Enski boltinn

Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, segir nokkur vel valin orð við hinn sextán ára Max Dowman eftir að strákurinn fékk beint rautt spjald.
Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, segir nokkur vel valin orð við hinn sextán ára Max Dowman eftir að strákurinn fékk beint rautt spjald. Getty/Lewis Storey

Mörgum þótti knattspyrnustjórinn Mikel Arteta ganga aðeins of langt þegar hann lét kornungan leikmann Arsenal heyra það fyrir framan myndavélarnar.

Mikel Arteta var spurður út í rauða spjaldið sem hinn 16 ára gamli Max Dowman fékk í tapleiknum á móti Fleetwood Town. Strákurinn fékk stuttan reiðilestur frá stjóra sínum þegar hann gekk af velli.

„Ég hef ekki séð viðbrögðin við viðbrögðum mínum, hvort sem þau eru jákvæð eða neikvæð. Það þarf að skilja samhengið, sambandið sem ég á við hann og það sem við ræddum áður en við fórum út,“ sagði Mikel Arteta á blaðamannafundi fyrir leikinn við Liverpool um helgina.

„Ef þið sæjuð stundum viðbrögð móður minnar og föður við mér mynduð þið segja „þér líkar ekki þessi viðbrögð“ en fyrir mig voru þau bestu viðbrögð sem hugsast gat því þau gerðu mér kleift að verða sá sem ég er,“ sagði Arteta.

„En þið viljið sjá bestu og fallegustu viðbrögðin. Þið viljið sjá viðbrögð liðsfélaga hans þegar þeir þurfa að spila tíu á móti ellefu,“ sagði Arteta.

„Við hverju búist þið? Þetta er getustigið og þetta eru viðbrögðin. Hvort sem þau eru rétt eða röng, þá eru þetta viðbrögðin. Og þegar ég vinn ekki er ég f-g brjálaður, alveg rosalega. Þetta er umhverfið og raunveruleikinn,“ sagði Arteta.

„Þetta er ekki Disneyland, við erum í ensku úrvalsdeildinni. Við hugsum mjög vel um hann en við gerum líka kröfur því hann þarf að vinna sér inn réttinn til að spila, annars hvað eiga hinir strákarnir að segja við mig?,“ sagði Arteta.

„Viðbrögð mín voru í hita leiksins og af pirringi, því ég þekki afleiðingarnar af þessu og sérstaklega fyrir Max. Þetta er eitthvað sem við ræddum rétt áður en við fórum út, því þetta er ekki í fyrsta skipti sem þetta gerist, þetta gerðist líka fyrr í þessum mánuði með Englandi,“ sagði Arteta.

„Þetta mun halda áfram að gerast miðað við hvernig hann spilar og hvernig hann dregur að sér athygli mótherja. Við verðum að vernda hann þar sem hann er 16 ára en einnig vera mjög hreinskilin við hann um hvers er ætlast til af honum gagnvart liðinu og félaginu,“ sagði Arteta.

„Ég ræddi við hann í gær. Það eru engin vandamál. Ég hef gert þetta sjálfur. Þess vegna er ég svo verndandi gagnvart þessum hlutum og ungum leikmönnum, því við höfum öll gert þessi mistök,“ sagði Arteta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×