Áætlunarflug prófað á rafmagnsflugvélum Kristján Már Unnarsson skrifar 1. apríl 2026 22:11 Rafmagnsflugvélin Beta Alia lent á flugvellinum á eynni Storð í Noregi. Bristow Norway Áætlunarflug á rafmagnsflugvélum er hafið í tilraunaskyni bæði í Noregi og Skotlandi. Fyrst um sinn er þó eingöngu flogið með vörur og póst.
Í kvöldfréttum Sýnar mátti sjá bandarísku rafmagnsflugvélina Beta Alia lenda á flugvellinum á eynni Storð við vesturströnd Noregs síðastliðið haust. Norska flugfélagið Bristow Norway hefur undanfarna mánuði prófað flugvélina í samstarfi við bandaríska flugvélarsmiðinn Beta Technologies og norsk stjórnvöld, mest á flugleiðinni milli Bergen og Stavangurs.Tveir flugmenn eru um borð en engir farþegar. Eingöngu er flogið með pakka enda telst þetta vera tilraunaflug þar sem verið að prófa hvernig rafmagnsflugvélar reynast í reglubundnu flugi innan Noregs við misjafnar aðstæður. Rafmagnsflugvél Loganair komin á loft í Skotlandi. Farmurinn er póstur fyrir Royal Mail.Loganair Og núna eru Skotar einnig byrjaðir að prófa samskonar rafmagnsflugvél. Hún fór fyrir tólf dögum í sitt fyrsta póstflug á vegum skoska flugfélagsins Loganair en flogið var frá Glasgow til Dundee. Ætlunin er að nota flugvélina á næstu mánuðum í flugi til fleiri staða eins og Aberdeen, Inverness og Orkneyja og verður eingöngu flogið með póst. Hér má sjá hana fljúga: Bandaríkjamenn eru reyndar byrjaðir að prófa hana með farþega um borð. Hún er með sæti fyrir fimm farþega, flýgur á allt að 270 kílómetra hraða og flugdrægið er sagt milli fjögurhundruð og sexhundruð kílómetrar. Framleiðandinn fullyrðir að rafmagnsflugvélin sé margfalt ódýrari í rekstri en hefðbundnar flugvélar, bæði orkukostnaður og viðhaldskostnaður sé mun lægri. Og núna boðar fyrirtækið nítján sæta rafmagnsflugvél. Flugvélarframleiðandinn Beta Technologies er með nítján sæta farþegaflugvél á teikniborðinu. Slík stærð gæti hentað innanlandsflugi á Íslandi.Beta Technologies
Fréttir af flugi Orkuskipti Loftslagsmál Samgöngur Noregur Skotland Bandaríkin Tengdar fréttir Rafmagnsflugvél reynd í áætlunarflugi í Noregi Fyrsta áætlunarflug rafknúinnar flugvélar í Noregi var farið síðastliðinn fimmtudag í tilraunaskyni. Flogið var milli Stafangurs og Björgvinjar á rafmagnsflugvélinni Alia, sem framleidd er af bandaríska fyrirtækinu Beta Technologies. Flugið er liður í þróunarverkefni í átt að kolefnislausum flugsamgöngum. 7. september 2025 14:28 Norskt fyrirtæki veðjar á rafknúna sjóflugvél Norskt sprotafyrirtæki, Elfly Group, er að þróa tveggja hreyfla sjóflugvél sem verður eingöngu rafknúin. Flugvélinni er ætlað að bera níu farþega eða eitt tonn af frakt. Hún á að geta lent bæði á sjó og á flugvöllum á landi og vera einstaklega hljóðlát. 30. nóvember 2025 10:00 Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Kanadíska sprotafyrirtækið Evio hefur kynnt þróun tvinn-rafmagnsflugvélar, Evio 810, til notkunar á styttri flugleiðum í flokki 50 til 100 sæta flugvéla. Stefnt er á fyrsta reynsluflug árið 2029 og að hún komist í reglulegan flugrekstur í byrjun næsta áratugar. 14. desember 2025 07:17 Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fleiri fréttir Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Sjá meira
Rafmagnsflugvél reynd í áætlunarflugi í Noregi Fyrsta áætlunarflug rafknúinnar flugvélar í Noregi var farið síðastliðinn fimmtudag í tilraunaskyni. Flogið var milli Stafangurs og Björgvinjar á rafmagnsflugvélinni Alia, sem framleidd er af bandaríska fyrirtækinu Beta Technologies. Flugið er liður í þróunarverkefni í átt að kolefnislausum flugsamgöngum. 7. september 2025 14:28
Norskt fyrirtæki veðjar á rafknúna sjóflugvél Norskt sprotafyrirtæki, Elfly Group, er að þróa tveggja hreyfla sjóflugvél sem verður eingöngu rafknúin. Flugvélinni er ætlað að bera níu farþega eða eitt tonn af frakt. Hún á að geta lent bæði á sjó og á flugvöllum á landi og vera einstaklega hljóðlát. 30. nóvember 2025 10:00
Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Kanadíska sprotafyrirtækið Evio hefur kynnt þróun tvinn-rafmagnsflugvélar, Evio 810, til notkunar á styttri flugleiðum í flokki 50 til 100 sæta flugvéla. Stefnt er á fyrsta reynsluflug árið 2029 og að hún komist í reglulegan flugrekstur í byrjun næsta áratugar. 14. desember 2025 07:17