Hvað viltu verða þegar þú verður stór? Jónína Lovísa Kristjánsdóttir skrifar 1. nóvember 2026 18:31 Ég hef mikið hugsað til ungmenna landsins í allri umræðunni um Pisa, einkunnir, læsi, ólæsi og ég veit ekki hvað og hvað. Pressan á þeim er mikil og almennt er talað eins og ekkert sé nógu gott. Undanfarin ár hef ég fengið tækifæri til að ræða við þessi ungmenni um lífið og tilveruna, samskipti og sjálfsmynd, hegðun og líðan og veit því að almennt eru þau einmitt nógu góð og vel það. Hjá mörgum þeirra styttist í einhversskonar tímamót. Útskrift úr grunnskóla, menntaskóla, ný vinna eða búseta fjarri foreldrahúsum er á næsta leiti. Slík tímamót kalla fram blendnar tilfinningar. Eðlilega. Þetta er eitt af þeim skiptum sem við stöndum frammi fyrir fjölbreyttu vali og þurfum að taka stórar ákvarðanir. Ég er svo heppin að ég er ekki ennþá orðin stór og veit ekki alltaf hvað ég vil vera eða verða. Mér líður allavega oft þannig...og á meðan gerist bara lífið! Við erum sennilega allmörg sem fengum tár í augun við útskrift úr skóla. Ekki einungis af stolti heldur miklu frekar vegna þess að við vissum ekki hvað við vildum gera næst. Hvaða leið við ættum að velja fyrir fullorðinsárin. Ég er sannarlega ein af þeim. Eftir menntaskóla fannst mér ég þurfa að drífa mig í framhaldsnám hið fyrsta, bara svona af því bara. En sem betur fer hafði ég fyrirmyndir sem bentu mér á að staldra við og anda aðeins djúpt. Skoða valmöguleikana. Ég ákvað því að gefa mér ár til umhugsunar og finna mér vinnu á meðan ég hugsaði málið. Glaðbeitt gekk ég um bæinn og sótti um atvinnu á öllum hugsanlegum stöðum. Nokkrum dögum síðar var ég farin að vinna á prjónastofu fyrir hádegi og á leikskóla eftir hádegi. Ég kunni hvorki að prjóna né umgangast krakkaskott...hélt ég. En fljótlega áttaði ég mig á því að ég hefði óvart ratað á réttan stað í lífinu. Þetta kom mér já mjög á óvart því ég hafði ákveðið nokkrum árum áður að ég og börn ættum ekki samleið! Síðan þá hef ég lært það um sjálfa mig að það sem mér finnst í dag er ekki endilega eins á morgun. Skoðanir manns breytast eftir því sem sjónarhornunum fjölgar og þannig verða önnur tækifæri til. Eftir nám í leikskólakennarafræðum var ég til dæmis alveg viss um það að sérkennslu myndi ég ekki sinna enda hvorki þolinmóð né úrræðagóð! Við vitum sum hvernig það fór! Eftir að hafa svo lokið frekara námi í sérkennslufræðum þótti mér ljóst að málþroski væri eitthvað sem ég myndi sérhæfa mig í en einhverfa væri annarra; ég hefði ekki hvorki getu né forsendur til að huga að slíku. Við vitum líka mörg hvernig það fór! Ég er sem sagt eitthvað allt annað í dag en ég hafði séð fyrir mér. Reyndar ætlaði ég framan af að vera leikari á fjölum Þjóðleikhússins og við vitum nú öll hvernig það fór!! Ég vil því bara segja við ungmennin okkar: það er sama hvort aðrir segi að við séum A eða B, 6 eða 7 og tunglið sé í áttunda húsi Vatnsberans og við í ósamstæðum sokkum: það er ekki það sem skilgreinir þig. Þú hefur val um hvaða leið þú ferð. Það er án efa mikilvægt að staldra við og velta fyrir sér hvaða leið er líklegust til að verða þér og þínu nánasta fólki til farsældar. Við megum auðvitað ekki gleyma okkur og láta draga okkur út í einhverja vitleysu! En...hvaða vali sem þú stendur frammi fyrir í þessari blessuðu veröld, þar sem þú getur verið hvað sem er, veldu allavega alltaf að vera góð manneskja því það mun koma þér á þína réttu slóð. Höfundur er sérkennari/kennsluráðgjafi og er tilnefnd til íslensku menntaverðlaunanna 2026. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Mest lesið Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun Hægrisveiflan ýkta Egill Ö. Hermannsson Skoðun Hvert í fjandanum erum við eiginlega komin sem samfélag? Steindór Þórarinsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Hagræðing fyrir hvern? Stefán Pettersson Skoðun Traust byggist á vönduðum vinnubrögðum Ragnar Þór Reynisson,Valdimar Víðisson Skoðun Bláskógaskatturinn minnkar kökuna Guðrún Hafsteinsdóttir Skoðun Hvað verður um störfin okkar? Auður Alfa Ólafsdóttir Skoðun Ráðherrann sem skiptir litlu máli Arnar Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Allir með Willum Þór Þórsson,Jóhann Steinar Ingimundarson,Þórður Á. Hjaltested skrifar Skoðun Hitaveitan er ekki aflátsbréf: Forfeðurnir voru brautryðjendur, af hverju hikum við? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Börn með fjölþættan vanda – hver hugsar um framtíð þeirra? Þórdís Hulda Tómasdóttir skrifar Skoðun Hvað verður um störfin okkar? Auður Alfa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn minnkar kökuna Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Traust byggist á vönduðum vinnubrögðum Ragnar Þór Reynisson,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þingkosningar í Bandaríkjunum: Mun stríð Trumps í Íran harðna eftir miðkjörtímabilskosningarnar? Jun Þór Morikawa skrifar Skoðun Hagræðing fyrir hvern? Stefán Pettersson skrifar Skoðun Hvert í fjandanum erum við eiginlega komin sem samfélag? Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Hvað viltu verða þegar þú verður stór? Jónína Lovísa Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Vafasama Viðreisn Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þú átt nóg og þú ert nóg Ragnhildur Katla Jónsdóttir skrifar Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hægrisveiflan ýkta Egill Ö. Hermannsson skrifar Skoðun Ráðherrann sem skiptir litlu máli Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir skrifar Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? Kristný Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Hugmyndakassinn Perla Hafþórsdóttir skrifar Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Óðinn heldur fyrir heila augað Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar Pálmi Freyr Randversson,Berglind Kristinsdóttir,Guðjón Skúlason skrifar Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir skrifar Sjá meira
Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun
Skoðun Hitaveitan er ekki aflátsbréf: Forfeðurnir voru brautryðjendur, af hverju hikum við? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Þingkosningar í Bandaríkjunum: Mun stríð Trumps í Íran harðna eftir miðkjörtímabilskosningarnar? Jun Þór Morikawa skrifar
Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar
Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar
Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar
Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar Pálmi Freyr Randversson,Berglind Kristinsdóttir,Guðjón Skúlason skrifar
Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar
Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun