarðhaldi vegna Straumsvíkurmálsins svokallaða, mesta kókaínsmygli Íslandssögunnar. Atli Freyr Fjölnisson sem hlaut áður dóm í stóru fíkniefna máli er einnig í haldi.
Fram hefur komið að níu séu í haldi vegna málsins, þar af þrír Íslendingar. Fíkniefnin voru falin í sjókistu súrálsflutningaskipsins Koznitsa sem sigldi hingað úr höfn í Norður-Brasilíu. Áður viðloðinn smygl Greint hefur verið frá því að Lárus Freyr Einarsson, sem var sakfelldur fyrir manndráp í Danmörku árið 2011, og Lúther Ólason, sem hlaut dóm fyrir skattsvik í hittifyrra eru í haldi lögreglu. Atli Freyr var samkvæmt umfjöllun Ríkisútvarpsins handtekinn síðastur Íslendinganna þriggja mánudaginn 29. júní. Heimildir Vísis staðfesta að Atli Freyr sé í haldi grunaður um aðild að málinu. Atli Freyr hefur áður hlotið dóm í fíkniefnamáli en árið 2016 var hann dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir aðild að smygli á níu kílóum af amfetamíni og tíu kílóum af MDMA í umdeildu máli. Málið þótti sérstakt að ýmsu leyti og hefur verið kennt við tálbeituaðgerð sem miður fór við Hótel Frón á Laugavegi. Atli Freyr tók við fíkniefnum, sem reyndust gerviefni og eftirlitsbúnaður, fyrir utan fyrrnefnt hótel og var í kjölfarið handtekinn. Málið vakti mikla athygli, ólga og vantraust skapaðist í fíkniefnadeild lögreglu þar sem lögreglufulltrúi var grunaður um græsku af samstarfsmönnum. Honum var vikið frá störfum en hlaut síðar bætur vegna aðgerða gagnvart honum. Milliliðurinn Samkvæmt umfjöllun Ríkisútvarpsins fóru Lárus og Lúther saman í iðnaðarhverfi í Kópavogi til að taka við hluta kókaínsins smyglaða af mönnum sem þangað komu á stórum, hvítum sendiferðabíl. Atli mun samkvæmt heimildum hafa sent þá þangað og verið milliliður þeirra tveggja og þeirra sem afhentu efnin. Allir sakborningarnir níu voru úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til fjögurra vikna í síðustu viku. Enginn hinna grunuðu er skipverji á súrsálsskipinu Koznitsa sem flutti efnin. Það er haldið á önnur mið og var síðast í höfn í Rússlandi.
Straumsvíkurmálið Smygl Fíkniefnabrot Lögreglumál Mest lesið Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Fleiri fréttir Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku „Það er skilgreiningin á því að pissa í skóinn sinn“ Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða Sjá meira