Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp Kjartan Kjartansson skrifar 13. maí 2026 11:39 Reikna má með að stór hluti af þotuliðinu á rauða dreglinum á kvikmyndahátíðinni í Cannes sem hófst í vikunni hafi mætt þangað á einkaþotu. Ekkert lát er á einkaþotuflugi þrátt fyrir að þotueldsneytisverð sé nú í hæstu hæðum og almenn flugfélög dragi saman seglin. Vísir/EPA Á sama tíma og evrópsk flugfélög tilkynntu um samdrátt í flugáætlunum þeirra vegna stórhækkaðs eldsneytisverðs fjölgaði einkaþotuferðum í síðasta mánuði. Einaþotuútgerðir láta gagnrýni sér sem vind um eyru þjóta.
Verð á þotueldsneyti er nú tvöfalt hærra en það var áður en Bandaríkjamenn og Ísraelar hófu vopnaskak sitt í Íran sem leiddi til þess að Íranir lokuðu Hormússundi, lykilsiglingaleið fyrir olíuflutningaskip. Ekki sér fyrir endann á áhrifum þess á heimshagkerfið. Þotueldsneytisbirgðir einkaaðila í Evrópu gætu farið niður fyrir öryggismörk sem Alþjóðaorkumálastofnunin miðar við í lok þessa mánaðar eða byrjun þess næsta samkvæmt gögnum Goldman Sachs-bankans. Flugfélög eins og SAS, Lufthansa og Icelandair hafa gripið til þess ráðs að draga saman seglin og draga úr framboði sínu á ferðum til þess að mæta kostnaðaraukanum. Sömu áhyggjur virðast ekki þjaka auðugasta fólk álfunnar en einkaþotuferðum fjölgaði um tíu prósent frá mars til apríl samkvæmt tölum sem evrópska blaðið Politico fékk frá Carbon Sky Index, samtökum sem fylgjast með útblæstri einkaþotna. Samtökin telja að stjórnvöld í Evrópu hafi enga afsökun fyrir því að kyrrsetja ekki allar einkaþotur þegar í stað í ljósi eldsneytiskreppunnar. Því hafna málsvarar einkaþotuiðnaðarins sem benda á að eldsneytisnotkun hans og losun gróðurhúsalofttegunda sé aðeins brot af heildarnotkun og losun fluggeirans. Aðgerðasinnarnir telja þetta hins vegar táknræna aðgerð. Á sama tíma og ríka og fína fólkið þeytist um á einkaþotum sínum þurfi almenningur að hafa áhyggjur af því að flugfélögin aflýsi flugferðum hans í sumarfríið.
Flug Loftslagsmál Jarðefnaeldsneyti Íran Bandaríkin Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Ísrael Donald Trump Mest lesið Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Viðskipti innlent Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Viðskipti innlent Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp Viðskipti erlent Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Viðskipti innlent Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Viðskipti innlent Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu Viðskipti innlent Úr Símanum í rörin Viðskipti innlent „Krakkarnir spyrja langmest“ – íslenskar fjölskyldur flykkjast á Lava Show Samstarf Kosningastreita og stemning á vinnustöðum Atvinnulíf Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Viðskipti innlent Fleiri fréttir Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira