Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Kjartan Kjartansson skrifar 28. maí 2026 06:02 Rauður máni á himni yfir Svalbarða. Verulega hefur hlýnað þar eins og annars staðar á norðurskautinu en það er sá hluti jarðar sem hlýnar hraðast vegna gegndarlausrar losunar manna á gróðurhúsalofttegundum. Vísir/EPA Vetrarhiti á norðurskautinu gæti verið hátt í þremur gráðum yfir meðaltali síðustu þriggja áratuga næstu árin. Einnig eru taldar líkur á að óvenju votviðrasamt verði á norðurslóðum næstu fimm vetur.
Útlit er fyrir að meðalhiti á jörðinni verði í eða við hæstu hæðir næstu fimm árin samkvæmt skýrslu sem breska veðurstofan vann fyrir Alþjóðaveðurfræðistofnunina og var birt í dag. Stofnunin áætlar að meðalhitinn frá 2026 til 2030 verði á bilinu 1,3 til 1,9 gráðum yfir viðmiðunartímabilinu 1850 til 1900. Sérstaklega er gert ráð fyrir vetrarhlýindum á norðurskautinu en það er sá hluti jarðar sem hlýnar hraðast vegna stórfelldrar losunar manna á gróðurhúsalofttegundum. Þar gæti meðalhitinn næstu fimm vetur (nóvember til mars) verið 2,8 gráðum yfir meðaltali áranna 1991 til 2020. Það væri þrisvar og hálfu sinni meira en áætlað hitafrávik á heimsvísu. Vetrarmánuðirnir næstu fimm árin eru einnig taldir verða vætusamari en meðaltal síðustu þriggja áratuga. Aukin úrkoma í hitabeltinu og á hærri breiddargráðum samhliða minnkandi úrkomu á miðlægum breiddargráðum heittempraða beltisins er sögð samræmast því sem er búist er við í hlýnandi loftslagi. Næstu tíu árin er búist við því að hafísþekja á Barentshafi, Beringshafi og Okhotsk-hopi áfram. 2027 gæti orðið næsta metár Líklegt er talið að eitt áranna frá 2026 til 2030 verði hlýrra en metárið 2024 og mjög líklegt að í það minnsta eitt áranna fari hlýnunin tímabundið yfir þær 1,5 gráður sem stefnt er að því að takmarka hlýnun við í Parísarsamkomulaginu. Það gerðist árið 2024 sem er hlýjasta árið í mælingasögunni. Þá eru taldar 75 prósent líkur á að hnattræn hlýnun verði meiri en 1,5 gráður yfir fimm ára tímabilið. Innan við eins prósents líkur eru aftur á móti taldar á hlýnunin fari yfir tvær gráður nokkurt árið. Reiknað er með að El niño-veðurfyrirbrigðið láti á sér kræla í Kyrrahafi á seinni hluta þessa árs. Veðurfyrirbrigðið er almennt tengt við hærri meðalhita á jörðinni og magnar upp þá manngerðu hlýnun sem á sér stað. Vegna þessa eru umtalsverðar líkur taldar á að árið 2027 verði næsta metár. Þurrkatímabil sem hefur varað í Suðaustur-Evrópu undanfarin ár virðist á enda runnið í bili samkvæmt líkönum bresku veðurstofunnar. Merki eru um að næstu fimm vetur þar verði óvenju votir. Sá varnagli er þó sleginn að loftslagslíkön eru mun betri í að spá fyrir um þróun hitastigs en úrkomu til skemmri tíma í þessum heimshluta.
Loftslagsmál Veður Vísindi Mest lesið Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira