Þarf að borga bætur þrátt fyrir breytingar á hlaupahjólinu Árni Sæberg skrifar 28. október 2025 14:00 Rafhlaupahjólið sem um ræðir var í einkaeigu. Vísir/Vilhelm Vís hefur verið gert að greiða manni bætur vegna slyss sem hann varð fyrir þegar hann lenti í árekstri við bifreið þegar hann var á rafhlaupahjóli. Tryggingafélagið hafði neitað að viðurkenna bótaskyldu sína vegna breytinga sem maðurinn hafði gert á hlaupahjólinu.
Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem kveðinn var upp þann 23. október, segir að maðurinn hafi krafist þess að viðurkennd yrði bótaskylda úr ábyrgðartryggingu bifreiðarinnar hjá Vís vegna líkamstjóns sem hann varð fyrir í slysinu. Átti við hlaupahjólið Málið sé að rekja til þess að maðurinn varð fyrir bifreið þegar hann var á vélknúnu hlaupahjóli sínu um klukkan átta að morgni árið 2022 á leið austur með Hringbraut. Maðurinn hafi rennt sér yfir frárein um gönguþverun við Hlíðarfót, sem tengi göngu- og hjólastíg sem liggi samhliða og sunnan Hringbrautar við slíkan stíg að umferðarljósum við gatnamótin. Maðurinn hafi þá orðið fyrir framhorni bifreiðarinnar vinstra megin, kastast af henni í götuna, misst við það meðvitund og í kjölfarið verið fluttur á brott í sjúkrabíl. Vís hafi hafnað bótaskyldu þar sem maðurinn hefði átt við hlaupahjólið, þannig að það kæmist hraðar en 25 kílómetra á klukkustund. Byggðu á að hlaupahjólið væri ökutæki Í niðurstöðukafla dómsins segir að í lögum um ökutækjatryggingar segi um grundvöll skaðabótaábyrgðar að eigandi ökutækis skuli bæta tjón sem hlýst af notkun þess þótt tjónið verði ekki rakið til bilunar eða galla á ökutækinu eða ógætni ökumanns. Krafa mannsins um að viðurkennd yrði bótaskylda Vís sem vátryggjanda ökutækis-ins byggist á þessu laga ákvæði. Vís hafi byggt á því að vélknúna hlaupahjólið væri einnig ökutæki, maðurinn bæri sem eigandi þess ábyrgð á því og um þá ábyrgð hans gilti áðurnefnd grein laga um ökutækjatryggingar. Þá teldi Vís jafnframt að maðurinn væri fébótaskyldur samkvæmt sömu lögum og að um áreksturinn gilti grein laganna þar sem komi fram að hljótist tjón af árekstri ökutækja skiptist tjónið á þau í réttu hlutfalli við sök þeirra sem hlut eiga að máli og með hliðsjón af atvikum öllum. Þá hafi Vís aðallega byggt á því að maðurinn ætti alla sök á slysinu. Dómurinn ósammála Í dóminum segir að þeim málsástæðum Vís hafi verið hafnað að hlaupahjól mannsins hefði við umræddar breytingar á því orðið að skráningarskyldu ökutæki sem væri tryggingarskylt samkvæmt lögum um ökutækjatryggingar. Í núgildandi grein umferðarlaga um skráningarskyldu vélknúinna ökutækja sé sérstaklega tekið fram að smáfarartæki séu ekki skráningarskyld. Í frumvarpi til breytingalaga komi fram um þá breytingu á tiltekinni grein og það sé jafnframt sérstaklega áréttað í almennum athugasemdum í frumvarpinu, að rétt þyki að smáfarartæki verði, líkt og létt bifhjól í flokki I, ekki skráningarskyld ökutæki. Með hliðsjón af þeim breytingum sem gerðar hafa verið á umferðarlögum eftir að atvik þessa máls urðu sé hafnað málsástæðum Vís um að það sé í samræmi við vilja löggjafans að líta svo á að smáfarartæki eins og hlaupahjól mannsins sé skráningarskylt vélknúið ökutæki. Í þessu sambandi breytti það engu að maðurinn hefði átt við hjólið þannig að það kæmist hraðar en á 25 kílómetra hraða. Þá taldi dómurinn ekki sannað að maðurinn hefði valdið slysinu með því að aka ógætilega yfir gangbrautina. Því var bótaskylda Vís viðurkennd. Málskostnaður milli mannsins og Vís var felldur niður en maðurinn naut gjafsóknar í málinu.
Rafhlaupahjól Tryggingar Umferðaröryggi Umferð Samgönguslys Reykjavík Mest lesið Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Innlent Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Innlent Klukkustundar löng röð í öryggisleitina: Á hlaupum í átt að hliðinu Innlent Beint streymi frá Gleðigöngunni Innlent Hafnaði úti í fjöru Innlent Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Erlent Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Innlent Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Erlent Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Innlent Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Erlent Fleiri fréttir Þyrlan sækir mann eftir hestaslys Hættu við að taka á loft vegna fugls sem hafnaði á vélinni Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Stelpurnar fái sambærilega upplifun og strákarnir Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Beint streymi frá Gleðigöngunni Sakar rektor um að hindra upplýsingamiðlun til þjóðarinnar Óskhyggja að vona að afgerandi svar fáist þann 29. ágúst Óskhyggja að vonast eftir afgerandi svari og deilan harðnar 72 ár síðan síðast en 170 ár þar til næst Slökkvilið brást við tilkynningu um reyk Hafnaði úti í fjöru Klukkustundar löng röð í öryggisleitina: Á hlaupum í átt að hliðinu Endaði út af eftir framúrakstur Baudenbacher úthýst úr hátíðarsal háskólans Hátt í sjö hundruð komast ekki á kjörskrá í tæka tíð Sjö hundruð fá ekki að greiða atkvæði og bókstafirnir burt Ný fjarskiptakerfi séu viðkvæmari hvað varðar útbreiðslu Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Hægt að nálgast staðarspár fyrir almyrkvaslóðir á sérstöku spásvæði Heimabærinn borgar fyrir útför Gunnars að hluta Einkunnir verða birtar í tölustöfum í stað bókstafa Tilkynningum um innbrot fjölgar á ný ESB vill „skapandi lausnir“ fyrir íslenskan sjávarútveg Óvissa með sólmyrkvaveður Götulokanir vegna Gleðigöngunnar taka gildi í dag Stækkunarstjórinn boðar „skapandi lausnir“ fyrir Íslendinga Hommar komi verst út þegar kemur að mismunun launa Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? Sjá meira