Múlaþing

Múlaþing

Mannfjöldi: 5.232 (2025). Flatarmál: 10.671 ferkílómetrar. Stærstu byggðakjarnar: Egilsstaðir, Seyðisfjörður, Brúarás, Eiðar, Fellabær, Hallormsstaður, Djúpivogur, Borgarfjörður eystri.


Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Stefni í sömu átt og Sví­þjóð

Aukinn innflutningur fíkniefna með Norrænu veldur verulegum áhyggjum. Lögreglan segir málin tengjast skipulagðri glæpastarfsemi og að grípa verði inn í áður en ástandið versni.

Innlent
Fréttamynd

Lög­reglan á Austur­landi kom að hand­töku fimm­tíu

Um fimmtíu voru handteknir í samræmdri lögregluaðgerð evrópskra yfirvalda gegn skipulagðri brotastarfsemi á svæðinu kringum Eystrasalt í síðustu viku. Verðmæti upp á rétt um 70 milljónir króna voru haldlögð. Lögreglumaður frá Lögreglunni á Austurlandi tók þátt í aðgerðunum.

Innlent
Fréttamynd

Lundinn sestur upp í Hafnarhólma

Lundinn settist upp í Hafnarhólma á Borgarfirði eystri fyrir helgi en þar um slóðir er koma lundans til merkis um að vorið sé á allra næstu grösum.

Innlent
Fréttamynd

Glóru­laust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr

Hátt í fimmtíu bílar voru fastir á veginum sem liggur yfir Möðrudalsöræfi á milli Jökuldals og að Vopnafjarðarafleggjaranum í gær. Harðduglegur strákur sinnti vegaaðstoð og reyndi eftir fremsta megni að losa bíla sem margir voru illa búnir og ófjórhjóladrifnir húsbílar í leigu erlendra ferðamanna.

Innlent
Fréttamynd

Austur­land má ekki sitja eftir

Samgöngur eru ekki lúxus. Þær eru lífæð samfélaga. Fyrir íbúa í Múlaþingi, næst víðfeðmasta sveitarfélagi landsins þar sem langt er á milli byggðarkjarna, eru öruggar samgöngur forsenda þess að daglegt líf gangi upp, að atvinnulíf dafni og að fólk geti sótt þá þjónustu sem þarf hverju sinni.

Skoðun
Fréttamynd

Stöðvuðu ferða­menn sem reyndust ekkert grun­sam­legir

Lögreglan á Austurlandi stöðvaði hóp erlendra ferðamanna á leið til Egilsstaða í gær þar sem lögreglu höfðu borist ábendingar um þar væri á ferð hópurinn sem hefði farið ránshendi um verslun í Skaftafelli. Sá hópur reyndist aftur á móti ekki hafa neitt þýfi meðferðis.

Innlent
Fréttamynd

Gamblað með göng og líf lögð undir

Þessi vetur hefur verið þungur fyrir Austfirðinga. Óvenju þungur. Ekki bara hefur óveður ítrekað lokað vegum, heldur hefur Innviðaráðherra þyngt róðurinn enn frekar.

Skoðun
Fréttamynd

Rýma hús á Seyðis­firði

Ákveðið hefur verið að rýma hús á Seyðisfirði vegna snjóflóðahættu. Um tíu manns munu þurfa að yfirgefa heimili sín klukkan átta í kvöld.

Innlent
Fréttamynd

Mikil­vægast með jarð­göngum að losna við hættu­legustu vegi

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra vísaði til náttúruvár þegar hann varði þá ákvörðun sína að setja Fljótagöng til Siglufjarðar í efsta sæti forgangslista næstu jarðganga. Á opnum fundi umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis í morgun bentu tveir þingmenn Norðausturkjördæmis hins vegar á að innan Fjallabyggðar væri jafnvel sterkari krafa um að fá ný Múlagöng vegna ítrekaðra snjóflóða í Ólafsfjarðarmúla.

Innlent
Fréttamynd

Þau skipa lista Sjálf­stæðis­manna í Múla­þingi

Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna í Múlaþingi samþykkti í gær framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Múlaþingi fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Berglind Harpa Svavarsdóttir mun áfram leiða listann, líkt og hún gerði fyrir kosningarnar 2022.

Innlent
Fréttamynd

Gagnheiðargöng verði sátta­leið Aust­firðinga

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur verið boðaður á opinn fund umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis á fimmtudag til að svara spurningum um forgangsröð jarðganga. Fjarðabyggð hefur kynnt þingnefndinni tillögu að sáttaleið á Austfjörðum.

Innlent
Fréttamynd

Raforkureikningurinn: Hver hagnast – hver borgar?

Lækkun verðs á raforku til húshitunar hefur lengi verið baráttumál sveitarfélaga á köldum svæðum. En af hverju hefur árangurinn ekki verið meiri? Þetta verður meginumræðuefnið á ráðstefnu Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum sem ber heitið „Raforkureikningurinn: Hver hagnast – hver borgar? Hverju er hægt að breyta” og fer fram á morgun, miðvikudaginn 18. mars.

Skoðun
Fréttamynd

Með skerta at­hygli af ó­þekktum á­stæðum þegar slysið varð

Rannsóknarnefnd samgönguslysa hvetur þá sem flytja inn ökutæki til að flytja ekki inn bíla sem eru án loftpúða fyrir farþega í framsæti. Í nýrri skýrslu nefndarinnar um banaslys við Kross í Berufirði í mars í fyrra segir að meginorsök slyssins hafi verið að öðrum bílnum hafi verið ekið yfir á rangan vegarhelming og að ökumaður hafi verið með skerta athygli. 

Innlent
Fréttamynd

Hring­vegurinn lík­lega lokaður til morguns

Skólahaldi var aflýst í tveimur skólum í Múlaþingi í morgun vegna veðurs og þá loka skólar í Fjarðabyggð á hádegi. Hringveginum um Mývatn og Möðrudalsöræfi var lokað í morgun og ekki er búist við að hann opni á ný fyrr en í fyrramálið.

Innlent
Fréttamynd

Refsað fyrir að loka á konu og keyra yfir fætur hennar

Rútubílstjóri hjá ÍS-Travel hefur verið dæmdur í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa keyrt yfir konu með þeim afleiðingum að hún slasaðist alvarlega. Hann var dæmdur til að greiða konunni 1,3 milljónir króna í miskabætur.

Innlent
Fréttamynd

Svínar á Austur­landi með ó­heiðar­leika til að koma sínum jarð­göngum að

Það er eitt að vera ósammála um forgangsröðun jarðgangaverkefna. Það er allt annað að fara með rangar eða villandi upplýsingar til að réttlæta hana. Nú liggur fyrir að yfirlýsingar innviðaráðherra um tímaramma Fljótaganga standast ekki skoðun samkvæmt upplýsingum sem Austurfrétt og Rúv hafa undir höndum frá Vegagerðinni og ráðuneytinu.

Skoðun