Skóla- og menntamál

Skóla- og menntamál

Fréttir af skóla- og menntamálum á Íslandi.

Fréttamynd

Engu slaufað

Þingmaður Framsóknarflokksins, Stefán Vagn Stefánsson, fór mikinn í ræðustól Alþingis fyrr í vikunni með stórkarlalegum yfirlýsingum um að uppbyggingu verknámsskóla hafi nú verið „slaufað“, á vakt nýrrar ríkisstjórnar. Það er einfaldlega rangt.

Skoðun
Fréttamynd

Fag­legt mat eða lukka? II. Viður­kenning og höfnun

Ég stofnaði fyrirtækið Stafbók slf., námsbókaútgáfa, í desember 2024 og bjóst ég ekki við mikilli útbreiðslu námsefnisins strax. Vorið 2025 kenndu fjórir framhaldsskólar efni frá Stafbók – án sérstakrar markaðssetningar. Þetta var mér mikil hvatning og staðfesting á því að verkið hefði gildi fyrir fleiri en mig sjálfan.

Skoðun
Fréttamynd

„Erum ekki dúkkur sem Snorri getur sagt fyrir verkum“

Þær Diljá Karen Kristófersdóttir Kjerúlf og Úlfhildur Elísa Hróbjartsdóttir furða sig mjög á ummælum Kolbrúnar Áslaugar Baldursdóttur þingmanns Flokks fólksins og telja sig ómaklega hafa orðið fyrir skeyti sem hún hafi ætlað minnihlutanum.

Innlent
Fréttamynd

Bras og brall við gerð Brákarborgar

„Brákarborg hefur – ótrúlegt en satt – lent í neikvæðri umræðu í pólitíkinni því þar keyptum við gamla hjálpartækjaverslun og breyttum í einhvern fallegasta og vandaðasta leikskóla sem ég hef séð. Framkvæmdin var umhverfisvottuð og fékk hönnunarverðlaunin Grænu skófluna.“ Þessi ummæli í fésbókarfærslu þáverandi borgarstjóra frá 21. mars 2023 eldast ekki vel.

Skoðun
Fréttamynd

Kol­brún segir gesti nefndarinnar hand­bendi minni­hlutans

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, þingmaður Flokks fólksins, var meðal þeirra sem tók til máls í atkvæðagreiðslu um grunnskólanámsmat. Tillagan var samþykkt. En Kolbrún bauð hins vegar upp á ásakanir í tengslum við vinnu í allsherjar- og menntamálanefnd sem hleypti öllu í bál og brand.

Innlent
Fréttamynd

Öllum sagt upp: „Ekkert verið að hugsa um félagsmiðstöðvastarf“

Þrettán starfsmönnum á félagsmiðstöðvum Akureyrarbæjar var sagt upp á dögunum þar sem bæjaryfirvöld færðu rekstur þeirra undir skólana. Tíu manns voru boðin störf undir nýju fyrirkomulagi en ekki endilega sömu störf. Starfsfólk lýsir áhyggjum af því að frístundastarf í bænum rýrist.

Innlent
Fréttamynd

Fag­legt mat eða lukka? I: Frá kennslu­stofu til stafbókar

Árið 2014 hóf ég störf sem kennari í félagsfræði við Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Strax eftir fyrstu önnina varð mér ljóst að hefðbundið námsefni stóð ekki undir þeim hraða og dýpt sem samfélagsbreytingar krefjast. Það vantaði efni sem náði tengingu við líf nemenda í samtímanum – efni sem horfði fram á við samhliða því að nýta það besta úr fortíðinni.

Skoðun
Fréttamynd

Mörgu á­bóta­vant við byggingu Brákarborgar

Ný skýrsla sem kynnt var fyrir borgarráði í dag um framkvæmdir í leikskólanum Brákarborg sýnir að mörgu hafi verið ábótavant við framkvæmdirnar. Til að mynda hófust framkvæmdir á þaki hússins áður en teikningar frá hönnuði og burðarvirkishönnuði lágu fyrir frá byggingarfulltrúa.

Innlent
Fréttamynd

Evrópu­met! Há­skóla­menntun minnst metin á Ís­landi

Ísland trónir á toppi Evrópu en á röngum lista.Ný gögn sýna að Íslendingar fá minnst fyrir háskólagráðuna af 35 Evrópuþjóðum – þegar horft er til munar í ráðstöfunartekjum háskólamenntaðra og grunnskólamenntaðra. Munurinn er hér einungis metinn 21% að meðaltali fyrir aldurshópinn 18–64 ára, samanborið við 76% að meðaltali innan Evrópu.

Skoðun
Fréttamynd

Leikskóla­gjöld í Kópa­vogi þau hæstu á landinu

Samleik – samtök foreldra leikskólabarna í Kópavogi – lýsa yfir áhyggjum vegna hækkunar á leikskólagjöldum sem tók gildi 1. apríl síðastliðinn. Um er að ræða aðra hækkun bæjarins á árinu, og að teknu tilliti til regluverks hefur bærinn heimild til að hækka leikskólagjöldin allt að tvívegis til viðbótar á þessu ári.

