Innlent

Bjórpása í Víkinni og lög­reglan í heim­sókn í Garða­bæ

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Hér má sjá nokkra unga Víkinga með bjór í hönd á leik síðasta sumar. Hafi þeir mætt á leikinn í gær gátu þeir ekki endurtekið þann leik.
Hér má sjá nokkra unga Víkinga með bjór í hönd á leik síðasta sumar. Hafi þeir mætt á leikinn í gær gátu þeir ekki endurtekið þann leik. Vísir/Diego

Fundur lögreglu með knattspyrnufélögum á höfuðborgarsvæðinu hafði það meðal annars í för með sér að ekki var seldur bjór á heimaleik Víkinga gegn Aftureldingu í Bestu deild karla í gærkvöldi. Lögregla gerði athugasemdir við áfengisneyslu á heimaleik Stjörnunnar gegn Breiðabliki á föstudagskvöld.

Umræða um áfengisneyslu á íþróttaviðburðum hefur verið nokkuð hávær undanfarnar vikur og hefur kastljósið helst beinst að leikjum í karlaflokki í úrslitakeppninni í körfubolta og Íslandsmótinu í fótbolta. Willum Þór Þórsson, nýkjörinn forseti Íþrótta- og ólympíusambands Íslands, sagði á dögunum ótækt að íþróttafélögin seldu áfengi á íþróttaviðburðum án þess að hafa til þess leyfi.

Í fréttum Stöðvar 2 á dögunum kom fram að nokkur fjöldi félaga á höfuðborgarsvæðinu seldu áfengi án tilskilins leyfi. Ekkert félag hefði leyfi til að selja áfengi utandyra en borið hefur á því að stuðningsmenn hafi sötrað bjór í stúkunni í sumar.

433.is greindi frá því í morgun að aldrei slíku vant hefði bjór ekki verið til sölu í Fossvoginum í gær þar sem Víkingar fengu Aftureldingu í heimsókn í Bestu deild karla. Haukur Hinriksson, framkvæmdastjóri Víkings, segir félög á höfuðborgarsvæðinu hafa fundað með lögreglu nýlega. Félögin hafi fengið leiðbeiningar um hvaða leyfi þyrftu að vera til staðar fyrir áfengissölu, hvort sem um væri að ræða sölu inni í sal eða utandyra.

Umsókn í ferli og vel tekið í bjórleysið

Haukur segir Víking með nýja umsókn í ferli en henni þurfi að fylgja jákvæða umsögn frá aðilum á borð við Reykjavíkurborg, lögreglu, slökkviliði og heilbrigðiseftirliti.

„Við vildum ekki vera að taka neina óþarfa sénsa á meðan þetta er í ferli,“ segir Haukur um áfengislaust gærkvöldið í Fossvoginum.

„Við vonuðumst til að þetta tækist fyrir leikinn en núna vonumst við til að fá svör fyrir næsta heimaleik, sem er Evrópuleikur hjá okkur,“ segir Haukur.

Stuðningsmenn í Víkinni í gærkvöldi hafi mætt áfengisleysinu af skilningi. Boðið hafi verið upp á óáfengan bjór fyrir þá sem vildu og einhver sala verið á honum. Sala á veitingum og þar með talið áfengi er ein af leiðum félaganna til að drýgja tekjur sínar og styðja við rekstur knattspyrnudeildanna.

Haukur segir lögreglu hafa boðað komu sína á leiki félaga í efstu deild karlamegin. Það var einmitt tilfellið á föstudagskvöldið þegar Stjarnan tók á móti Breiðabliki í Garðabænum.

Gerðu athugasemdir við ráf bjórþyrstra

Baldvin Sturluson, framkvæmdastjóri Stjörnunnar, segir lögreglu hafa komið á staðinn og gert athugasemdir við að fólk væri með bjór utandyra auk þess sem einhverjir hefðu rölt með bjórinn upp í stúku sem sé ekki leyfilegt.

Baldvin segir Stjörnuna vera með leyfi fyrir áfengissölu á Dúllubar og í veislusal sínum en ekki utandyra. Stjarnan ætli að sækja um það leyfi og lögregla sé meðvituð um að sú umsókn sé í ferli.

Baldvin segir lögregluna í Hafnarfirði hafa rætt við Stjörnuna og farið yfir leyfismálin. Félagið eigi í góðu samtali við lögregluna um næstu skref fyrir áfengissölu utandyra. Félagið hafi ekki hug á því að leyfa bjórdrykkju í stúkunni en þó þannig að fólk geti á afmörkuðum stöðum á svæðinu verið utandyra fengið sér bjór áður en haldið sé í stúkuna.


Tengdar fréttir

Teikn á lofti þegar kemur að áfengisneyslu unglinga

Teikn á lofti eru um að áfengisneysla meðal unglinga sé að aukast. Þetta segir formaður Foreldrasamtaka gegn áfengisauglýsingum en hann furðar sig á að fimm árum eftir að netsala áfengis var kærð til lögreglu sé enn engin niðurstaða komin í málið.

Fólki sé vel treystandi til að fá sér bjór á íþrótta­viðburðum

Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík segist ekki vita til þess að áfengissala á íþróttaviðburðum hafi skapað sérstök vandamál síðustu ár. Það sé áríðandi að regluverkið verði uppfært en íþróttafélögunum sé almennt treystandi til að skipuleggja söluna og fólki til að fara rólega í neysluna. 

Óbreytt ástand kemur ekki til greina

Koma þarf böndum á áfengissölu íþróttafélaganna að mati formanns menningar- og íþróttaráðs Reykjavíkurborgar, óbreytt ástand komi ekki til greina. Hann segir áfengisneyslu á íþróttaleikjum illa samræmast forvarnar- og lýðheilsustefnum borgarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×