Vafasama Viðreisn Júlíus Valsson skrifar 1. nóvember 2026 16:00 Helsta afrek Viðreisnar frá upphafi hefur verið að kynna stærstu fullveldismál þjóðarinnar sem smávægilegt tæknilegt atriði. Flokkurinn varð til í kringum Evrópumálin og markmið hans hefur aldrei farið leynt. Aðferðin hefur hins vegar verið sú að tala sem minnst um áfangastaðinn og afleiðingarnar. Með harpix í hárinu Í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar 29. ágúst var kjósendum boðið að segja „Já til að sjá“. Slagorðið var haglega smíðað til að láta já-atkvæðið líta út eins og saklausa forvitni. Í reynd hefði kjósandinn með því veitt stjórnvöldum umboð til að halda aðildarumsókn Íslands áfram og semja um inngöngu landsins í Evrópusambandið. Þessu neituðu Viðreisnarmenn, Utanríkisráðuneytið og jafnvel sjálf Landskjörstjórn fram í rauðan dauðann. Þingsályktunin sjálf tók þó af öll tvímæli um þetta, því þar sagði að umsóknin frá 2009 teldist enn í gildi og að þráðurinn yrði tekinn upp aftur ef já yrði ofan á. Með slagorðinu var formlegu aðildarferli gefið yfirbragð almennrar upplýsingaöflunar og vægi ákvörðunarinnar þar með dregið niður í augum kjósenda. M.ö.o kjósendur voru blekktir með sameiginlegu átaki m.a. þeirra sem áttu að gæta hagsmuna almennings. Er einhver samspilling á Íslandi? Viltu kjósa um „samning“? Þá var því haldið á lofti að þjóðin fengi síðar að kjósa um aðildarsamninginn. Það fyrirheit breytti engu um tilgang umsóknarinnar. Ríki sækir um aðild að Evrópusambandinu í þeim eina tilgangi að verða aðildarríki, og viðræðurnar snúast um aðlögun að regluverki sem sambandið hefur sjálft lýst að sé ekki samningsatriði. Það sem semja má um eru aðlögunartímar, takmarkaðir frestir og einhverjar útfærslur. Síðari atkvæðagreiðsla um samning sem þegar hefur verið mótaður að kröfum Brussel er lokahnykkur ferlis sem já-atkvæðið hefði hrundið af stað. Þjóðin sá í gegnum þetta og hafnaði því að viðræður við ESB yrðu teknar upp að nýju, 52,8% gegn 47,2%, og kjörsókn var 82,5 prósent. Bókun 35. Sama aðferð, nýr pakki Varla var búið að telja upp úr kjörkössunum þegar sama aðferðin var tekin upp í öðru máli. Frumvarp um breytingu á lögum um Evrópska efnahagssvæðið vegna bókunar 35 var á dagskrá ríkisstjórnarfundar 18. september 2026, borið fram af utanríkisráðherra, formanni Viðreisnar. Málflutningurinn er kunnuglegur. Bókun 35 er sögð snúast um aukin réttindi almennings og réttaröryggi einstaklinga og fyrirtækja. Um hitt er þagað, hvaða áhrif frumvarpið hefur í raun á valdajafnvægið í íslenskri stjórnskipan. Frumvarpið felur í sér forgangsreglu: lög sem eiga rætur í EES-gerðum skulu ganga framar öðrum almennum lögum. Þar með er Alþingi framtíðarinnar bundið af ákvörðunum sem teknar eru í Brussel og leiddar hingað í gegnum sameiginlegu EES-nefndina. Samkvæmt 2. gr. stjórnarskrárinnar fer Alþingi með löggjafarvaldið ásamt forseta, og ekkert ákvæði hennar heimilar framsal þess valds til alþjóðastofnana öfugt við t.d. stjórnarskrá Noregs. Það var einmitt þess vegna sem fyrirvarinn um bókun 35 var hafður á þegar EES-samningurinn var samþykktur árið 1993. Fyrirvarinn var í raun „sérlausn“ fyrir Ísland og þeirri sérlaus ætlar Viðreisn nú að slátra með fulltingi f.v. formanns Samfó sem nú starfar hjá hjá ESA. Að halda því fram nú að hægt sé að breyta þessu með almennum lögum, án breytinga á stjórnarskrá, er að fara bakdyramegin að því sem ekki fæst um aðaldyrnar. Þar liggur óheiðarleiki Viðreisnar. Enn og aftur! Bókun 35 er brot gegn stjórnarskránni Þetta er engin jaðarskoðun. Núverandi innviðaráðherra, Eyjólfur Ármannsson, sagði í þingræðu meðan hann var í stjórnarandstöðu að bókun 35 bryti í bága við stjórnarskrána og takmarkaði löggjafarvald Alþingis til framtíðar, enda yrðu lög með uppruna í Brussel þá rétthærri en önnur almenn lög. Hann situr nú í ríkisstjórn sem leggur málið fram. Í Morgunblaðinu 5. október gagnrýndi Sigríður Á. Andersen málflutning Viðreisnar undir fyrirsögninni „Blekkingar um bókun“, eftir