Meirihluti á þingi fyrir því að svipta Støjberg þingsætinu Meirihluti er á danska þinginu fyrir því að svipta Inger Støjberg, fyrrverandi ráðherra innflytjendamála, þingsætinu í kjölfar dóms ríkisréttar landsins sem dæmdi fyrr í vikunni ráðherrann fyrrverandi í sextíu daga óskilorðsbundið fangelsi. Erlent 15. desember 2021 14:49
Mary prinsessa greindist með COVID-19 Mary prinsessa, eiginkona Friðriks krónprins Danmerkur, greindist með COVID-19 í dag. Erlent 15. desember 2021 14:23
Handteknir vegna gruns um að hafa stýrt skipinu ölvaðir Tveir hafa verið handteknir í tengslum við sjóslysið í Eystrasalti í gær þar sem danskt og breskt flutningaskip rákust saman norðaustur af Borgundarhólmi aðfararnótt mánudagsins. Einn hefur fundist látinn og er annars enn saknað. Erlent 14. desember 2021 08:34
Metdagur í Danmörku og hæsta nýgengi álfunnar í Noregi Síðasta sólarhringinn greindust 7.799 manns með kórónuveiruna í Danmörku og hafa aldrei svo margir greinst með veiruna á einum sólarhring frá upphafi faraldursins. Erlent 13. desember 2021 14:02
Støjberg dæmd í sextíu daga fangelsi Ríkisréttur Danmerkur dæmdi í dag Inger Støjberg, fyrrverandi ráðherra innflytjendamála, í sextíu daga óskilorðsbundið fangelsi. Hún var sakfelld af ákæru um að hafa látið stía í sundur ungum hælisleitendum í ráðherratíð sinni. Erlent 13. desember 2021 12:06
Tveggja leitað í sjónum eftir að flutningaskip rákust saman Sjóslys varð á Eystrasalti í nótt þegar tvö flutningaskip rákust saman miðja vegu á milli sænska bæjarins Ystad og dönsku eyjarinnar Borgundarhólms. Annað skipið er danskt en hitt breskt. Erlent 13. desember 2021 07:57
Markvörður danska dínamítsins á HM í Mexíkó 1986 dáinn Danir misstu í fyrrinótt einn af leikmönnum eftirminnilegs landsliðs síns frá níunda áratugnum þegar Lars Högh lést 62 ára gamall. Fótbolti 10. desember 2021 10:01
Skólum lokað frá 15. desember og Danir hvattir til að vinna heima Mette Frederiksen forsætisráðherra Dana kynnti í gærkvöldi nýjar samkomutakarkanir í Danmörku til að stemma stigu við útbreiðslu kórónuveirunnar. Barnaskólum verður lokað þann 15. desember og kennsla verður í gegnum netið fram að jólafríi. Erlent 9. desember 2021 07:18
Danski heilbrigðisráðherrann með Covid-19 Danski heilbrigðisráðherrann Magnus Heunicke greindist með Covid-19 í dag. Hann dvelur nú í belgísku höfuðborginni Brussel þar sem hann er í einangrun á hóteli. Erlent 7. desember 2021 13:27
Þriðja skotárásin á þremur dögum í Kaupmannahöfn Lögreglan í Kaupmannahöfn leitar manns sem grunaður er um skotárás í Friðriksberg í gærkvöldi. Skotárásin var sú þriðja í borginni á síðustu þremur dögum. Erlent 5. desember 2021 10:17
Norwegian og SAS taka aftur upp grímuskyldu Norrænu flugfélögin Norwegian og SAS hafa bæði ákveðið að taka upp grímuskyldu um borð í flugvélum sínum á nýjan leik Erlent 3. desember 2021 08:50
Ásta Björk fór aftur með sigur af hólmi í Vild med dans Dansarinn Ásta Björk Ívarsdóttir gerði sér lítið fyrir og fór með sigur af hólmi í danska danssjónvarpsþættinum Vild med dans. Þetta er í annað sinn sem Ásta Björk fer með sigur af hólmi í keppninni, en hún vann einnig árið 2018. Lífið 28. nóvember 2021 10:16
Sæþór vann Baksturskeppnina miklu í Danmörku Sæþór Kristínsson, 29 ára gamall Íslendingur, stóð uppi sem sigurvegari dönsku þáttaraðarinnar Den Store Bagedyst í kvöld. Lífið 27. nóvember 2021 20:55
Morðingi Freyju dæmdur í lífstíðarfangelsi Flemming Mogensen, sem myrti Freyju Egilsdóttur í Danmörku í byrjun ársins, hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi. Hann játaði fyrir dómi í morgun að hafa myrt Freyju, sem var fyrrverandi eiginkona hans og barnsmóðir. Erlent 24. nóvember 2021 10:50
Grænlensku „tilraunabörnin“ krefjast bóta frá danska ríkinu Hópur Grænlendinga hefur krafið danska ríkið um skaðabætur vegna félagslegrar tilraunar sem þau voru hluti af sem börn árið 1951. Erlent 22. nóvember 2021 11:50
Beið afhroð í sveitarstjórnarkosningunum og opnar á formannsskipti Danski þjóðarflokkurinn beið afhroð í sveitarstjórnarkosningunum sem fram fóru í gær og hefur formaður flokksins, Kristian Thulesen Dahl, lagt til að boðað verði til aukalandsþings og nýr formaður kjörinn. Erlent 17. nóvember 2021 11:36
