Bláskógabyggð

Bláskógabyggð

Mannfjöldi: 1.362 (2025). Flatarmál: 3.300 ferkílómetrar. Stærstu byggðakjarnar: Laugarvatn, Reykholt í Biskupstungum, Aratunga, Laugarás.


Fréttamynd

„Gekk kannski ekkert endi­lega hratt alltaf“

„Þetta gekk í rauninni allt saman mjög vel í öllum aðalatriðum,“ segir Einar Sigurjónsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi, um tónlistarhátíðina Bergmál á Þingvöllum sem haldin var í gær. Miklar umferðartafir urðu engu að síður í kringum hátíðina, en við því var að búast að sögn lögreglu.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Veggur af fólki mætti svöngum tón­leika­gestum

Fréttastofu bárust ábendingar frá tónleikagestum á Þingvöllum um miklar tafir á tónleikasvæðinu vegna margmennis. Vonsvikinn gestur segir sviðið of lítið, áhorfendasvæðið rúmi ekki mannfjöldann og ekki sé nægt pláss í kringum matarvagnana. Tónlistarhátíðin Bergmál fór þar fram í dag en búist var við tuttugu þúsund gestum. 

Innlent
Fréttamynd

Svona er stemningin á Þing­völlum í dag

Það er líf og fjör á Þingvöllum í dag þar sem fram fara stórtónleikar Kaleo. Búist er við tuttugu þúsund manns á svæðið en Viktor Freyr Arnarson ljósmyndari Vísis var á svæðinu í dag og fangaði stemninguna.

Lífið
Fréttamynd

Þing­vellir stærsta verk­efni Kaleo frá upp­hafi

Kaleo snýr aftur heim í sumar eftir að hafa spilað á stórum sviðum víða um heim og orðið ein þekktasta íslenska rokksveit síðari ára. Hljómsveitin segir tónleikana Bergmál á Þingvöllum í sumar þó vera í sérflokki.

Lífið
Fréttamynd

Sterkur rekstur og skýr sýn

Rekstur og traust fjárhagsstaða eru meðal mikilvægustu þátta í stjórnun hvers sveitarfélags. Sveitarstjórn Bláskógabyggðar hefur nú lokið fyrri umræðu um ársreikning ársins 2025 og sýna niðurstöðurnar skýrt að reksturinn hefur verið traustur og stýrt af ábyrgð.

Skoðun
Fréttamynd

Hvert stefnir Bláskógabyggð?

Í minni sveitarfélögum hefur rödd hvers og eins íbúa meira vægi en víða annars staðar. Því er mikilvægt að virkt íbúasamráð í sveitarfélögum eins Bláskógabyggð sé til staðar. Íbúasamráð snýst um meira en að kjósa fulltrúa í sveitarstjórn. Það felur í sér virkt samtal, gagnsæi og raunverulegt tækifæri fyrir fólk til að hafa áhrif.

Skoðun
Fréttamynd

Fjár­sjóðurinn í matarkistunni

Matur er á vörum okkar daglega, enda grunnurinn að heilsu okkar og næringu. Þá væru viðburðir, samkomur og fjölskylduboð lítilfjörleg án hans. Matur er allt í kring um okkur og með auknum ferðamanna straumi hefur norræn og íslensk matarmenning fengið byr undir báða vængi og hróðurinn farinn að berast um allan heim.

Skoðun
Fréttamynd

Van­hæfi fyrir­tækisins til að sinna skyldum sínum sé al­gert

Sumarhúsaeigandi í Úthlíð í Bláskógabyggð segir vatnsskort hafa verið viðvarandi vandamál á svæðinu um árabil og gagnrýnir Veitur harðlega fyrir að hafa ekki gripið til frekari ráðstafana. „Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum og bregðast við vandamálinu er því algert.“

Innlent
Fréttamynd

Vél­sleða­menn féllu ofan í Fúlukvísl

Tveir vélsleðamenn féllu ofan í Fúlukvísl við rætur Langjökuls fyrir hádegi í dag. Fjöldi björgunarsveitarmanna var ræstur út og þyrla Landhelgisgæslunnar sömuleiðis og þeir voru fluttir með henni til Reykjavíkur til aðhlynningar.

Innlent
Fréttamynd

„Vatns­bólið er nánast tómt, það er að tæmast“

Vatnslaust hefur verið síðustu daga í sumarhúsabyggð í Úthlíð en vatnsbólið er nánast tómt. Einhverjir hafa þurft að flýja vegna vatnsleysisins. Silja Ingólfsdóttir, upplýsingafulltrúi Veitna, segir sumarhúsaeigendur hafa fengið tilkynningu á fimmtudag en hún mögulega farið fram hjá mörgum.

Innlent
Fréttamynd

Stór­tón­leikarnir verða fyrir neðan Öxar­ár­foss

Gert er ráð fyrir að tuttugu þúsund gestir sæki tónleika hljómsveitarinnar Kaleo á Þingvöllum í sumar. Tónleikarnir fara fram á grasflötum fyrir neðan Öxarárfoss og þjóðgarðsvörður segir heilan her fólks munu gæta þess að náttúran beri engan skaða af. Hann kannast ekki við tónleikaumsóknir frá Coldplay eða U2.

Innlent
Fréttamynd

Neita öll sök í Reykholtsmálinu

Öll sex sem eru ákærð fyrir að frelsissvipta mann, fjárkúga hann og beita stórfelldu ofbeldi í Reykholti árið 2024 neita sök í málinu. Fólkið er sakað um að hafa ruðst inn á heimili mannsins, ógnað með haglabyssu og krafist aðgangs að bankareikningum. Að endingu hafi tæplega átján milljónir króna verið millifærðar af reikningi hans.

Innlent
Fréttamynd

Rúta út af og Þingvallavegi lokað

Lokað hefur verið fyrir umferð um Þingvallaveg vegna umferðarslyss á Mosfellsheiði en þar hafnaði rúta fyrir utan veginn eftir að ökumaður missti stjórn á ökutækinu.

Innlent
Fréttamynd

Grimmdar­legu of­beldi lýst í á­kærunni

Hrottafengnu ofbeldi er lýst gegn maltneskum karlmanni sem var frelsissviptur árið 2024. Sex hafa verið ákærðir fyrir verknaðinn en eftir að hafa neytt hann til að millifæra átján milljónir króna þvinguðu þau hann til að fara úr landi.

Innlent
Fréttamynd

„Gamlar“ kempur kenndu bridge á Laugar­vatni

Það var líf og fjör í Menntaskólanum að Laugarvatni í vikunni þegar nemendur fengu nokkra fyrrverandi nemendur, sem voru meðal annars í skólanum fyrir 50 árum til að koma í heimsókn og kenna núverandi nemendum að spila bridge. Uppátækið vakti mikla athygli og höfðu nemendurnir ekki síður gaman af því en „gömlu“ bridgespilararnir.

Innlent
Fréttamynd

Mikil and­staða við nýtt 160 her­bergja hótel á Laugar­vatni

Íbúar á Laugarvatni eru ekki allir sáttir við hugmyndir um byggingu fjögurra hæða hótels á Laugarvatni rétt við vatnið með 160 herbergjum. Um 8.600 fermetra byggingu verður að ræða. En um hvað snýst málið í raun og veru? Ásta Stefánsdóttir, er sveitarstjóri Bláskógabyggðar.

Innlent