Skoðun
Fréttamynd

Bíla­stæðið rifið upp með rótum

Á bílastæðinu við Laugardalsvöll er nú unnið að því að rífa upp malbik svo hægt sé að leggja grunn að nýju skólaþorpi. Áætlað er að tíu kennslustofur fyrir börn í Laugarnesskóla verði reiðubúnar til notkunar í haust. 

Innlent
Fréttamynd

Karlar, piltar og strákar

Eftir að hafa lesið góðan pistil Þrá­ins Farest­veit, af­brota­fræðing­s og fram­kvæmda­stjóra Vernd­ar, í Morgunblaðinu langar mig að stinga niður penna og taka saman nokkrar tölfræðiupplýsingar sem byggja á opinberum tölum og rannsóknum frá Hagstofu Íslands, Fangelsismálastofnun, Landlæknisembættinu og Vinnueftirlitinu (sjá að neðan).

Skoðun
Fréttamynd

Kemur þín há­skóla­gráða úr kornflakes pakka?

Íslenskt menntakerfi hefur átt undir högg að sækja ef marka má umfjöllun síðustu ára, sbr. niðurstöður úr PISA og auðvitað frumvörp um gjaldfellingu á virði einkunna í boði Flokks Fólksins. En hvernig komumst við hingað?

Skoðun
Fréttamynd

„Fal­legur dagur“ fyrir út­skrift

Tæplega tvö hundruð nemendur brautskráðust frá Menntaskólanum við Sund en í ræðum hátíðarhaldanna var þeim lýst sem ólíkum nemendum sem lærðu allir mikilvægar lexíur á meðan skólagöngunni stóð. Bæði dúx og semídúx skólans komu af félagsfræðibraut.

Innlent
Fréttamynd

Tíundi hver með á­gætis­ein­kunn í MR

Menntaskólanum í Reykjavík var slitið í 179. sinn við hátíðlega athöfn í Háskólabíó í gær þar sem 194 stúdentar brautskráðust. Matthildur Bjarnadóttir dúxaði með einkunnina 9,65 og var tíundi hver nemandi með ágætiseinkunn.

Innlent
Fréttamynd

Matti Matt nú meistari

Tónlistarmaðurinn og Dalvíkingurinn Matthías Matthíasson, betur þekktur sem Matti Matt, útskrifaðist nýverið sem húsasmíðameistari. Matthías greindi frá tímamótunum í færslu á Facebook þar sem hann lýsir yfir stolti að hafa klárað nám eftir rúmlega 30 ára hlé.

Lífið
Fréttamynd

Mætti með steikarhníf á leik­skóla

Maður í annarlegu ástandi var handtekinn í Grafarholti í dag en hann kom inn á leikskóla með stóran steikarhníf á sér. Maðurinn ógnaði engum með hnífnum en var hann sökum ástands vistaður í fangageymslu þar til hægt verður að taka af honum skýrslu.

Innlent
Fréttamynd

Fjöl­skyldan fyrst

Á undanförnum árum hafa kröfur um aukna þjónustu og lengri opnunartíma leikskóla orðið háværari. Kröfur sem oft eru settar fram með skírskotun til þarfa foreldra og atvinnulífs, en sem í raun spegla afturför í réttindum barna og fjölskyldna. Sveigjanlegur opnunartími leikskóla er til að þóknast vinnumarkaðinum fremur en þörfum barna.

Skoðun
Fréttamynd

Dúxinn greip í saxófóninn

Alls útskrifuðust 175 nemendur frá FB við hátíðlega athöfn í Silfurbergi Hörpu um helgina. Kristinn Rúnar Þórarinsson, dúx skólans af stúdentsbraut, lauk einnig námi af húsamiðabraut auk þess að spila á saxófón við útskriftina.

Innlent
Fréttamynd

Óttast að stefna Trump-stjórnarinnar fæli náms­menn frá Banda­ríkjunum

Stjórn Donalds Trump Bandaríkjaforseta hefur fyrirskipað öllum sendirráðum landsins að hætta tímabundið að taka við umsóknum námsmanna um vegabréfsáritanir. Forseti Sambands íslenskra námsmanna erlendis hefur áhyggjur af stöðunni og segir alvarlegt að vegið sé að tjáningarfrelsi þeirra sem hyggja á nám í Bandaríkjunum, og hvetur námsmenn sem fundið hafa fyrir áhrifum þessa til að leita til samtakanna og deila reynslu sinni.

Innlent
Fréttamynd

Ritunarra­mminn - verk­færi fyrir kennara!

Í heimi þar sem gervigreind getur skrifað texta og jafnvel heilar ritgerðir á nokkrum sekúndum gætu margir haldið að draga mætti úr vægi ritunarkennslu. En þrátt fyrir þessar miklu tækniframfarir, eða kannski einmitt vegna þeirra, hefur ritunarkennsla aldrei verið mikilvægari fyrir íslenska nemendur!

Skoðun
Fréttamynd

Sparnaðurinn bitni á fjöl­skyldum

Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir að flokkurinn tali fyrir meiri sveigjanleika og fjölbreytni í leikskólakerfinu, en flokkurinn bókaði gegn ákvörðun meirihlutans um að afnema lengri opnun ákveðinna leikskóla til klukkan 17. Hún segir að sparnaður sem af þessu hlýst ýtist bara yfir á fjölskyldur.

Innlent