Innlent

Kölluð út á hæsta for­gangi vegna sund­manns í Þing­valla­vatni

Eiður Þór Árnason skrifar
Frá aðgerðum við Davíðsgjá í Þingvallavatni.
Frá aðgerðum við Davíðsgjá í Þingvallavatni. Landsbjörg

Einstaklingur slasaðist á fæti þegar hann lenti í gjótu við Davíðsgjá í Þingvallavatni í gærkvöldi. Björgunarsveitir voru kallaðar út á hæsta forgangi og komu á staðinn um áttaleytið. Þá var hann með talsverðar blæðingar en hann var hluti af hópi sem var við sund í Davíðsgjá.

Sjúkraflutningalið frá Selfossi fór einnig á vettvang ásamt lögreglu en gjáin er við austanverða Vatnsvík í Þingvallavatni.

„Ljóst var frá upphafi að nokkur vinni yrði að koma þeim slasaða þangað sem sjúkrabíll komst og fóru hópar strax í að koma upp línum og tryggingum til að undirbúa að koma þeim slasaða á sjúkrabörum upp úr gjánni,“ segir í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg.

Frá aðgerðum við Davíðsgjá í Þingvallavatni.Landsbjörg

Þurfti að fara á annað hundrað metra yfir úfið hraun og kjarri vaxið land til að koma honum að sjúkrabíl. Hópur björgunarmanna hafi tekið þátt í því að lyfta börunum upp úr gjánni og síðan hjól sett undir þær síðasta spölinn, að sögn Landsbjargar. Um klukkan 21:30 hafi hinn slasaði verið kominn í sjúkrabíl.  




Fleiri fréttir

Sjá meira


×