Aðeins 4 prósent mála Kolbrúnar í gegn Björn Þorfinnsson skrifar 19. október 2019 07:15 Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins
Á fundi borgarráðs í vikunni kvartaði Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins, yfir þeirri staðreynd að flokkur hennar hefði lagt fram, eða verið aðili að, 145 tillögum fyrir borgarstjórn. Aðeins sex tillögur hefðu verið samþykktar sem gera rúmlega fjögur prósent. Lét Kolbrún bóka að margir málaflokkar sem sneru að grunnþjónustu við borgarbúa hefðu mætt afgangi hjá meirihlutanum og að það væru þessi mál sem hún væri að reyna að vekja athygli á. Ályktaði hún að meirihlutinn hefði gert að venju sinni að kjósa eftir flokkslínum en ekki málefnum. Fulltrúar meirihlutans létu bóka að fjöldi mála endurspeglaði ekki endilega gæði mála. Það væri af og frá að meirihlutinn samþykkti eingöngu mál eftir flokkslínum. Þegar góð mál kæmu fram sem tónuðu við áherslur meirihlutans hefði verið tekið vel í það enda sýndi það sig að meirihlutinn hefði samþykkt ýmis mál sem komið hefðu frá minnihlutanum og stundum gert breytingar á hnökrum tillagna minnihlutans til að geta samþykkt þær. Ef hugmyndir væru ekki vel útfærðar væri þó ekki hægt að samþykkja þær þó að hugurinn væri góður.
Birtist í Fréttablaðinu Reykjavík Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Erlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira