Efnilegir göngugarpar úr Kópavogi hafa Laugaveginn út af fyrir sig Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 28. ágúst 2020 14:58 Fimm nemendur í Smáraskóla í góðum höndum á leið yfir ána. Sjá má af svip stúlknanna að áin er í kaldara lagi. Vísir/Vilhelm
Nemendur í 8. bekk Smáraskóla eru í þessum töluðu orðum að nálgast Emstrur á árlegri Laugavegsgöngu sinni. Um er að ræða áralanga hefði í Smáraskóla sem oftast er farin við upphaf skólagöngu í 8. bekk. Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Vísis, fylgdist með þessum galvöskum krökkum vaða Bláfjallahvísl í nágrenni Hvanngils í dag. Ekki var að sjá á krökkunum að kuldinn í ánni væri nokkurt vandamál. Hópurinn gisti fyrstu nóttina í skálanum í Hrafntinnuskeri, þá næstu í skálum við Álftavatn en hvor dagleið er um tólf kílómetrar. Dagleiðin í Emstrur, ganga dagsins, er fimmtán kílómetrar og býður upp á tvær ár sem þarf að vaða. Á morgun stefnir hópurinn svo á að ganga í Langadal í Þórsmörk sem er um 15 kílómetra leið sömuleiðis þar sem vaða þarf eina á á lokasprettinum. Rólegt er á Laugaveginum á þessum tíma árs og sérstaklega í ár eftir hertar aðgerðir á landamærum. Fyrir vikið má segja að krakkarnir úr Kópavogi hafi þessa vinsælustu gönguleið Íslands út fyrir sig. Gengið hefur á með skúrum hjá hópnum í dag sem heldur ótrauður áfram göngu sinni. Þessi garpar virtust hafa gaman af því að þvera ána.Vísir/Vilhelm
Skóla - og menntamál Ferðalög Kópavogur Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira