Loftslagsmál

Loftslagsmál

Fréttamynd

Frá styrkjum til stefnu­mótunar

Árin 2018 til 2020 voru umbreytingartími í sjálfbærniumræðu íslensks atvinnulífs. Áherslan færðist frá því að líta á samfélagslega ábyrgð sem styrkveitingar og góðgerðamál yfir í að skilja hana sem órjúfanlegan hluta af rekstri fyrirtækja. 

Skoðun

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Skoðar upp­færslu í 36 sæta rafflugvél

„Icelandair hefur átt í góðu samstarfi við Heart Aerospace og fylgst grannt með framvindu verkefna félagsins undanfarin ár,“ segir Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, spurður um stöðu mála félagsins gagnvart Heart Aerospace.

Innlent
Fréttamynd

„Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki

Síki er orðið helsti ferðamannastaður hafnarborgarinnar Busan í Suður-Kóreu eftir að stór koparháfur villtist þangað fyrr í þessum mánuði. Rúmlega sex hundruð þúsund manns hafa heimsótt staðinn undanfarna daga og hákarlinn fengið nafnbótina „háfhrifavaldur“.

Erlent
Fréttamynd

Þokast æ fjær lofts­lags­skuld­bindingum Ís­lands

Þrátt fyrir að losun á gróðurhúsalofttegundum hafi dregist saman í fyrra er útlit fyrir að árangurinn á þessum áratug verði aðeins rétt rúmur helmingur þess sem Ísland er skuldbundið til þess að ná. Markið heldur áfram að fjarlægjast í nýrri spá Umhverfis- og orkustofnunar um hvernig losun mun þróast næstu árin.

Innlent
Fréttamynd

Bein út­sending: Kynnir nýjar losunartölur

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, kynnir nýjar losunartölur Íslands og stöðu loftslagsaðgerða á blaðamannafundi klukkan 11. Sjá má beina útsendingu frá fundinum hér að neðan.

Innlent
Fréttamynd

Gefa kola- og gasorku­verum lausan tauminn

Bandaríkjastjórn ætlar að afnema reglur um losun kola- og gasorkuvera á gróðurhúsalofttegundum. Losun bandarískra orkuvera er ein allra stærsta einstaka uppspretta gróðurhúsalofttegunda á jörðinni.

Erlent
Fréttamynd

Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu

Meðalhitastigið í ágúst var það hæsta sem mælst hefur, jafn hátt og í júlí 2023, samkvæmt loftslagsþjónustu Evrópusambandsins. Nýafstaðið sumar var það hlýjasta í Vestur-Evrópu.

Erlent
Fréttamynd

Út­séð um að mark­mið Parísar­sam­komu­lagsins náist

Ekki er lengur mögulegt að koma í veg fyrir að hlýnun jarðar verði umfram eina og hálfa gráðu og líklegt er að farið verði fram yfir þau mörk á næstu árum. Sérfræðingar Sameinuðu þjóðanna segja brýnt að mannkynið komi í veg fyrir enn meiri hlýnun og reyni síðar að vinda ofan af þeirri sem þegar hefur átt sér stað.

Erlent
Fréttamynd

Hyggst kanna hug í­búa til á­forma í Finnafirði

Sveitarstjórn Langanesbyggðar hefur ákveðið kanna hug íbúa til áforma um gerð vindmyllugarða í sveitarfélaginu og iðnaðarsvæðis við Finnafjörð í tengslum við gerð stórskipahafnar. Málið þykir heitt meðal íbúa en oddvitinn segir niðurstöðurnar verða hafðar til hliðsjónar við framhald málsins.

Innlent
Fréttamynd

Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum

Míla hefur lokið mikilvægu skrefi í orkuskiptum fjarskiptainnviða landsins með uppsetningu rafgeymakerfis, sólarsella og vindmyllu á fjarskiptastaðnum Slórfelli á Möðrudalsöræfum. Slórfell var síðasti fjarskiptastaður fyrirtækisins þar sem dísilrafstöð hafði verið í samfelldum rekstri allan sólarhringinn, svokölluð síkeyrsla. Með nýju orkukerfi hefur tekist að draga verulega úr olíunotkun og losun gróðurhúsalofttegunda.

Innlent
Fréttamynd

Heims­höfin aldrei heitari

Meðalhiti heimshafanna utan pólsvæðanna tveggja hefur aldrei mælst hærri en á laugardag. Sérstaklega sterkur El niño í Kyrrahafi er þegar sagður farinn að láta til sín taka.

Erlent
Fréttamynd

Gróður brennur beggja vegna Ermar­sunds

Slökkviliðsmenn á Englandi og í Frakklandi berjast nú við fjölda gróðurelda í enn einni hitabylgjunni sem gengur yfir Evrópu. Hiti nálgaðist fjörutíu gráður í London í gær.

Erlent