Viðskipti innlent

Bíla­leigur geti verið í farar­broddi eða drag­bítur á orku­skiptum

Kjartan Kjartansson skrifar
Jóhann Páll Jóhannsson, loftslagsráðherra, segir ekki hægt að draga úr losun frá vegasamgöngum ef bílaleigur kaupa ekki inn rafbíla í stað bensín- og dísilbíla.
Jóhann Páll Jóhannsson, loftslagsráðherra, segir ekki hægt að draga úr losun frá vegasamgöngum ef bílaleigur kaupa ekki inn rafbíla í stað bensín- og dísilbíla. Vísir/Anton Brink

Loftslagsráðherra segir bílaleigur landsins annað hvort geta verið í fararbroddi eða dragbítur á orkuskiptum í samgöngum. Ef þær haldi áfram að bjóða aðallega jarðefnaeldsneytisbíla sé það ákvörðun um að íslenskir skattgreiðendur niðurgreiði losun erlendra ferðamanna.

Losun frá vegasamgöngum jókst um 1,3 prósent á milli ára í fyrra samkvæmt bráðabirgðatölum sem Umhverfis- og orkustofnun kynnti í morgun. Vegasamgöngur eru stærsti staki flokkurinn í svonefndri samfélagslosun Íslands sem er á beinni ábyrgð íslenskra stjórnvalda að ná niður. 

Framreikningur stofnunarinnar bendir til þess að Ísland sé komið langt af stefnu á loftslagsskuldbindingar sínar til ársins 2030.

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, sagði stöðuna ekki í lagi á blaðamannafundi þar sem hann kynnti tölurnar í morgun. Bílaleigubílaflotinn væri stærsta áskorunin í að draga úr losun frá vegasamgöngum.

Bílaleigur keyptu hátt í helming allra bíla sem væru fluttir til landsins og innkaup þeirra réðu því mestu um hvernig samsetning bílaflotans væri í gegnum framboð á notuðum bílum.

„Það er engin leið að ná losun frá vegasamgöngum hratt niður nema ferðamenn fari í stórauknum mæli að nota rafmagnsbíla,“ sagði ráðherrann.

Búið að gefa nóg af peningum

Fullyrti Jóhann Páll að bílaleigurnar hefðu fengið tæplega tíu milljarða króna í skattastyrki og beinan og óbeinan ríkisstuðning í nafni loftslagsmála í tíð síðustu ríkisstjórnar. Fyrir það fé hefði hlutfall rafbíla í bílaleigubílaflotanum skriðið úr sjö til átta prósentum upp í fjórtán.

Ferðamenn sem kæmu til landsins ættu að geta notað ferðamáta sem gengi fyrir hreinni íslenskri orku sem landið væri frægt fyrir.

„Ef ekki, ef við ætlum að líta á það sem sjálfsagt mál að mikill meirihluti ferðamanna keyri um á bensín- og dísilbílum, og að það sé allt morandi í jarðefnaeldsneytisbílum á markaði fyrir notaða bíla, þá erum við bara að taka ákvörðun um að skattgreiðendur á Íslandi niðurgreiði losun ferðamanna með kaupum á losunarheimildum úr ríkissjóði eftir nokkur ár,“ sagði loftslagsráðherra.

Bílaleigur hafa haldið því fram að engin eftirspurn sé hjá erlendum ferðamönnum eftir rafknúnum bílum.Vísir/Vilhelm

Vísaði hann til þess að fyrirsjáanlega þarf Ísland að kaupa losunarheimildir fyrir milljarða króna ef það stenst ekki skuldbindingar sínar gagnvart Evrópusambandinu.

„Nú eru bílaleigufyrirtækin á Íslandi og að einhverju leyti ferðaþjónustugeirinn í þeirri stöðu að geta annað hvort verið í fararbroddi í orkuskiptum eða verið dragbítur á orkuskipti á Íslandi,“ sagði ráðherrann.

Ríkisstjórnin vildi aðstoða en að fara þyrfti vel með fjármuni.

„Það er búið að gefa alveg nógu mikið af peningum,“ sagði ráðherrann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×