að María Rut Kristinsdóttir, þingmaður Viðreisnar, sagði á Sprengisandi að mestu skipti að lyfta málinu upp úr skotgröfum um hvað það væri og hvað ekki. Málið er enn ofan í skotgröfum Viðreisnar. Það má ekki ræða. Þá kemur blekkingin í ljós. Rauði þráðurinn er sá sami í báðum málum. Valdaframsal til ESB er kynnt sem réttindaauki og aðildarumsókn sem forvitni. Í lýðræðisríki er heiðarleg umræða forsenda þess að niðurstaða hafi lögmæti, og flokkur sem treystir sér ekki til að segja kjósendum hvað hann ætlar sér hefur þegar viðurkennt að hann telji málstaðinn ekki standast dagsljósið. Höfundur er fullveldissinni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Júlíus Valsson Bókun 35 Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Viðreisn Mest lesið Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun Hagræðing fyrir hvern? Stefán Pettersson Skoðun Hægrisveiflan ýkta Egill Ö. Hermannsson Skoðun Hvert í fjandanum erum við eiginlega komin sem samfélag? Steindór Þórarinsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Hvað verður um störfin okkar? Auður Alfa Ólafsdóttir Skoðun Traust byggist á vönduðum vinnubrögðum Ragnar Þór Reynisson,Valdimar Víðisson Skoðun Bláskógaskatturinn minnkar kökuna Guðrún Hafsteinsdóttir Skoðun Ráðherrann sem skiptir litlu máli Arnar Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Stillum ekki íþróttum og menningu upp sem andstæðum pólum Gunnar M. Gunnarsson skrifar Skoðun Betri borg fyrir börn? Hópur fulltrúa í Ungmennaráði Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða skrifar Skoðun Allir með Willum Þór Þórsson,Jóhann Steinar Ingimundarson,Þórður Á. Hjaltested skrifar Skoðun Hitaveitan er ekki aflátsbréf: Forfeðurnir voru brautryðjendur, af hverju hikum við? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Börn með fjölþættan vanda – hver hugsar um framtíð þeirra? Þórdís Hulda Tómasdóttir skrifar Skoðun Hvað verður um störfin okkar? Auður Alfa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn minnkar kökuna Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Traust byggist á vönduðum vinnubrögðum Ragnar Þór Reynisson,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þingkosningar í Bandaríkjunum: Mun stríð Trumps í Íran harðna eftir miðkjörtímabilskosningarnar? Jun Þór Morikawa skrifar Skoðun Hagræðing fyrir hvern? Stefán Pettersson skrifar Skoðun Hvert í fjandanum erum við eiginlega komin sem samfélag? Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Hvað viltu verða þegar þú verður stór? Jónína Lovísa Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Vafasama Viðreisn Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þú átt nóg og þú ert nóg Ragnhildur Katla Jónsdóttir skrifar Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hægrisveiflan ýkta Egill Ö. Hermannsson skrifar Skoðun Ráðherrann sem skiptir litlu máli Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir skrifar Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? Kristný Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Hugmyndakassinn Perla Hafþórsdóttir skrifar Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Óðinn heldur fyrir heila augað Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar Pálmi Freyr Randversson,Berglind Kristinsdóttir,Guðjón Skúlason skrifar Sjá meira
Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun
Skoðun Hitaveitan er ekki aflátsbréf: Forfeðurnir voru brautryðjendur, af hverju hikum við? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Þingkosningar í Bandaríkjunum: Mun stríð Trumps í Íran harðna eftir miðkjörtímabilskosningarnar? Jun Þór Morikawa skrifar
Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar
Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar
Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar
Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar Pálmi Freyr Randversson,Berglind Kristinsdóttir,Guðjón Skúlason skrifar
Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun