Gestir Bylgjunnar fá að synda undir þessu þaki Kristján Már Unnarsson skrifar 9. nóvember 2025 07:37 Sundhöllin Bylgjan í Runavík ásamt samtengdum íþróttasal. Teikning/Runavik.fo Bæjarráð Runavíkur í Færeyjum hefur samþykkt að ný sundhöll sveitarfélagsins fái heitið Bylgjan. Það er sama nafn og er þegar fyrir á íþróttahúsi sem sundhöllin er byggð við. Bæjarráðið segir að með viðbyggingunni bætist tvær nýjar bylgjur við og muni því öll íþróttamiðstöðin heita Bylgjan.
Sundhöllin er hið veglegasta mannvirki með þremur laugarkerjum. Aðallaugin er 25 metra löng og 21 metra breið með átta sundbrautum. Einnig eru barnalaug með stórri rennibraut og heit setlaug sem og gufubað. Byrjað er að dæla vatni í laugarker Bylgjunnar.Eysturoyarportalurin Þetta er fyrsta sundhöllin sem rís í Runavík en sextíu ár eru frá því áætlanir voru fyrst kynntar um smíði sundlaugar í sveitarfélaginu. Það var þó ekki fyrr en árið 2022 sem skrifað var undir verksamning jafnvirði 3,2 milljarða íslenskra króna og var þá vonast til að sundhöllin yrði tilbúin árið 2024. Bylgjan virkar björt og notaleg.Eysturoyarportalurin Verkið hefur hins vegar dregist og er núna vonast til að sundhöllin verði tilbúin fyrir jól eða áramót. Enginn formlegur opnunardagur hefur þó verið tilkynntur. Nýjar myndir sem vefmiðilinn eyp.fo veitti okkur góðfúslegt leyfi til að birta sýna að byrjað er að dæla vatni í laugarkerin. Tekið er fram að enn sé nokkur vinna eftir. Heiti potturinn innanhúss er með stórum útsýnisglugga.Eysturoyarportalurin Sundhöllin verður kynt með jarðhita. Sveitarfélagið hefur í samstarfi við Orkustofnun Færeyja, Jarðfeingi, staðið fyrir stærsta jarðhitaverkefni Færeyja og hafa þrjátíu holur verið boraðar. Er vonast til að jarðhitinn sem fundist hefur dugi einnig til að kynda grunnskóla og ráðhúsið með hjálp varmadæla. Stór rennibraut er við barnalaugina.Eysturoyarportalurin Runavík er þriðja stærsta sveitarfélag Færeyja með 4.400 íbúa, á eftir Þórshöfn og Klakksvík, og á tvo vinabæi á Íslandi, Ísafjörð og Egilsstaði. Runavíkar kommuna nær yfir fimmtán byggðir; þær fjölmennustu eru Saltangar með 1.200 íbúa, Runavík með 600 íbúa og Glyvrar með 500 íbúa. Þær liggja allar samsíða við austanverðan Skálafjörð. Þessi mynd er úr öðru þorpi, Leirvík, þar sem eru komnir nýir útipottar við sundhöllina þar.Eysturoyarportalurin Austureyjargöngin, sem opnuð voru árið 2020, styttu leiðina milli Runavíkur og Þórshafnar úr 55 kílómetrum niður í 17 kílómetra. Þessi ellefu kílómetra löngu neðansjávargöng hafa jafnframt stuðlað að verulegri fólksfjölgun í sveitarfélaginu, sem núna er orðið eins og úthverfi frá höfuðstaðnum. Frumleg útisturta í lauginni í Leirvík. Hér fá menn að upplifa orðtakið „eins og hellt sé úr fötu“. Hvort vatnið í fötunni verður ískalt fá gestir reynt á eigin skinni.Eysturoyarportalurin Þáverandi forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, heimsótti sveitarfélagið árið 2017. Hann hitti þá Torbjørn Jacobsen bæjarstjóra og Regin Jacobsen, forstjóra Bakkafrosts, stærsta fyrirtækis Færeyja: Runavík hefur meðal annars sinnt þjónustu við olíuiðnað og hafa ráðamenn þar boðið höfnina fram sem þjónustumiðstöð fyrir Drekasvæðið, eins og fram kom í þessari frétt þegar Stöð 2 heimsótti Runavík fyrir tólf árum:
Færeyjar Sundlaugar og baðlón Sund Jarðhiti Tengdar fréttir Þriggja arma neðansjávargöng bylta samgöngum í Færeyjum Færeyingar fögnuðu um helgina opnun stærsta samgöngumannvirkis eyjanna, Austureyjarganganna, neðansjávarganga milli Straumeyjar og Austureyjar, sem lýst hefur verið sem mestu samgöngubyltingu í sögu Færeyja. 21. desember 2020 22:21 Þetta eru jarðgöngin sem bylta Færeyjum Framkvæmdir eru hafnar við mesta samgöngumannvirki Færeyja, ellefu kílómetra löng neðansjávargöng sem stytta aksturstímann milli Þórshafnar og Klakksvíkur um helming. 26. febrúar 2017 07:30 Færeyingar fríska upp á olíuborpall Einn stærsti olíuborpallur heims, risapallurinn West Hercules, hefur undanfarinn mánuð verið í viðamikilli klössun í Færeyjum. 21. september 2014 13:30 Mest lesið Vaktin: Þjóðin býr sig undir illviðri Veður Taka ákvörðun um skólahald síðdegis Innlent Gremja innan Landspítala vegna stóra páskaeggjahallærisins Innlent „Þetta er fréttamennska sem er stórhættuleg“ Innlent Bíll í ljósum logum Innlent Sigmundur Davíð helsti áhrifavaldur á afstöðu Össurar í ESB-málinu Innlent Ragnheiður Erla Bjarnadóttir er látin Innlent Ekkert bendi til tengsla við Hamas-samtökin Innlent „Fólkið er að öskra: Donald Trump, komdu núna“ Innlent Margrét fær ekki að leiða dómaratríóið fyrir dóm Innlent Fleiri fréttir Frederiksen fær umboð til stjórnarmyndunar Íranir hafna friðartillögu Bandaríkjamanna Ætla að lýsa öldunga látna nema þeir sýni lífsmark Allt velti á Rasmussen Skrúfa fyrir eina helstu leiðina fyrir gas til Úkraínu Tveir handteknir vegna sjúkrabílabrennu Vill halda áfram sem forsætisráðherra Íranir segja engar viðræður í gangi þvert á yfirlýsingar Trumps Biðlar til Løkke að mynda með sér miðhægristjórn Tæplega þúsund drónar á einum sólarhring Haaland keypti Heimskringlu á 17 milljónir „Markmiðið er ekki að komast til tunglsins, heldur búa þar“ Útgönguspá: Ríkisstjórninni refsað en Løkke í lykilstöðu Sendir líka fallhlífarhermenn til Mið-Austurlanda Listamaður reyndi að kaupa atkvæði Gengst nú við að gaspra í Rússa Trump „svindlaði“ í kosningum í Flórída Ísraelar hyggjast hernema suðurhluta Líbanon Á rúntinum með andefni Danir ganga að kjörborðinu í afar spennandi kosningum Gervigreindarmyndskeiðum af barnaníði fjölgar gífurlega Meloni beið „bitran“ ósigur í þjóðaratkvæðagreiðslu Viðræður eða ekki viðræður, þarna er efinn Notuðu myndavélar klerkastjórnarinnar til að fella Khamenei Sakar Orbán og félaga um landráð Íranir segja engar viðræður við Trump-liða eiga sér stað Deila á Bandaríkjaforseta fyrir að dansa á gröf rannsakanda Líklegt að Rasmussen verði í oddastöðu eftir kosningar Eigandi OnlyFans látinn Gerir hlé á árásum á Íran Sjá meira
Þriggja arma neðansjávargöng bylta samgöngum í Færeyjum Færeyingar fögnuðu um helgina opnun stærsta samgöngumannvirkis eyjanna, Austureyjarganganna, neðansjávarganga milli Straumeyjar og Austureyjar, sem lýst hefur verið sem mestu samgöngubyltingu í sögu Færeyja. 21. desember 2020 22:21
Þetta eru jarðgöngin sem bylta Færeyjum Framkvæmdir eru hafnar við mesta samgöngumannvirki Færeyja, ellefu kílómetra löng neðansjávargöng sem stytta aksturstímann milli Þórshafnar og Klakksvíkur um helming. 26. febrúar 2017 07:30
Færeyingar fríska upp á olíuborpall Einn stærsti olíuborpallur heims, risapallurinn West Hercules, hefur undanfarinn mánuð verið í viðamikilli klössun í Færeyjum. 21. september 2014 13:30