Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Mörg þúsund kaþólskir mótmælendur hafa stillt sér upp á leið skrúðgöngu Óraníureglunnar um bæinn Portadown í Armagh-sýslu Norður-Írlands. Göngunni hefur verið frestað vegna þessa en fylkingarnar stefna hvor í átt að annarri í mígandi rigningu og spennan minnir á sorgleg átök síðustu aldar. Erlent 27.9.2026 11:18
Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Óraníureglunni verður heimilt að ganga um Garvaghy Road í Portadown á Norður-Írlandi í fyrramálið, í fyrsta sinn í 28 ár. Áfrýjunardómstóll í Belfast felldi seint á laugardagskvöld úr gildi tímabundið bann sem hafði verið lagt við göngunni aðeins nokkrum klukkustundum áður. Erlent 27.9.2026 00:03
Vilja verða jafningjar Englendinga Tími Westminster er að líða undir lok. Þetta segja leiðtogar Skotlands, Wales og Norður-Írlands sem hafa skrifað undir sameiginlega yfirlýsingu um að yfirvöld í Bretlandi hefji undirbúning fyrir sundurliðun Stóra-Bretlands. Allir vilja þeir sjálfstæði frá Lundúnum og fá að ákvarða eigin framtíð. Erlent 14.9.2026 13:44
Ætla að sækja óeirðaseggi í Belfast til saka Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, segir að óeirðaseggir í Belfast muni verða sóttir til saka. Óöldin sem þeir ollu í borginni sé sjokkerandi og með öllu ólíðanleg. Ekkert geti réttlætt ofbeldi og það hvernig ýtt var undir óeirðirnar á netinu og annarsstaðar. Erlent 10. júní 2026 10:18
Óeirðir í Belfast eftir hnífstungu Til óeirða kom í nótt í Belfast á Norður-Írlandi þar sem kveikt var í húsum, bílum og strætisvögnum í kjölfar mótmæla gegn innflytjendum. Hópar grímuklæddra manna eru sagðir hafa farið um hverfi borgarinnar og prestur í norðurhluta hennar segir að sérstaklega hafi verið ráðist að heimilum svartra í borginni. Erlent 10. júní 2026 06:56
Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Á tímum átakanna á Norður-Írlandi, jafnan kölluð The Troubles, varð enska yfirstéttarkonan Rose Dugdale einn herskáasti skæruliði Írska lýðveldishersins (ÍRA). Dugdale nýtti menntun sína og breskan yfirstéttarhreim til að skipuleggja sumar af djörfustu aðgerðum ÍRA. Lífið 14. apríl 2026 09:53
Leikarinn Michael Patrick látinn eftir baráttu við MND Norður-írski leikarinn og handritshöfundurinn Michael Patrick er látinn, 35 ára að aldri, eftir rúmlega tveggja ára baráttu við taugasjúkdóminn MND. Patrick skrifaði sjónvarpsþættina My Left Nut sem byggðu á hans eigin reynslu, lék á sviði og smáhlutverk í hinum ýmsu þáttum, þar á meðal í sjöttu seríu Krúnuleikanna. Bíó og sjónvarp 9. apríl 2026 10:39
Hylmdu yfir með „Steikarhnífnum“ í Írska lýðveldishernum Breska leyniþjónustan hélt hlífiskildi yfir flugumanni sínum innan Írska lýðveldishersins þrátt fyrir að hann væri eftirlýstur fyrir morð. Hún hélt áfram að þagga mál útsendarar sem hafði dulnefnið „Steikarhnífurinn“ niður löngu eftir að mesta ófriðnum á Norður-Írlandi lauk. Erlent 9. desember 2025 15:15
Sýknaður af öllum ákærum vegna „blóðuga sunnudagsins“ Dómstóll í Belfast á Norður-Írlandi sýknaði í dag breskan fyrrverandi fallhlífarhermann af öllum ákærum um morð og tilraun til manndráps á svonefndum blóðuga sunnudegi fyrir rúmri hálfri höld. Stjórnmálamenn hvetja Norðuríra til stillingar eftir niðurstöðuna. Erlent 23. október 2025 14:31
Rapparinn og málverndarsinninn frjáls ferða sinna Dómari vísaði í gær máli rapparans írska Liam Óg Ó hAnnaidh, betur þekkts sem Mo Chara, frá. Hann myndar ásamt þeim Móglaí Bap og DJ Próvaí rappsveitina Kneecap sem hefur vakið mikla athygli fyrir afdráttarlausan stuðning sinn við frelsi Palestínu og endurnýjun lífdaga írska tungumálsins. Lífið 27. september 2025 15:31
Svarar til saka fyrir morð á „blóðuga sunnudeginum“ Réttarhöld yfir breskum uppgjafarhermanni fyrir morð og tilraunir til manndráps í Londonderry/Derry á Norður-Írlandi á blóðuga sunnudeginum svonefnda hefjast í dag. Enginn hefur nokkru sinni verið dæmdur sekur um fjöldamorðið. Erlent 15. september 2025 09:19
Rappsveitin sem sætti hryðjuverkarannsókn sleppur með skrekkinn Breska ákæruvaldið hefur ákveðið að aðhafast ekki í máli írsku rapphljómsveitarinnar Kneecap sem var til rannsóknar hjá lögreglu vegna ummæla sem hljómsveitarmeðlimir létu falla á tónlistarhátíðinni Glastonbury. Erlent 18. júlí 2025 18:32
Réðust á tómstundamiðstöð fyrir útlendinga þegar óeirðir héldu áfram Grímuklæddir óeirðaseggir lögðu eld að tómstundamiðstöð sem er notuð sem skýli fyrir förufólk á Norður-Írlandi í gærkvöldi. Fólkið í stöðinni hafði flúið óeirðir í bænum Ballymena sem hafa nú geisað þrjár nætur í röð. Erlent 12. júní 2025 13:38
„Rasísk glæpamennska“ hélt áfram á Norður-Írlandi í nótt Sautján lögreglumenn særðust þegar óeirðarseggir köstuðu bensínsprengjum, múrsteinum og flugeldum í þá í ofbeldisfullum mótmælum sem héldu áfram á Norður-Írlandi, aðra nóttina í röð. Lögreglan lýsir mótmælunum sem „rasískri glæpamennsku“. Erlent 11. júní 2025 13:05
Jonny Evans heiðraður fyrir landsleik kvöldsins Norður-Írinn Jonny Evans lék á dögunum sinn síðasta fótboltaleik með Manchester United og hefur lagt fótboltaskóna á hilluna. Norður-írska knattspyrnusambandið mun heiðra hann, ásamt annarri hetju, Steven Davis á Windsor Park í kvöld. Fótbolti 10. júní 2025 12:33
Rapphljómsveit til rannsóknar hjá hryðjuverkadeildinni Norður-írsk rapphljómsveit er til rannsóknar hjá hryðjuverkadeild bresku lögreglunnar. Hún er sökuð um að vera hliðholl hryðjuverkasamtökum á borð við Hamas og Hezbollah og hvetja til morðs á embættismönnum. Lífið 1. maí 2025 14:59
Rauðar viðvaranir vegna Éowyn Óveðrið Eowyn gengur nú yfir Bretlandseyjar og Írland er veðrið þegar farið að valda vandræðum. Þannig hefur fjölmörgum flugferðum verið aflýst á flugvöllunum í Glasgow, Edinborg og í Dyflinni. Erlent 24. janúar 2025 07:51
Umdeild stytta af drottningu sögð líkjast grínkarakter Ný bronsstytta af Elísabetu annarri Bretadrottningu hefur vakið mikil viðbrögð meðal íbúa á Norður Írlandi. Sumir segja styttuna móðgandi þar sem hún líkist grínkarakter frekar en drottningunni sjálfri. Lífið 14. september 2024 19:03
Írskur þjóðernissinni forsætisráðherra Norður-Írlands í fyrsta sinn Michelle O'Neill, þingkona Sinn Féin, skráði sig í sögubækurnar þegar hún tók við embætti sem forsætisráðherra Norður-Írlands þegar þing kom saman í dag eftir tveggja ára sniðgöngu sameiningarsinna. Erlent 3. febrúar 2024 18:44
Rappa um verkalýðinn, sameinað Írland og málvernd Írska rapptríóið Kneecap hefur vakið mikla athygli á heimsvísu og það bæði af góða og slæma toganum. Það er kannski helst fyrir ögrandi textasmíð og krassandi framkomu. Í lögum sínum láta þeir í ljós vanþóknun sína á hendur ráðandi öflum, stuðning þeirra við hinn umdeilda Írska lýðveldisher og ýmislegt fleira lítt ríkisútvarpshæft. Tónlist 9. nóvember 2023 08:00
EM 2028 haldið á Bretlandseyjum en á Ítalíu og Tyrklandi 2032 Englendingar, Skotar, Írar og Walesverjar munu í sameiningu halda Evrópumótið í fótbolta árið 2028 en þetta var endanlega ákveðið á fundi Evrópska knattspyrnusambandsins UEFA í Sviss í dag. Þá var einnig ákveðið hvar mótið fari fram árið 2032. Fótbolti 10. október 2023 10:24
Telja gögn um lögreglumenn í höndum herskárra hópa Norðurírska lögreglan telur sig hafa vissu fyrir því að herskáir hópar lýðveldissinna hafi undir höndum gögn um lögreglumenn sem hún deildi óvart opinberlega í síðustu viku. Óttast er að hóparnir noti upplýsingarnar til þess að ógna lögreglumönnum og skapa ótta. Erlent 16. ágúst 2023 09:25
Biden heimsækir Norður-Írland Mikil öryggisgæsla er nú á Norður-Írlandi en Joe Biden Bandaríkjaforseti komar þangað í opinbera heimsókn í gærkvöldi. Erlent 12. apríl 2023 07:37
Norður-Írar á varðbergi yfir páskana Í gær voru liðin 25 ár frá því að föstudagssáttmálinn var undirritaður á Norður-Írlandi. Friðarsáttmálinn, sem kenndur er við föstudaginn langa (e. The Good Friday Agreement), var undirritaður árið 1998 og batt hann enda á þriggja áratuga löngu stríði milli írskra kaþólska þjóðernissinna og breska mótmælendur sem varð 3.600 manns að bana. Skoðun 8. apríl 2023 18:00