Evrópusambandið

Evrópusambandið

Fréttamynd

Gullhúðun að flug­vellir þurfi starfs­leyfi heil­brigðis­eftir­lits

Karl Alvarsson, formaður fagráðs um flugmál og fyrrverandi yfirlögfræðingur Isavia, segir séríslenska gullhúðun Evróputilskipana hafa átt sér stað þegar flugvöllum á Íslandi var gert að fá starfsleyfi frá heilbrigðiseftirlitum, - slíkt gildi um enga aðra evrópska flugvelli. Þá segir hann Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fara langt út fyrir sínar valdheimildir með því að reyna að þrengja að starfsemi Reykjavíkurflugvallar.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Má búast við „gífur­legri“ eftir­spurn er­lendra aðila að komast í kvóta hér á landi

Eftirspurn meðal erlendra félaga í að komast yfir aflaheimildir sjávarútvegsfyrirtækja verður „gífurleg“ ef Ísland gengur í Evrópusambandið, að mati sérfræðinga Arctica Finance, en þar er mikill meðbyr í átt að frekari samþjöppun í greininni. Hlutabréfaverð sjávarútvegsfélaga í Kauphöllinni rauk upp eftir greiningu verðbréfafyrirtækisins en þar var bent á að fjárhagslegt virði kvóta þeirra ætti sennilega eftir að „aukast verulega“ við inngöngu í ESB.

Innherji
Fréttamynd

„Var þetta ein­hver skets?“

Guðlaugur Þór Þórðarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins hélt því fram að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hefði ekki heyrt stakt orð í fyrirspurn sinni; svar hennar væri eitt það furðulegasta sem heyrst hafi í þingsal.

Innlent
Fréttamynd

Inga vill ekki setja „tugi milljarða í lofts­lags­mál“

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra og formaður Flokks fólksins, setur skýr skilyrði fyrir mögulegri aðild Íslands að Evrópusambandinu: Full og óafturkræf yfirráð yfir auðlindum. Samhliða hafnar hún harðlega þeirri stefnu að verja tugum milljarða í loftslagsaðgerðir og gagnrýnir alþjóðleg kerfi sem hún telur ósanngjörn gagnvart Íslandi.

Innlent
Fréttamynd

Beitir sér ekki sér­stak­lega fyrir því að spurningunni verði breytt

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra ætlar ekki að beita sér sérstaklega fyrir því að spurningu í þjóðaratkvæðagreiðslu í ágúst verði breytt. Það sé verkefni Alþingis og hún treysti því. Kristrún var gestur utanríkismálanefndar og ræddi þar Evrópusambandið og mögulegar aðildarviðræður Íslendinga. 

Innlent
Fréttamynd

Stál í stál og sam­mála um fátt á fundi um ESB

Mikill hitafundur fór fram í Smiðju Alþingis á föstudag þegar utanríkisráðherra mætti fyrir utanríkismálanefnd að ræða þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna við ESB. Stjórnarandstaðan segir fundinn vonbrigði en ráðherra segir hörkuna í umræðunni koma á óvart.

Innlent
Fréttamynd

Hætta að styrkja Fen­eyjart­víæringinn vegna þátt­töku Rússa

Evrópusambandið ætlar að hætta að styrkja ítölsku listahátíðina Feneyjartvíæringinn vegna ákvörðunar stjórnenda hennar að bjóða rússneskum listamönnum. Þetta verður í fyrsta skipti sem Rússar taka þátt eftir að innrás þeirra í Úkraínu hófst af fullum þunga árið 2026.

Erlent
Fréttamynd

Dyflinarreglugerðin ekki af­numin þótt orða­lag breytist

Dómsmálaráðherra mælir í dag fyrir frumvarpi til breytingar á útlendingalögum og lögreglulögum sem felur meðal annars í sér styttri kærufresti fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd og skýrari stjórn á landamærunum. Formaður Miðflokksins segir frumvarpið fela í sér afnám Dyflinarreglugerðarinnar og aðlögun að Evrópusambandinu á einu erfiðasta sviðinu. 

Innlent
Fréttamynd

Banda­maður Rússa vann stór­sigur í Búlgaríu

Rumen Rudev, fyrrverandi forseti Búlgaríu, vann stórsigur á ríkjandi flokkum sem hann sakaði um að reka mafíuríki í þingkosningum þar í landi í gær. Radev er sagður hallur undir Rússa, sérstaklega hvað varðar innrás þeirra í Úkraínu.

Erlent
Fréttamynd

„Ég sé engin rök fyrir því“

„Við erum ekki að afsala okkur einhverri ákvarðanatöku í gegnum aðlögunina. Það er að einhverju leyti erfitt að átta sig á af hverju þetta er svona rosalega mikið í umræðunni, nema þá út frá því að það sé eins og okkur steðji einhver ógn af þessu og við séum að gera einhverjar breytingar sem sé ekki hægt að draga til baka. En ég sé engin rök fyrir því.“

Innlent
Fréttamynd

„Aðild að Evrópu­sam­bandinu myndi skapa stöðug­leika“

Sjávarútvegsstjóri Evrópusambandsins segir mörg dæmi um að tillit sé tekið til sérstöðu umsóknarríkja í aðildarviðræðum. ESB geti fært Íslandi stöðugleika á víðsjárverðum tímum í alþjóðamálum og sérþekking Íslands komi til með að nýtast sambandinu.

Innlent
Fréttamynd

Mörg dæmi um að tekið sé sér­stakt til­lit til umsóknarríkja

Costas Kadis sjávarútvegsstjóri Evrópusambandsins segir engar aðildarviðræður að sambandinu vera eins. Mörg dæmi séu um að tekið sé sérstakt tillit til mismunandi umsóknarríkja, líkt og í tilviki Íslands og sjávarútvegsmála. Hann segir samningaviðræður við sambandið raunverulegar samningaviðræður.

Innlent