Líf og fjör í túninu heima Bæjarhátíðin í Túninu heima er nú í fullum gangi en hún fer jafnan fram síðustu helgina í ágúst. Lífið 27. ágúst 2022 12:54
Tap Strætó aldrei verið meira Á fyrstu sex mánuðum ársins tapaði Strætó um 600 milljónum króna og hefur tapið aldrei verið meira. Takmarkanir vegna heimsfaraldurs og erfiðleikar með nýtt greiðslukerfi, Klappið, settu strik í reikninginn en rekstrargjöld jukust um tólf prósent milli ára. Innlent 26. ágúst 2022 22:19
Skítugasta hlaup ársins á laugardaginn „Við hjá Krónunni höfum ávallt hvatt okkar starfsfólk og viðskiptavini til að huga að heilsusamlegu líferni og ekki síst að hafa gaman og því lá þátttaka okkar í Drulluhlaupinu í augum uppi. Við hlökkum til að hlaupa af stað inn í skemmtilegasta og drullugasta viðburð ársins og vonumst til að sjá sem flesta,“ segir Fanney Bjarnadóttir, verkefnastjóri lýðheilsumála hjá Krónunni en Drulluhlaup Krónunnar fer fram í Mosfellsbæ á laugardaginn. Lífið samstarf 12. ágúst 2022 08:55
Líflegt í Leirvogsá Leirvogsá er búin að eiga ágætt sumar og þessa dagana er hún í aldeilis frábæru vatni og það sem meira er að það er töluvert af laxi í henni. Veiði 11. ágúst 2022 09:30
Tengivagn á hliðina á hringtorgi Tengivagn sem dreginn var af fóðurbíl fór á hliðina á hringtorgi á mótum Vesturlandsvegs og Ásavegs í Mosfellsbæ skömmu fyrir hádegi í dag. Innlent 9. ágúst 2022 14:23
„Ömurlegt að fá svona kvikindi inn í sín híbýli“ Einhver gæti kallað það glæp gegn mannkyni en þjófahyski gerði sér lítið fyrir og braust inn í geymslu Gunnars V. Andréssonar ljósmyndara og stálu myndavélum hans eins og þær lögðu sig. Innlent 8. ágúst 2022 10:35
Dekkið þeyttist yfir á öfugan vegarhelming og framan á bíl Fjögurra bíla árekstur varð á Vesturlandsvegi í Kollafirði klukkan hálf þrjú í gær. Hjólbarði losnaði af kerru sem bíll var með í eftirdragi, þeyttist yfir á öfugan vegarhelming og framan á bíl sem kom úr gagnstæðri átt, með þeim afleiðingum að fjórar bifreiðar skullu saman. Innlent 1. ágúst 2022 08:00
Lögreglan varar fólk við að auglýsa ferðalög á samfélagsmiðlum fyrir helgi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu verður með hefðbundið eftirlit um Verslunarmannahelgina. Hún biður íbúa á svæðinu að hafa augun opin með grunsamlegum mannaferðum en innbrotsþjófar herji gjarnan á yfirgefin heimili á þessari helgi. Innlent 28. júlí 2022 13:36
Rúmar tvær milljónir króna á mánuði fyrir að stýra Mosfellsbæ Bæjarráð Mosfellsbæjar gerði ráðningarsamning við Regínu Ásvaldsdóttur, nýjan bæjarstjóra Mosfellsbæjar, í gær. Samkvæmt ráðningarsamningi fær Regína rúmlega tvær milljónir króna í mánaðarlaun, ökutækjastyrk að andvirði 150 þúsund króna auk greidds síma og nets. Innlent 15. júlí 2022 10:01
Regína verður bæjarstjóri Mosfellsbæjar Regína Ásvaldsdóttir hefur verið ráðin bæjarstjóri í Mosfellsbæ. Hún mun gegna starfinu til 2026 en hún er fyrir sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og hefur unnið þar í fimm ár. Fyrir það var hún bæjarstjóri Akraneskaupstaðar. Innlent 11. júlí 2022 10:26
Fimmtán ára vill bæjarstjórastólinn: „Ég hef allavega stuðning félaga minna“ Mosfellingur á sextánda aldursári hefur sótt um stöðu bæjarstjóra í sveitarfélaginu. Meðal stefnumála hans er að styðja betur við kennara og gera Mosó að grænna samfélagi. Lífið 5. júlí 2022 20:07
Þau sóttu um stöðu bæjarstjóra í Mosfellsbæ Alls sóttu þrjátíu um stöðuna bæjarstjóra í Mosfellsbæ sem auglýst var laust til umsóknar á dögunum. Fimm drógu umsóknir sínar til baka. Nýr bæjarstjóri mun taka við stöðunni af Haraldi Sverrissyni sem gengdi stöðunni síðustu fimmtán árin. Í hópi umsækjanda er fjöldi einstaklinga sem hafa gegnt stöðu bæjar- eða sveitarstjóra í öðrum sveitarfélögum. Innlent 4. júlí 2022 21:01
Framkvæmdir í Bláfjöllum komnar á fullt Framkvæmdir við tvær nýjar stólalyftur í Bláfjöllum eru komar á fullt. Reiknað er með að önnur þeirra verði kominn í gagnið á næstu skíðavertíð. Innlent 30. júní 2022 11:42
Í fyrsta sinn hægt að fá klippingu á fótboltaleik í kvöld Knattspyrnudeild Aftureldingar býður upp á skemmtilega nýjung á leiknum við Þór í Mosfellsbæ í kvöld. Hægt verður að fá klippingu á meðan á leik stendur. Íslenski boltinn 24. júní 2022 08:30
Metnaðarfull 17. júní dagskrá hjá mörgum sveitarfélögum Þjóðhátíðardagurinn verður haldinn með pompi og prakt. Venju samkvæmt er metnaðarfull dagskrá víða um land. Fyrsti þjóðhátíðardagurinn í þrjú ár sem ber ekki merki heimsfaraldursins gengur nú í garð og eru landsmenn eflaust tilbúnir í hátíðarhöld. Lífið 15. júní 2022 16:31
Mannúðlegra að fá hlaðna byssu frá ríkinu en fátæktarfjötra Kona á fimmtugsaldri sem notar hjólastól eftir að hafa fengið heilablóðfall fyrir tveimur áratugum missti húsnæðisbætur um áramótin og lifir nú á sextán þúsund krónum á mánuði. Formaður Öryrkjabandalagsins segir ábyrgðina liggja hjá sveitarfélaginu. Innlent 13. júní 2022 19:46
Þrír handteknir fyrir ógnandi framkomu og hótanir Þrír menn voru handteknir af lögreglu í nótt á þremur ólíkum stöðum og vistaðir í fangageymslu fyrir ógnandi framkomu og hótanir. Fyrst var tilkynnt um mann í annarlegu ástandi í Hafnarfirði sem var mjög æstur og hafði verið að ógna fólki. Lögregla handtók hann og setti í fangaklefa sökum ástands. Innlent 13. júní 2022 06:47
Sandfok frá Suðurlandi leikur höfuðborgarbúa grátt Styrkur svifryks á höfuðborgarsvæðinu hefur mælst hár á höfuðborgarsvæðinu frá því í gærkvöld. Rykið kemur frá söndunum á Suðurlandi. Innlent 10. júní 2022 10:25
Rotaðist við líkamsárás í Mosfellsbæ Þolandi líkamsárásar sem tilkynnt var um í Mosfellsbæ sagðist hafa rotast við atlöguna. Hann sat eftir á vettvangi með skurð á höfði þegar lögreglu bar að garði. Innlent 6. júní 2022 07:25
Íris dúxaði og sópaði til sín verðlaunum Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ útskrifaði 24 nemendur við hátíðlega athöfn í húsnæði skólans við Háholt 35 í liðinni viku. Íris Torfadóttir var dúx skólans og hlaut þrenn verðlaun fyrir námsárangur sinn. Innlent 30. maí 2022 14:02
Búið að mynda meirihluta í Mosfellsbæ Framsóknarflokkurinn, Samfylkingin og Viðreisn hafa komist að samkomulagi um myndun meirihluta í Mosfellsbæ. Fréttir 24. maí 2022 19:07
Vinir Mosfellsbæjar ekki lengur með í meirihlutaviðræðum Framsóknarflokkurinn hefur formlega slitið meirihlutaviðræðum við Vini Mosfellsbæjar. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Dagný Kristinsdóttir, oddviti Vina Mosfellsbæjar, sendi í dag. Innlent 21. maí 2022 13:45
„Bæjarstjórastóllinn er vissulega þáttur af þessu samkomulagi“ Á morgun kemur líklega í ljós hvort formlegar meirihlutaviðræður geti hafist milli Framsóknar og Sjálfstæðisflokks í Kópavogi. Tilkall Sjálfstæðismanna til bæjarstjórastólsins geti haft áhrif á viðræður. Innlent 17. maí 2022 20:01
Tíu ára stúlka féll útbyrðis úr kajak á Hafravatni Slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út í kvöld vegna tíu ára gamallar stúlku sem féll úr kajak í Hafravatn. Fólki á staðnum tókst að komast að stúlkunni á bátum og koma henni á þurrt land. Innlent 17. maí 2022 19:54
Heimurinn er okkar, ný menntastefna Mosfellsbæjar Heimurinn er okkar er heitið á nýrri menntastefnu Mosfellsbæjar sem samþykkt var af bæjarstjórn í apríl síðast liðinn. Lærdómssamfélagið í Mosfellsbæ kom að gerð stefnunnar og má nefna fulltrúa frá skóla- og frístundastarfi, börn, foreldra, starfsfólk, íbúa og kjörna fulltrúa. Skoðun 17. maí 2022 07:00
Útilokar ekki samstarf með Sjálfstæðisflokki Halla Karen Kristjánsdóttir, oddviti Framsóknarflokksins í Mosfellsbæ, segir flokkinn ekki útiloka meirihlutasamstarf með Sjálfstæðisflokknum. Hún hefur ekki náð að ræða við alla flokka og því geti hún hvorki útilokað einn né neinn. Innlent 16. maí 2022 15:41
Lokatölur úr Mosfellsbæ: Ótrúlegt gengi Framsóknar Framsóknarflokkurinn er orðinn stærsti flokkurinn í Mosfellsbæ. Flokkurinn átti ekki fulltrúa í bæjarstjórn á síðasta kjörtímabili en fékk fjóra fulltrúa í kosningunum í nótt. Innlent 15. maí 2022 03:34
Framsókn í lykilstöðu á höfuðborgarsvæðinu Miðað við fyrstu tölur er Framsóknarflokkurinn í algjörri lykilstöðu í Kópavogi og Hafnarfirði, hvað varðar myndun meirihluta. Þá nær flokkurinn inn manni í Garðabæ. Innlent 15. maí 2022 00:03
Fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Mótorhjólaslys átti sér stað í Mosfellsbæ um áttaleytið í kvöld og var einn fluttur á slysadeild. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins féll ökumaðurinn af hjóli sínu. Innlent 12. maí 2022 23:17
Farsæl börn á höfuðborgarsvæðinu Á laugardaginn fara fram sveitarstjórnarkosningar og er mikilvægt að hver og einn einstaklingur kjósi þá forystu sem viðkomandi vill sjá í sínu nærumhverfi. Sveitarstjórnir landsins stýra og/eða framkvæma stóran hluta af þeirri þjónustu sem við, sem íbúar á Íslandi, njótum í nærumhverfi okkar daglega og því mikilvægt að við nýtum öll okkar raddir á laugardaginn og höfum áhrif á næstu fjögur ár. Skoðun 12. maí 2022 08:31