Veittist að starfsfólki slysadeildar Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 2. september 2017 08:00 Það er þröngt á þingi í fangageymslum lögreglunnar þennan laugardagsmorgun Vísir/Eyþór
50 mál komu á borð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt og eru allar fangageymslur fullar nú í morgunsárið. Um klukkan hálf eitt í nótt var tilkynntum eld í íbúð í Austurbrún. Íbúðin var reykræst en ekki er talið að miklar skemmdir séu á íbúðinni vegna reiksins. Klukkan tvö í nótt var aðili fluttur með sjúkrabíl á slysadeild landspítala vegna lasleika. Þegar þangað var komið setti viðkomandi hnefana fyrir sig og veittist að starfsfólki slysadeildarinnar. Aðilinn var handtekinn og vistaður í fangageymslu. Laust fyrir klukkan eitt í nótt var tilkynnt um árekstur á Bústaðavegi þar sem bíl hafði verið ekið á vegrið. Ökumaðurinn var farinn af vettvangi þegar lögregluna bar að. Vopn fundust við leit í bifreiðinni sem og fíkniefni. Þá var aðili handtekinn rétt fyrir hálf tólf í gærkvöldi á Laugavegi eftir að hafa ekið á bíl og ekið af vettvangi. Maðurinn var handtekinn stuttu síðar en hann reyndist ölvaður og án ökuréttinda. Þá var aðili handtekinn klukkan korter í tvö grunaður um innbrot í fyrirtæki og verður hann yfirheyrður seinna í dag. Þá stöðvaði lögreglan bifreið á Vesturlandsvegi klukkan 02:43 eftir að hraði hennar mældist 128 km/klst þar sem hámarkshraði var 80 km/klst. Bíllinn reyndist líka vera ótryggður svo að skráningarnúmer bílsins voru fjarlægð. Þá var kona handtekinn í Bankastræti í nótt eftir að hafa slegið dyravörð á skemmtistað í miðborginni. Hún gistir fangageymslu þar til unnt er að yfirheyra hana síðar í dag. Fjórir aðilar voru handteknir grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna og þá var maður handtekinn í vesturbæ Reykjavíkur rétt fyrir klukkan sex í morgun með umtalsvert magn af fíkniefnum sem grunur er á að hafi verið ætlaður til sölu. Málið er nú til rannsóknar hjá lögreglu.
Lögreglumál Mest lesið Þrír látnir í risaöldum á Tenerife Erlent Aflýsa yfir þúsund flugferðum Erlent Var komin á slæman stað og fór ekki úr húsi án fylgdar Innlent Gestir Bylgjunnar fá að synda undir þessu þaki Erlent Fölsuð megrunarlyf líklega á leið til landsins Innlent Getur ríkislögreglustjóri setið áfram? Innlent Nærri milljón rýmir vegna ofurfellibyls Erlent Hann hlýtur að leggja allt kapp á Reykjavík Innlent Engin ástæða til að breyta neinu Innlent Réðst á lögreglumann í miðbænum Fréttir Fleiri fréttir Hann hlýtur að leggja allt kapp á Reykjavík Margir keypt fleiri en einn vegna fordómafullrar umræðu Borgarstjórnarsigur lífsnauðsynlegur Sjálfstæðismönnum Brunaði af stað frá ölvunarpósti en var handtekinn við Hamraborg Var komin á slæman stað og fór ekki úr húsi án fylgdar Þriggja stiga skjálfti í Öskju Getur ríkislögreglustjóri setið áfram? Píratar kjósa formann í lok mánaðar Reyndi að flýja lögreglu en endaði uppi á kanti Engin ástæða til að breyta neinu Fölsuð megrunarlyf líklega á leið til landsins Óljóst hvað olli því að rútan hafnaði utan vegar Geta haft opið um helgar en algjör óvissa um húsnæðismálin Brosið fer ekki af Hrunamönnum Eldur bak við innstungu reyndist minni háttar Hætta á fölsuðum megrunarlyfjum og leitað í ræturnar Útkall á mesta forgangi vegna kajakræðara í vanda „Mikið svakalega hlakka ég til að hreinsa til í ráðhúsinu“ Í beinni: Skyndifundur Sjálfstæðismanna á Grand Hotel Alltaf hægt að gera betur á meðferðarheimilunum Menningarverðlaun Árborgar til hjóna á Eyrarbakka Seatrips gert að greiða hundrað milljónir vegna tjóns á flutningaskipi Óskiljanleg lánaviðmið og Grammy-tilnefning stórstjörnunnar Eldur í þúsund fermetra fjósi með skepnum inni Happdrætti Háskólans sýknað af tugmilljóna kröfu Catalinu Veittist fyrst að dyravörðum og svo að lögreglumönnum Fluttur á slysadeild eftir hópárás Grunaður um að aka undir áhrifum með börnin aftur í Sótti konuna á lögreglustöðina áður en hann réðst á hana Hrekur Walt-Disney líkingar þingmanns Sjá meira