Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Sindri Sverrisson skrifar 31. október 2026 21:33 Víðir Sigurðsson var með Alexiu Putellas í efsta sæti á sínum lista yfir bestu fótboltakonur ársins en setti Harry Kane í 4. sæti yfir bestu karlana. Samsett/Vísir/Getty Nú er búið að birta atkvæði allra þeirra sem tóku þátt í kjörinu um Gullboltann, eða Ballon d'Or, og óhætt að segja að afar mjótt hafi verið á mununum. Einn íslenskur blaðamaður tók þátt og rímuðu atkvæðaseðlar hans ágætlega við lokaniðurstöðuna en hið sama verður ekki sagt um atkvæði belgískrar blaðakonu. Víðir Sigurðsson, höfundur bókanna Íslensk knattspyrna og íþróttafréttamaður með margra áratuga reynslu, var í hópi þeirra hundrað blaðamanna sem kusu um það hver hlyti Gullbolta karla líkt og síðustu ár. Víðir var sömuleiðis í hópi þeirra blaðamanna sem tóku þátt í kjörinu kvennamegin en France Football velur fulltrúa frá hundrað hæst skráðu þjóðunum karlamegin og fimmtíu hæst skráðu þjóðunum kvennamegin. Í kjörinu hjá konunum valdi Víðir Alexiu Putellas í efsta sæti og Ewu Pajor í annað sæti en þær tvær urðu langefstar í kjörinu og vann Putellas afgerandi sigur. Tíu efstu konurnar á lista Víðis: Alexia Putellas Ewa Pajor Pernille Harder Caroline Graham Hansen Melchie Dumornay Khadija Shaw Klara Bühl Claudia Pina Alessia Russo Mariona Caldentey Það voru þó ekki allir blaðamennirnir sem kusu Putellas í efsta sæti og er einn atkvæðaseðillinn sérstaklega vafasamur. Belgíska blaðakonan Christine Schréder valdi nefnilega samlöndu sína, belgísku landsliðskonuna Tessu Wullaert, í efsta sætið. Enginn annar blaðamaður gaf hinni 33 ára gömlu Wullaert atkvæði því enda þótt hún hafi rofið hundrað marka múrinn fyrir belgíska landsliðið á þessu ári, undir stjórn Elísabetar Gunnarsdóttur, þá fer því fjarri að hún sé sú fótboltakona í heiminum sem skarað hefur fram úr á þessu ári. Fimmtán stig fást fyrir efsta sæti á atkvæðaseðli og því dugði atkvæðaseðill belgísku blaðakonunnar til þess að Wullaert varð í 19. sæti í kjörinu um Gullboltann. Rodri, Mbappé og Messi fyrir ofan Kane Karlamegin var Víðir með sigurvegarann, Harry Kane, aðeins í 4. sæti en Rodri, lykilmaður í heimsmeistaratitli Spánverja í sumar, fékk efsta sætið á atkvæðaseðli Víðis. Miðvörðurinn ungi Pau Cubarsí sem einnig átti svo stóran þátt í heimsmeistaratitlinum var sá eini á lista Víðis sem ekki endaði í hópi tíu efstu í heildarkjörinu. Tíu efstu karlarnir á lista Víðis: Rodri Kylian Mbappé Lionel Messi Harry Kane Lamine Yamal Erling Haaland Pau Cubarsi Khvicha Kvaratskhelia Michael Olise Ousmane Dembélé Fótbolti Mest lesið Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Enski boltinn Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Handbolti Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Körfubolti Fleiri fréttir Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Njarðvík sagði upp samningi við Smit Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Freyr að eignast markakóng eftir enn einn sigurinn Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Góður sigur stráka Sigga Ragga í lokaleiknum Gylfi tekur við Víkingi Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Sjá meira
Víðir Sigurðsson, höfundur bókanna Íslensk knattspyrna og íþróttafréttamaður með margra áratuga reynslu, var í hópi þeirra hundrað blaðamanna sem kusu um það hver hlyti Gullbolta karla líkt og síðustu ár. Víðir var sömuleiðis í hópi þeirra blaðamanna sem tóku þátt í kjörinu kvennamegin en France Football velur fulltrúa frá hundrað hæst skráðu þjóðunum karlamegin og fimmtíu hæst skráðu þjóðunum kvennamegin. Í kjörinu hjá konunum valdi Víðir Alexiu Putellas í efsta sæti og Ewu Pajor í annað sæti en þær tvær urðu langefstar í kjörinu og vann Putellas afgerandi sigur. Tíu efstu konurnar á lista Víðis: Alexia Putellas Ewa Pajor Pernille Harder Caroline Graham Hansen Melchie Dumornay Khadija Shaw Klara Bühl Claudia Pina Alessia Russo Mariona Caldentey Það voru þó ekki allir blaðamennirnir sem kusu Putellas í efsta sæti og er einn atkvæðaseðillinn sérstaklega vafasamur. Belgíska blaðakonan Christine Schréder valdi nefnilega samlöndu sína, belgísku landsliðskonuna Tessu Wullaert, í efsta sætið. Enginn annar blaðamaður gaf hinni 33 ára gömlu Wullaert atkvæði því enda þótt hún hafi rofið hundrað marka múrinn fyrir belgíska landsliðið á þessu ári, undir stjórn Elísabetar Gunnarsdóttur, þá fer því fjarri að hún sé sú fótboltakona í heiminum sem skarað hefur fram úr á þessu ári. Fimmtán stig fást fyrir efsta sæti á atkvæðaseðli og því dugði atkvæðaseðill belgísku blaðakonunnar til þess að Wullaert varð í 19. sæti í kjörinu um Gullboltann. Rodri, Mbappé og Messi fyrir ofan Kane Karlamegin var Víðir með sigurvegarann, Harry Kane, aðeins í 4. sæti en Rodri, lykilmaður í heimsmeistaratitli Spánverja í sumar, fékk efsta sætið á atkvæðaseðli Víðis. Miðvörðurinn ungi Pau Cubarsí sem einnig átti svo stóran þátt í heimsmeistaratitlinum var sá eini á lista Víðis sem ekki endaði í hópi tíu efstu í heildarkjörinu. Tíu efstu karlarnir á lista Víðis: Rodri Kylian Mbappé Lionel Messi Harry Kane Lamine Yamal Erling Haaland Pau Cubarsi Khvicha Kvaratskhelia Michael Olise Ousmane Dembélé
Tíu efstu konurnar á lista Víðis: Alexia Putellas Ewa Pajor Pernille Harder Caroline Graham Hansen Melchie Dumornay Khadija Shaw Klara Bühl Claudia Pina Alessia Russo Mariona Caldentey
Tíu efstu karlarnir á lista Víðis: Rodri Kylian Mbappé Lionel Messi Harry Kane Lamine Yamal Erling Haaland Pau Cubarsi Khvicha Kvaratskhelia Michael Olise Ousmane Dembélé
Fótbolti Mest lesið Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Enski boltinn Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Handbolti Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Körfubolti Fleiri fréttir Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Njarðvík sagði upp samningi við Smit Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Freyr að eignast markakóng eftir enn einn sigurinn Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Góður sigur stráka Sigga Ragga í lokaleiknum Gylfi tekur við Víkingi Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Sjá meira