„Mælast ekki til þess að þú fáir fleiri en fjóra gesti yfir sólarhringinn“ Óbólusettir sæta útgöngubanni í Austurríki vegna fjölgunar kórónuveirusmita. Á sama tíma eru litlar sem engar samkomutakmarkanir í Danmörku. Íslendingur sem búsettur er í Kaupmannahöfn segir Dani svifaseina í viðbrögðum og óttast harðar aðgerðir á næstunni. Innlent 14. nóvember 2021 23:00
Grunaður um að hafa kveikt í húsi þar sem Íslendingur fannst látinn Karlmaður er í haldi lögreglunnar í Kaupmannahöfn vegna gruns um að hafa kveikt í húsi þar sem Íslendingur fannst látinn. Maðurinn var úrskurðaður í fjögurra vikna langt gæsluvarðhald á fimmtudag. Erlent 14. nóvember 2021 19:42
Tvö norðurlönd bætast í bandalag Danmerkur gegn olíu- og gasvinnslu en ekki Ísland Fimm þjóðir og eitt kanadískt fylki gekk í bandalag Danmerkur og Kosta Ríka um að stöðva frekari olíu- og gasvinnslu á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Glasgow í dag. Ekkert af stóru olíuframleiðsluríkjunum tekur þátt í bandalaginu. Erlent 11. nóvember 2021 15:52
Kórónuveiran lét á sér kræla eftir fjárfestadag Play í Kaupmannahöfn Fjórir hafa greinst smitaðir af kórónuveirunni eftir fjáfestadag flugfélagsins Play sem var haldinn í Kaupmannahöfn á föstudag. Um hundrað manns tóku þátt í viðburðinum en aðeins maki eins þeirra smituðu hefur þurft að fara í sóttkví til þessa. Viðskipti innlent 9. nóvember 2021 14:46
Covid-19 aftur farið að ógna dönsku samfélagi Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, hefur lagt til að danska þingið skilgreini kórónuveiruna á ný sem sjúkdóm sem ógni dönsku samfélagi. Faraldurinn hefur verið á uppleið í Danmörku að undanförnu. Erlent 8. nóvember 2021 23:30
Töluðu ekki dönsku og slógu til fréttamanns Lögreglan í Kaupmannahöfn beitti kylfum og handtók fjóra vegna óláta í tengslum við leik Bröndby og skoska liðsins Rangers í Evrópudeildinni í fótbolta. Fótbolti 5. nóvember 2021 15:00
Kastljósinu beint að eyðingu smáskilaboða Mette Frederiksen Sérstök rannsóknarnefnd, sem ætlað er að rannsaka ákvörðun danskra stjórnvalda að láta lóga öllum minkum í landinu vegna stökkbreytts afbrigðis kórónuveirunnar, hefur beint sjónum að ákvörðun Mette Frederiksen forsætisráðherra að láta eyða öllum smáskilaboðum í síma sínum, mánuði eftir að þau eru send. Erlent 4. nóvember 2021 13:25
Mesti fjöldi smitaðra á einum degi síðan í janúar Alls greindist 1.981 smitaður af kórónuveirunni í Danmörku síðasta sólarhringinn. Um er að ræða mesta fjöldann á einum degi síðan í byrjun janúar. Faraldurinn hefur verið í miklum vexti í landinu síðustu daga. Erlent 2. nóvember 2021 13:44
Tveir Íslendingar í varðhaldi í sex vikur Tveir íslenskir karlmenn eru enn í gæsluvarðhaldi hjá lögreglunni í Kaupmannahöfn, tæpum sex vikum eftir að þeir voru handteknir. Innlent 26. október 2021 17:03
Skandinavísk flugfélög afnema grímuskyldu Fjögur skandinavísk flugfélög hafa afnumið grímuskyldu um borð í flugvélum í meirihluta flugferða. Forstjóri Icelandair segir ómögulegt að spá um hvenær grímuskyldu verður aflétt í flugvélum félagsins. Innlent 18. október 2021 08:39
Danir bjóða öllum þriðju sprautuna Öllum Dönum mun bjóðast þriðji bóluefnisskammturinn gegn Covid-19. Þetta tilkynnti Magnus Heunicke heilbrigðisráðherra í dag. Erlent 15. október 2021 16:38
Bogmaðurinn í Kongsberg nafngreindur Maðurinn sem myrti fimm og særði tvo alvarlega í Noregi í gærkvöldi heitir Espen Andersen Bråthen. Hann var handtekinn eftir árásina og er nú til rannsóknar hjá geðlæknum. Erlent 14. október 2021 13:23
Bogmaðurinn talinn hafa hneigst að öfgahyggju Norska lögreglan segir að danskur karlmaður sem myrti fimm manns og særði tvo til viðbótar með boga og örvum í bænum Kongsberg í Noregi í gærkvöldi hafi verið grunaður um að hneigjast að öfgahyggju. Fórnarlömbin voru fjórar konur og einn karlmaður á aldrinum fimmtíu til sjötíu ára. Erlent 14. október 2021 09:07
Árásarmaðurinn sagður 37 ára danskur ríkisborgari Fimm eru látnir og tveir særðir eftir árás bogamanns í bænum Kongsberg í Noregi í gær. Lögregla hefur handtekið 37 ára Dana sem er grunaður um hroðaverkið. Lögregla telur hann hafa verið einan að verki en mögulega sé um hryðjuverk að ræða. Erlent 14. október 2021 06:23